Morgunblaðið - 27.04.2012, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Morgunblaðið
gefur út glæsilegt
sérblað um
Heimili og hönnun
föstudaginn
11. maí
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 7. maí.
Í blaðinu verða kynntir
geysimargir möguleikar og
sniðugar lausnir fyrir heimilin.
Skoðuð verða húsgögn í stofu,
hjónaherbergi, barnaherbergi og
innréttingar bæði í eldhús og bað.
Heimili & hönnun
SÉ
RB
LA
Ð
Þau stóðu í stórræðum í gær,
hjónin á Kiðafelli í Kjós, og voru í
miðjum klíðum við að koma niður
flotbryggju í bátavíkinni í Eyr-
arkoti, með dyggri aðstoð vina og
nágranna, þegar ljósmyndara
Morgunblaðsins bar þar að garði.
Bændahjónin Bergþóra Andr-
ésdóttir og Sigurbjörn Hjaltason,
sem sést hér í forgrunni, keyptu
bryggjuna notaða og hyggjast
meðal annars nota hana í
tengslum við ferðaþjónustuna sem
þau reka í Eyrarkoti. Þau ætla sér
þó ekki að sitja að henni ein, segir
Bergþóra.
„Þetta á bara að vera almennt
fyrir fólkið hérna í sveitinni, fyrir
þá sem vilja komast á sjó og veiða
sér til matar. Eða fyrir skemmti-
siglingar úr bænum eða um fjörð-
inn þess vegna,“ segir Bergþóra.
Enn sem komið er sam-
anstendur skipafloti Bergþóru og
Sigurbjörns af einum bát, sem
Bergþóra segir svo lítinn að hann
verði varla látinn liggja við
bryggjuna en við hana má með
góðu móti leggja alls sex bátum.
Bændur
setja niður
bryggju
Morgunblaðið/Golli
Flotbryggja sett niður í bátavíkinni í Eyrarkoti í Kjós
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Sendinefnd frá netrisanum Google er vænt-
anleg til landsins á næstu tveimur til þremur
mánuðum til þess að kynna
sér íslensk upplýsingatækni-
kerfi til að fylgjast með fisk-
veiðum. Að sögn Ólafs Ragn-
ars Grímssonar, forseta
Íslands, er nú unnið að því að
finna hentuga tímasetningu
fyrir heimsókn fulltrúa fyrir-
tækisins.
Í febrúar segir Ólafur
Ragnar að hann hafi átt við-
ræður við fulltrúa Google eft-
ir að hann hélt ræðu á heims-
þingi um höfin í Singapúr.
Í ræðu sinni lýsti forsetinn meðal annars
árangri Íslendinga í að þróa eftirlitskerfi með
veiðum skipa og hvernig hægt sé að nota upp-
lýsingatækni til að tryggja ábyrgar og sjálf-
bærar fiskveiðar.
„Við áttum fróðlegar og gagnlegar viðræður
um hvort hægt væri að tengja saman þá tækni
sem íslensk fyrirtæki eins og til dæmis Track-
well hafa þróað við tækniþróun Google, sér-
staklega Google Earth. Ef hægt væri að tengja
þetta tvennt saman væri hugsanlega kominn
grundvöllur að því að búa til alþjóðlegt eftirlits-
kerfi með veiðum og siglingum allra fiskiskipa
hvar sem er í veröldinni,“ segir hann. Ólafur
Ragnar segist sannfærður um að tenging upp-
lýsingartækninnar við veiðar væri vænlegasta
leiðin til að hamla gegn eyðingu fiskistofna út
um allan heim.
Mikil viðurkenning
Á Íslandi myndi sendinefnd Google ræða við
íslensk tæknifyrirtæki, stofnanir á þessu sviði
og fyrirtæki í sjávarútvegi og veiðum með það
að markmiði að sjá hvort eftirlitskerfi Íslend-
inga með sjálfbærum veiðum og verndun fiski-
stofna geti orðið burðarás í útfærslu Google
Earth þannig að hún tæki einnig til hafanna.
„Ég tel að þetta sé mikil viðurkenning fyrir
íslensk upplýsingatæknifyrirtæki og fyrir það
kerfi sem við höfum þróað hér. Ef við fáum lið-
sinni Google Earth í þessum efnum, sem nýtur
heimsviðurkenningar á þessu sviði, þá væri það
mjög stórt skref,“ segir forsetinn.
Fulltrúar Google á leiðinni
Skoða möguleika á að tengja Google Earth við íslenskt eftirlitskerfi með skipum
Væri stórt skref fyrir íslensk upplýsingatæknifyrirtæki, segir forseti Íslands
Morgunblaðið/RAX
Hafið Google kynnir sér skipaeftirlitskerfi.
Ólafur Ragnar
Grímsson
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Stjórnvöld í Tékklandi hafa boðist til þess að sjá um loft-
rýmisgæslu við Ísland hluta árs 2014.
Síðan bandarísk stjórnvöld tóku ákvörðun um að kalla
herliðið á Keflavíkurflugvelli heim frá Íslandi hafa flug-
sveitir frá ríkjum Atlantshafsbandalagsins (NATO) kom-
ið hingað til lands þrisvar á ári til þess að sjá um loftrým-
isgæslu en boð tékkneskra stjórnvalda er í tengslum við
þá loftrýmisgæslu. Varnarmálaráðuneyti Tékklands hef-
ur sagst vera tilbúið til þess að senda hingað til lands fjór-
ar orustuþotur af gerðinni Saab JAS-39 Gripen.
„Tékkar hafa látið í ljós áhuga á að taka þátt í loftrým-
isgæslunni og tilkynnt það til NATO-ráðsins og okkar,“
segir Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður utanríkis-
ráðherra. Að sögn Kristjáns hafa tékknesk stjórnvöld
áhuga á að sinna loftrýmisgæslunni frá september 2014
til desember á sama ári. Aðspurður segist hann hvorki
geta staðfest fjölda orustuþotnanna sem Tékkar munu
nota við loftrýmisgæsluna né af hvaða gerð þær séu.
Tékkland er aðili að NATO en landið hefur ekki áður
sinnt loftrýmisgæslu við Ísland. Tékkar eru með fjórtán
orustuþotur af gerðinni Saab JAS-39 Gripen að láni frá
Svíþjóð. Tékkneskar orustuþotur af þeirri gerð munu
einnig koma til með að sinna loftrýmisgæslu í Eystra-
saltslöndunum í 4 mánuði á þessu ári.
Tékkar bjóðast til að sinna
loftrýmisgæslu við Ísland
Tekið af heimasíðu tékkneska hersins. http://www.army.cz/
Gripen Fjórar tékkneskar Gripen-orustuþotur eru
væntanlegar hingað til lands árið 2014.
Loftrýmisgæslan færi
fram undir lok árs 2014
„Við teljum að það sé afar óheppi-
legt að hafa sama stæðið merkt fyr-
ir fatlaða og konur og við ætlum
þess vegna að breyta því,“ segir
Höskuldur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Hörpu, en nokkur
fjöldi stæða í bílastæðahúsi Hörpu
er nú merktur á þann hátt.
„Við ætlum að merkja stæði sér-
staklega fyrir fjölskyldufólk með
barnavagna,“ segir Höskuldur.
Hann segir að hugmyndin að
þessari merkingu hafi komið frá
arkitektum hússins, sem höfðu
kynnt sér slíkar merkingar í Þýska-
landi. „
Sérmerkt kvenna-
bílastæði í Hörpu
þykja óheppileg
Morgunblaðið/Golli