Morgunblaðið - 27.04.2012, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012
www.tskoli.is
Uppskerudagur
Opið hús í Tækniskólanum, skóla atvinnulífsins,
laugardaginn 28. apríl kl. 13:00 – 16:00.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Tugir þúsunda manna söfnuðust
saman í miðborg Óslóar í gær til að
syngja vinsælt lag sem fjöldamorð-
inginn Anders Behring Breivik hafði
sagt að hann þyldi ekki vegna þess að
það væri áróður fyrir marxisma og
fjölmenningarstefnu.
Lögreglan í Ósló sagði að þegar
mannfjöldinn var mestur hefðu um
40.000 manns tekið þátt í söngnum á
torgi nálægt dómhúsinu þar sem rétt-
að er í máli fjöldamorðingjans. Fólkið
söng lagið Börn regnbogans (n. Barn
av regnbuen) eftir bandaríska þjóð-
lagasöngvarann Pete Seeger. Lagið
sló í gegn í Noregi í flutningi norska
söngvarans Lillebjørns Nilsens sem
stjórnaði fjöldasöngnum í gær.
„Dæmi um marxista“
Breivik sagði fyrir réttinum á
föstudaginn var að Nilsen
væri „mjög gott dæmi
um marxista“ og
lagið væri „dæmi-
gert“ fyrir það
hvernig norsk skóla-
börn hefðu verið „heilaþvegin“. Tveir
Norðmenn stofnuðu þá hóp á Face-
book og hvöttu Norðmenn til að safn-
ast saman nálægt dómhúsinu til að
syngja lagið.
Þátttakendurnir héldu á norskum
fánum og rósum sem eru orðin að
tákni um friðsamleg viðbrögð Norð-
manna við fjöldamorðunum í Ósló og
Útey 22. júlí þegar alls 77 manns biðu
bana.
Fjöldasöngurinn hófst á hádegi í
gær að staðartíma og haldið var
áfram að syngja lagið í nokkrar
klukkustundir. Á meðal þeirra sem
tóku þátt í fjöldasöngnum voru mörg
leikskóla- og grunnskólabörn sem
komu með kennurum sínum og veif-
uðu rósum. Á torginu voru einnig
menningarmálaráðherrar allra
Norðurlandanna, þeirra á meðal
Katrín Jakobsdóttir.
Lill Hønnevåg, sem stofnaði
Facebook-hópinn, kvaðst vera djúpt
snortin af því hversu margir tóku
þátt í söngnum. „Mér fannst [fjölda-
morðinginn] vera að traðka á lagi sem
ég ólst upp við og söng fyrir barnið
mitt,“ hafði fréttavefur norska ríkis-
útvarpsins eftir Hønnevåg.
Lillebjørn Nilsen sagði að túlkun
fjöldamorðingjans á laginu væri út í
hött. „Það er í rauninni ekki um fólk,
heldur umhverfisvernd,“ sagði hann í
viðtali við Aftenposten.
Einn verjenda fjöldamorðingjans
kvaðst hafa sagt honum frá fjölda-
söngnum en hann hefði sýnt lítil við-
brögð.
Saksóknarinn Svein Holden sagði
að það hefði komið sér á óvart hversu
margir tóku þátt í fjöldasöngnum.
Tugir þúsunda sungu lag
sem Breivik þolir ekki
Morðinginn lýsti laginu sem dæmi um hvernig börn hefðu verið „heilaþvegin“
AFP
Börn regnbogans Fólk leggur rauðar rósir á grindverk við dómhúsið í miðborg Óslóar eftir að hafa tekið þátt í fjöldasöngnum í gær.
Um 19.000 reið-
hjólum var stolið
í Kaupmanna-
höfn á síðasta
ári, um það bil
12% fleiri en árið
2007. Í allri Dan-
mörku var
70.000 reið-
hjólum stolið,
eða einu hjóli að
meðaltali á
hverjum átta mínútum, að Politi-
ken. Samtök danskra hjólreiða-
manna hafa gagnrýnt lögregluna
fyrir að standa sig illa í baráttunni
við reiðhjólaþjófa. Lögreglan í
Kaupmannahöfn vísar gagnrýninni
á bug og segir að eigendur hjól-
anna geti sjálfir lagt meira af
mörkum, t.a.m. muni fáir þeirra
eftir því að skrifa niður fram-
leiðslunúmer hjólanna.
Hjóli stolið áttundu
hverja mínútu
Í gósenlandi
hjólaþjófa.
DANMÖRK
Rupert Murdoch, eigandi News
Corp-fjölmiðlasamsteypunnar, ját-
aði fyrir Leveson-nefndinni svo-
nefndu í Bretlandi í gær að starfs-
menn News of the World hefðu
leynt því að upplýsingar sem birt-
ust í blaðinu hefðu verið fengnar
með ólöglegum hætti. Hann segist
hins vegar ekki hafa haft hugmynd
um þetta athæfi. Aðallögfræðingur
News of the World á þessum tíma
neitaði ásökun Murdochs og sagði
hana „svívirðilega lygi“.
Murdoch hætti útgáfu blaðsins í
júlí í fyrra þegar hlerunarmálið
svonefnda komst í hámæli.
Viðurkennir
yfirhylmingu
BRETLAND
Reuters
Í vörn Rupert Murdoch svarar spurn-
ingum Leveson-nefndarinnar í London.
Harald Føsker, sem missti sjónina að mestu í sprengjuárás fjölda-
morðingjans í Ósló, bar vitni fyrir réttinum í gær og kvaðst hafa ver-
ið sviptur frelsi. „Ég get ekki lengur keyrt bíl, get ekki lesið bækur
án hjálpartækja og get ekki lesið blöð án stækkunarglers. Eini stað-
urinn sem ég get farið um án vandamála er heimili mitt,“ sagði
Føsker sem er 67 ára og starfaði í ráðuneytisbyggingu sem stór-
skemmdist í árásinni.
Annað vitni, Anne Helene Lund, sem er 24 ára, lýsti því
hvernig hún þeyttist út úr byggingunni í sprengingunni.
Hún særðist alvarlega og varð fyrir miklu minnistapi. Hún
kvaðst ekki muna neitt af því sem hún lærði í stjórn-
málafræði á þremur árum í háskóla og hefði þurft að hefja
nám að nýju í menntaskóla vegna minnistapsins.
Engin svipbrigði sáust á andliti fjöldamorðingjans þegar
hann fylgdist með vitnisburði fórnarlamba sinna.
Kveðst hafa verið sviptur frelsi
VITNI LÝSA ÞJÁNINGUM SÍNUM VEGNA SPRENGJUÁRÁSAR
Harald
Føsker
49 ný ólögleg lyf fundust í aðildar-
ríkjum Evrópusambandsins á síð-
asta ári, eða næstum því eitt lyf að
meðaltali á hverri viku, að sögn
Eftirlitsmiðstöðvar Evrópu með
lyfjum og lyfjafíkn (EMCDDA).
Stofnunin segir að aldrei áður hafi
fundist jafnmörg lyf á markaði ESB
á einu ári. Árið áður fannst 41 nýtt
ólöglegt lyf á markaðnum. Að sögn
stofnunarinnar hefur fjöldi net-
verslana, sem selja minnst eitt ólög-
legt lyf, meira en tvöfaldast á einu
ári.
EVRÓPUSAMBANDIÐ
Fann nýtt ólöglegt
lyf á viku fresti