Morgunblaðið - 27.04.2012, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012
Piltur virðir fyrir sér byssu hermanns við minningar-
athöfn í Kíev um fórnarlömb kjarnorkuslyssins í
Tsjornobyl-verinu í tilefni af því að í gær voru 26 ár lið-
in frá slysinu. Ennfremur hófst formlega bygging
varanlegs byrgis sem reisa á utan um kjarnorkuverið í
öryggisskyni til að loka því. Áætlað er að byrgið kosti
jafnvirði 250 milljarða króna og það á að endast í eina
öld, að sögn fréttastofunnar AFP.
AFP
Bygging byrgis hafin í Tsjernobyl
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Alþjóðleg mannréttindasamtök
fögnuðu í gær dómi stríðsglæpadóm-
stóls í Haag yfir Charles Taylor,
fyrrverandi forseta Líberíu, sem var
dæmdur sekur um aðild að stríðs-
glæpum og glæpum gegn mannkyni.
Charles Taylor var einn af ill-
ræmdustu stríðsherrum Afríku áður
en hann var forseti Líberíu 1997-
2003. Hann fór fyrir uppreisnar-
mönnum í heimalandi sínu 1989-1996
og átti einnig stóran þátt í borgara-
stríði í grannríkinu Síerra Leóne
1991-2001. Stríðin kostuðu samtals
um 400.000 manns lífið.
Börn hneppt í ánauð
Ákærurnar snerust um ólýsanleg
grimmdarverk sem framin voru í
borgarastríðinu í Síerra Leóne. Á
meðal þeirra sem börðust í stríðinu
voru mörg börn sem uppreisnar-
menn hnepptu í ánauð og gerðu að
miskunnarlausum vígamönnum í
þjálfunarbúðum, m.a. með því að
dæla í þau eiturlyfjum og áfengi.
Uppreisnarmennirnir myrtu þús-
undir manna, m.a. mörg börn, og
hjuggu fætur og hendur af þúsund-
um annarra með öxum og sveðjum.
Börn voru send með strigapoka til að
fremja grimmdarverkin og ef pok-
arnir voru ekki fullir af útlimum var
börnunum refsað. Fólk var einnig
hneppt í þrældóm í demantanámum
á yfirráðasvæðum uppreisnarmann-
anna.
Taylor var dæmdur sekur um að
hafa séð illræmdri uppreisnarhreyf-
ingu í Síerra Leóne, RUF, fyrir
vopnum og fengið fyrir það svo-
nefnda „blóðdemanta“ sem voru not-
aðir til að kaupa vopn í því skyni að
halda áfram blóðsúthellingunum.
Þetta er í fyrsta skipti sem alþjóð-
legur dómstóll dæmir fyrrverandi
þjóðhöfðingja fyrir stríðsglæpi frá
Nürnberg-réttarhöldunum eftir síð-
ari heimsstyrjöldina þegar réttað
var yfir Karl Dönitz sem var forseti
Þýskalands í rúmar þrjár vikur eftir
að Hitler fyrirfór sér.
Mannréttindasamtök sögðu að
dómurinn yfir Taylor væri mjög
sögulegur. „Þetta er ótrúlega mikil-
væg ákvörðun,“ hafði fréttavefur
breska ríkisútvarpsins eftir Elise
Keppler, talsmanni Human Rights
Watch. „Þetta er tímamótadagur.“
Talsmaður Amnesty International
í Síerra Leóne sagði að með dómnum
hefði dómstóllinn í Haag sent stríðs-
herrum og harðstjórum í Afríku
mikilvæg skilaboð. Hann bætti þó
við að mál Taylors væri aðeins
„toppurinn á ísjakanum“ því enn
ætti eftir að rannsaka mál fjöl-
margra annarra sem grunaðir væru
um að hafa tekið þátt í grimmdar-
verkunum.
Dómstóllinn í Haag var stofnaður
sérstaklega til að fjalla um stríðs-
glæpi í Síerra Leóne. Hann kveður
upp refsidóm í máli Taylors 30. maí.
Verði hann dæmdur í fangelsi er
gert ráð fyrir því að hann afpláni
dóminn í Bretlandi.
Taylor er 64 ára og nam hagfræði í
Bandaríkjunum áður en hann sneri
aftur til Líberíu árið 1980. Hann er
baptisti og var um tíma leikpredik-
ari. Áður en hann varð forseti er talið
að hann hafi dvalið í nokkur ár í Líb-
íu og nánustu hernaðarráðgjafar
Muammars Gaddafis hafi þjálfað
hann í skæruhernaði. Taylor var
kjörinn forseti Líberíu árið 1997 eft-
ir að borgarastríðinu í landinu lauk.
„Hann drap mömmu mína, hann
drap pabba minn, en ég kýs hann
samt,“ voru kjörorð stuðningsmanna
hans í forsetakosningunum.
Mikilvæg
skilaboð til
stríðsherra
Fyrrverandi forseti dæmdur fyrir
aðild að grimmilegum stríðsglæpum
Heimild: Reuters, EDREF Ljósmynd: Reuters
CHARLES
TAYLOR
1948 Fæddist 28. janúar, einn af
afkomendum leysingja frá Bandaríkjunum
sem stofnuðu ríkið Líberíu árið 1847
Starfaði fyrir Samuel Doe forseta, sem
rændi völdunum árið 1980, og hafði
yfirumsjón með innkaupum ríkisins
1983 Flúði til Bandaríkjanna eftir að Doe
sakaði hann um stórfelldan fjárdrátt
1984 Dæmdur í Bandaríkjunum fyrir
fjárdrátt, en slapp úr fangelsi í
Massachusetts ári síðar
1989 Hóf uppreisn gegn Doe eftir að hafa
flúið til Fílabeinsstrandarinnar
1997 Taylor varð forseti Líberíu eftir
að borgarastríði lauk. Um 250.000
manns lágu í valnum
2003 Flúði til Nígeríu eftir að andstæðingar
hans hófu uppreisn og nálguðust Monróvíu
Dómstóll ákærði hann fyrir stríðsglæpi og
glæpi gegn mannkyni
Interpol gaf út handtökutilskipun
2006 Taylor handtekinn í Nígeríu
Ákæruatriðum fækkað úr 17 í 11 til að skerpa
áherslurnar í réttarhöldunum
Taylor fluttur til Haag vegna þess að óttast
var að réttarhöld í Freetown gætu leitt til
átaka í Síerra Leóne eða Líberíu
2008 Vitnaleiðslur hófust, alls báru 115
manns vitni
2010 Ofurfyrirsætan Naomi Campbell bar
vitni vegna ásakana um að hún hefði fengið
demanta að gjöf frá Taylor eftir veislu sem
Nelson Mandela hélt
2011 Málflutningi saksóknara og verjenda
lauk í mars
2012, í gær Taylor fundinn sekur
Nígería
Líbería
A F R Í K A
Síerra
Leóne
Freetown
Monróvía
Er fyrsti
fyrrverandi
þjóðhöfðing-
inn sem
sóttur hefur
verið til saka
fyrir stríðs-
glæpi í Afríku
AFP
Vill demantana Stríðsglæpunum
mótmælt í Freetown.
Opið 9-18 alla daga nema sunnudaga • Sími 553 1099
Bo Xilai, fyrrverandi leiðtogi kín-
verska kommúnistaflokksins í stór-
borginni Chongqing, stóð fyrir mjög
viðamiklum símhlerunum sem stuðl-
uðu að því að honum var vikið úr
embætti, að sögn The New York
Times. Blaðið segir að menn á veg-
um Bo Xilai séu meðal annars sagðir
hafa hlerað símtöl embættismanna
við forseta Kína, Hu Jintao.
Bo átti sæti í 25 manna stjórn-
málaráði flokksins, æðstu valda-
stofnun landsins, og búist hafði verið
við að hann yrði skipaður í fasta-
nefnd ráðsins sem tekur allar lykil-
ákvarðanir í kínverskum stjórn-
málum.
Hermt er að símhleranirnar hafi
hafist fyrir nokkrum árum og þær
hafi átt að vera liður í baráttu yfir-
valda í Chongqing gegn glæpum.
Umfang þeirra hafi síðan aukist og
náð til háttsettra embættismanna.
Bo hefur ekki komið fram opin-
berlega síðan honum var vikið úr
embætti. Kona hans, Gu Kailai, hef-
ur verið handtekin vegna gruns um
að hún sé viðriðin morð á breska
kaupsýslumanninum Neil Heywood
sem var myrtur í Chongqing í nóv-
ember síðastliðnum.
Orðrómur hefur verið á kreiki um
að Heywood hafi starfað fyrir
bresku leyniþjónustuna en William
Hague, utanríkisráðherra Bret-
lands, neitaði því í gær. Ráðherrann
sagði að Heywood hefði ekki starfað
með nokkrum hætti fyrir breska rík-
ið. bogi@mbl.is
Sakaður um að hafa látið
hlera símtöl forseta Kína
Reuters
Fallinn í ónáð Bo Xilai veifar fána
áður en honum var vikið frá.