Morgunblaðið - 27.04.2012, Page 31

Morgunblaðið - 27.04.2012, Page 31
fyrirmenn og alþýðu, sem þá fjöl- mennir í búðina til innkaupa og al- menns mannfagnaðar. Hefur hann jafnan boðið mér að koma á Goldfinger í Kópavogi, þar verði mér allur beini veittur án greiðslu, en þrátt fyrir þessi góðu boð hef eg ekki komið á þann merka stað- .Og að öllu þessu sögðu hef eg allt- af talið til skuldar við þessa heið- ursmenn báða, Halla minn Blöndal og Geira gullputta og tek hatt minn ofan í virðingu við hinn látna veitingamann, sem átti sannarlega margar góðar hliðar í því görótta lífi, sem hann lifði í rökkurheimum lífsins. Þrjá erfingja á hver maður: mennina, moldina og sálarinnar meðtakara. Bragi Kristjónsson og Ari Gísli Bragason. Haustið 1963 voru nemendur að flykkjast að Laugarvatni. Í Hlíðinni höfðum við Þór Kröyer komið okkur fyrir í herbergi sem var fyrir þrjá. Það vantaði einn og við vissum ekkert hver hann var. Allt í einu breyttist allt. Hávaða- samur strákpolli kom blaðskell- andi. Það var engin lognmolla í kringum hann. Geiri var kominn. Mættur á svæðið. Hann talaði hátt og hló hátt og það fór í alla staði nokkuð fyrir honum. Geiri var hvorki betri né verri námsmaður en við hinir og oft glatt á hjalla. Stundum var tuskast en aldrei í illu. Þegar upp var staðið var slag- urinn búinn. Á Laugarvatni er Geiri eftirminnilegastur fyrir Spæjarabókina. Þar skráði hann ýtarlega hverjir felldu hugi sam- an. Hann þreif bókina upp úr vasa sínum með hægri hendi og sló með tilþrifum í þá vinstri og sagði hátt og snjallt: Spæjarabókin mín. Lífshlaup Geira var skrautlegt og fjölbreytt. Eitt sinn er hann hafði gerst veitingamaður í Reykjavík kom ég við á barnum. Hann þreif umsvifalaust stórt glas og fór að láta renna í bjór. Hver ætlar að borga bjórinn hans Sigga? Hver ætlar að borga bjór- inn hans Sigga? endurtók hann hátt og snjallt og svo teygði hann sig í vasa, eftir kreditkorti næsta manns sem stóð fyrir framan bar- inn og tilkynnti honum að honum hlotnaðist sá heiður að borga bjór- inn hans Sigga. Næst lágu leiðir okkar saman fyrir nokkrum árum í Póllandi. Við vorum í hópi fólks sem fór með Jónínu Ben. Að venju var Geiri hrókur alls fagnaðar. En þar reis sól hans hæst er hann var kór- drengur við messu hjá Gunnari í Krossinum. Að leiðarlokum færi ég börnum hans og aðstandendum öllum samúðarkveðjur. Geiri var góður gæi. Sigurður Hróar Guðmundarson. Okkur setti hljóða við andláts- frétt vinar okkar til rúmlega þrjá- tíu ára. Vinátta okkar teygðist í átt að börnum okkar og úr varð vinskapur á milli okkar allra. Þremur dögum fyrir andlát hans náði ég einmitt í lilluna okkar til hans þar sem hún var ásamt dótt- ur hans og eins og alltaf áður kom hann fagnandi á bílaplaninu. Það er mikill missir og stórt skarð höggvið í vinahópinn en með sam- heldni, virðingu og hlýhug er hægt að viðhalda minningu okkar mikla vinar. Það hafa mörg tár fallið hjá dóttur okkar og þung sporin sem hún gengur síðasta spölinn með honum en svo mikill vinskapur tókst á með þeim að daglegt samband var þar á milli og nánast daglega eftir samtal þeirra á milli kom hún hlaupandi með þeim orðum: Ég elska Geira, hann er æði. Elsku Geiri, innilegar þakkir fyrir vináttuna í gegnum árin. Megir þú halda fast í þá gleði og hlýju sem einkenndi þig áfram í það ferðalag sem þú ert að hefja. Elsku Jaroslava og börn ykkar Geira, megi allar vættir vernda ykkur og styrkja við ykkar mikla missi. Ást og virðing. Heiðar, Katla og börn. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012 ✝ Jóhanna Guð-björg Gunn- laugsdóttir fæddist á Blönduósi 29. des- ember 1924. Hún lést á Landakots- spítala í Reykjavík 18. apríl 2012. Foreldrar Jó- hönnu voru hjónin Gunnlaugur Bene- dikt Björnsson, f. 18.3. 1897, d. 8.5. 1978, og Ósk Ingibjörg Þorleifs- dóttir, f. 12.7. 1884, d. 14.7. 1967. Hálfbróðir Jóhönnu var Þorleifur Ingimundarson, f. 21.6. 1905, d. 19.11. 1918. Jóhanna giftist 15.5. 1948 Sigmari Hróbjartssyni múr- arameistara, f. 24.5. 1919. Þau skildu 1976. Börn þeirra eru: 1) Bergdís Ósk Sigmarsdóttir skrifstofumaður, f. 15.5. 1947, gift Davíð W. Jack flugvirkja, f. 25.6. 1945. Synir þeirra eru: a) Róbert Jack, f. 8.8. 1971, kvænt- ur Díönu Dröfn Heiðarsdóttur, f. 5.1. 1973. Börn þeirra eru Agata Erna, Daníel Heiðar og Kormákur Nói. b) Sigmar Jack, f. 6.6. 1974, kvæntur Önnu Kristínu Úlfarsdóttur, f. 28.7. 1974. Börn þeirra eru Hilmir 1982, er í sambúð með Ísaki Stefánssyni, f. 21.4. 1976. Dóttir þeirra er Katrín Silva. b) Andri Freyr Árnason, f. 8.7. 1987, er í sambúð með Elina Gundersen, f. 6.7. 1993. Jóhanna var síðar í sambúð með Ólafi M. Magnússyni, f. 22.9. 1920, d. 18.6. 1991. Vinur og samferðamaður Jóhönnu hin síðari ár var Árni Eymar Sig- urbjörnsson, f. 29.8. 1927, d. 28.7. 2009. Jóhanna ólst upp á heimili foreldra sinna að Efri- Harrastöðum í Skagahreppi. Hún var við nám í Kvennaskól- anum á Blönduósi 1944-45 og stundaði ásamt manni sínum bú- skap á Efri-Harrastöðum til 1955 er þau fluttu til Skaga- strandar. Á Skagaströnd vann Jóhanna við fiskvinnslu og fleira uns hún réðst sem útibús- stjóri hjá Kaupfélagi Skag- strendinga þar sem hún starfaði til 1968 er hún flutti til Garða- bæjar. Hún var verslunarstjóri í Vogue í Hafnarfirði í nokkur ár, vann um árabil í Bitabæ í Garða- bæ og stundaði síðan ýmis versl- unar- og þjónustustörf. Jóhanna tók virkan þátt í félagsstarfi bæði á Skagaströnd og eins eftir að hún flutti suður. Hún hafði yndi af alls kyns hannyrðum sem hún stundaði til síðasta dags. Útför Jóhönnu fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi í dag, 27. apríl 2012, kl. 15. Davíð, Brynjar Ax- el og Freyja Ísa- bella. 2) Gunn- laugur Gísli Sigmarsson við- skiptafræðingur, f. 26.6. 1949, kvæntur Steinunni Fríðhólm Friðriksdóttur verslunarmanni, f. 17.8. 1948. Börn þeirra eru: a) Jó- hanna Gunnlaugs- dóttir, f. 15.5. 1970. b) Ragnar Friðrik Gunnlaugsson, f. 8.2. 1974. 3) Sigurþór Heimir Sig- marsson, starfsmaður Securitas, f. 14.8. 1960, er í sambúð með Þjóðbjörgu Hjarðar Jónsdóttur skrifstofumanni, f. 4.7. 1965. Sonur þeirra er: a) Benedikt Ar- on Sigurþórsson, f. 13.11. 1999. Börn Sigurþórs Heimis og Arn- heiðar Ragnarsdóttur, f. 4.9. 1960, eru: b) Sigríður Ragna Sigurþórsdóttir, f. 25.9. 1984, er í sambúð með Sigurði Pétri Ólafssyni, f. 6.5. 1982. Sonur þeirra er Ólafur Breki. c) Sig- urþór Arnar Sigurþórsson, f. 1.12. 1990. d) Guðbjörg Ósk Sig- urþórsdóttir, f. 23.5. 1992. Börn Þjóðbjargar eru: a) Ragnheiður Ágústa Árnadóttir, f. 16.12. Þegar ég hitti Jóhönnu mánu- daginn 16. apríl, grunaði mig ekki að þetta væri okkar síðasti fund- ur þó að veikindi hefðu herjað á hana undanfarna mánuði. Það var alltaf gott að koma til Jó- hönnu, hún var margfróð um ýmsa hluti og gaman að spjalla við hana. Þannig háttaði til að Jó- hanna var sambýliskona föður míns í ein sjö ár eftir að móðir mín lést. Þetta var farsælt sam- band, áhugamálin lík, hesta- mennska, ferðalög, saga og ætt- fræði. Þau byggðu sér hlýlegt heimili í Grænuhlíðinni og skömmu áður en faðir minn fór á eftirlaun keyptu þau sér sum- arbústað og strax var hafist handa við lagfæringar á honum. En stundirnar þar urðu ekki eins margar og að var stefnt því faðir minn lést ári síðar. Við héldum samt áfram góðu sambandi við Jóhönnu, enda var hún orðin ein af fjölskyldunni og sú föðuramma sem yngsta dóttir okkar Hildar þekkti. Jóhanna var Húnvetningur og í góðu spjalli leið aldrei á löngu uns hugurinn var floginn þangað, hún þekkti vel fólk og staðhætti í Húnavatnssýslunum og unni sinni heimabyggð. Það var ekki komið að tómum kofanum þegar fræðast þurfti um hennar heima- hérað, hún kunni söguna vel, og ættfræði var henni í blóð borin. Jóhanna hafði gaman af bókum og var fróð um velflestar bækur sem gefnar höfðu verið út á land- inu, enda greip hún endrum og eins í að selja notaðar bækur, og þar var ekki slegið slöku við. Einnig batt hún töluvert inn og var handbragðið glæsilegt. Allt lék í höndum hennar og var hún eftirsóttur starfskraftur. Að leiðarlokum ber að þakka fyrir allar góðu samverustund- irnar. Við Hildur sendum fjöl- skyldu Jóhönnu innilegustu sam- úðarkveðjur, börnin okkar þrjú senda öll sínar bestu kveðjur og þakka fyrir sig. Hvíl í friði, kæra vinkona. Jafet S. Ólafsson. Jóhanna tengdamóðir mín er fallin frá eftir nokkuð langt og erfitt veikindatímabil. Ég minn- ist hennar sem heilsteyptrar og greindrar konu sem mátti ekkert aumt sjá. Hún þráði meiri mennt- un en hún átti kost á í æsku. Það bætti hún sér að einhverju leyti upp síðar með því að sækja ýmis námskeið og afla sér fróðleiks úr bókum, en hún las alla tíð mikið og mundi vel það sem hún las. Meðan Jóhanna var á vinnu- markaði vann hún oft langan dag en það kom ekki í veg fyrir að hún stundaði handavinnu og hand- verk af ýmsu tagi því ekki gat hún setið auðum höndum. Hún saumaði, lagði hönd á bókband, útskurð, málaði myndir, málaði á tau, vann ógrynnin öll af gler- myndum svo eitthvað sé nefnt fyrir utan allan prjónaskapinn. Jafnvel síðustu dagana meðan hún dvaldi á Landakoti var hún með prjónana og var að ganga frá peisu á yngsta langömmubarnið. Hún hafði gaman af að ferðast innanlands og var skemmtilegur ferðafélagi sem kunni skil á mörgum stöðum sem farið var um og kunni sögur af mönnum og málefnum. Sérstaklega var gam- an að vera með henni á æskuslóð- um hennar á Efri-Harrastöðum þar sem hún þekkti hverja þúfu. Hún ferðaðist einnig með okkur hjónunum til útlanda og eigum við ánægjulegar minningar úr þeim ferðum. Hún var félagslynd og hafði gaman af að spila. Hin síðari ár spilaði hún mest brids en fannst alltaf gaman að grípa í spil. Síðast spilaði hún manna við okkur hjónin fyrir nokkrum dögum þegar við heimsóttum hana á Landakoti. Hún hafði yndi af að fylgjast með ungviðinu í fjölskyldunni og taldi sig ríkari með hverjum nýj- um afkomanda enda sagði hún fagnandi þegar fyrsta lang- ömmubarnið var á leiðinni að nú fengi hún enn fleiri til að elska og hjarta hennar stækkaði með hverju nýju barni. Hún var vak- andi yfir velferð fjölskyldunnar og fylgdist vel með. Guð blessi minningu minnar elskulegu tengdamóður sem ég kveð með söknuði og þökk fyrir samfylgdina. Davíð W. Jack. Amma er farin. Dáin. Það ætti að vera tómarúm í hjartanu mínu en svo er ekki því kona eins og hún amma mín hverfur aldrei að fullu þó að hún sé ekki til staðar lengur. Til þess eru minningarn- ar um hana of margar. Um sumr- in sem ég dvaldi hjá henni í Garðabænum þegar ég var barn. Um árin sem ég bjó hjá henni þegar ég var í háskólanum. Um heimsóknirnar í Sunnuhlíðina, ferðirnar í Kolaportið og ekki síst Ameríkuferðirnar tvær til að heimsækja vesturíslenskt frænd- fólk okkar. Hún var mér góð amma, en það sem meira var: hún var mér líka mjög góð vinkona. Ég er því ekki bara að kveðja ömmu mína, heldur líka eina af mínum bestu vinkonum. Ef til er Guð, og henn- ar vegna vona ég að svo sé því hún var trúuð, þá vil ég þakka honum fyrir að leyfa mér að kynnast henni sem manneskju, ekki bara sem ömmu. Amma var traust vinkona vina sinna og þekkti marga í gegnum störf sín og áhugamál. Hún var góður starfskraftur sem naut þess að vinna þar sem hún gat hitt margt fólk, hvort sem það var við verslunarstjórn í vefnað- arvöruverslun, vinnu í sjoppu eða afgreiðslustörf í Kolaportinu, svo nefnd séu nokkur af þeim störf- um sem hún vann í gegnum tíð- ina. Hún lét sér sérstaklega annt um alla þá sem voru minni máttar og var einnig mikill dýravinur. Amma var hagmælt og til eru eftir hana bæði ljóð og lausavís- ur. Hún sýndi öðrum aðallega gamansaman kveðskap eftir sig, oft góðlátlegt grín um fólk eða at- burði, en hélt öðru til baka og sýndi bara sínum nánustu. Hún fékk litla formlega menntun og þótti það miður, en hún var góð- um gáfum gædd og fróðleiksfús og las alla tíð mikið sér til upp- fræðslu og skemmtunar og sótti ýmis námskeið. Eftir hana liggja bækur sem hún batt inn á bók- bandsnámskeiðum, silfurmunir sem hún smíðaði, málað postulín og ekki síst munir úr steindu gleri, en það áhugamál átti hug hennar síðustu árin. Hún spilaði líka bridds og vist og stundaði boccia þar til hún hætti að hafa þrek til. Þegar hún lenti á sjúkra- húsi, og þær voru ófáar sjúkra- húslegurnar hjá henni undanfar- in ár, voru það bækur og annað lesefni sem hjálpuðu henni að þreyja tímann á milli heimsókna frá ættingjum og vinum. Amma var góður penni og rit- aði sögur af æskuárum sínum sem eru skemmtilegar aflestrar. Hún bjó líka yfir munnlegri frá- sagnargáfu og kunni ógrynnin öll af vísum og sögum um atburði og fólk. Hún átti stórt safn ljós- mynda, bæði eftir sjálfa sig og aðra, og nokkrum dögum fyrir andlát hennar vorum við einmitt að skoða gamlar myndir sem hún átti í fórum sínum. Þarna var m.a. mynd af henni sem var tekin þeg- ar hún var um það bil sex mánaða gömul: búlduleitt, hvítklætt barn sem horfir beint inn í myndavél- ina, yfirvegað og svolítið hissa á svip. Ég sýndi henni líka myndir sem ég tók af henni fyrir stuttu síðan, líklega þær síðustu sem voru teknar af henni. Þetta var síðasta spjallið okkar. Nú er langri og viðburðaríkri ævi lokið. Ég kveð ömmu mína, vinkonu og nöfnu og þakka fyrir þá gjöf sem mér var gefin að eiga hana að. Jóhanna Gunnlaugsdóttir. Elsku amma mín, það sem ég sakna þín mikið og hugsa til þín. Þú varst mér svo mikið og þakka ég fyrir allt sem við áttum saman. Þín alltaf mun ég minnast fyrir allt það góða sem þú gerðir, fyrir allt það sem þú skildir eftir, fyrir gleðina sem þú gafst mér, fyrir stundirnar sem við áttum, fyrir viskuna sem þú kenndir, fyrir sögurnar sem þú sagðir, fyrir hláturinn sem þú deildir, fyrir strengina sem þú snertir, ég ætíð mun minnast þín. (F.D.V.) Þín sonardóttir, Sigríður Ragna. Kæra amma og langamma, nú er samferð okkar lokið í bili og við minnumst þess hvernig við þekktum þig. Þú varst ákveðin á þínu og hafðir skoðun, þótt stríðnisglott gæfi oft til kynna að ekki væri allt með alvöru sagt. Þannig kunnir þú að pota í mann og gera glatt. Samkvæmt dygð þinnar kynslóðar féll þér aldrei verk úr hendi og þú hafðir sífellt eitthvað á prjónunum og fékkst við keramik- og glerlist. Þú safn- aðir einnig hlutum, eins og stein- um sem þú slípaðir, póstkortum, teskeiðum og bókum. Og bók hafðirðu ávallt á náttborðinu. Samveru þráðir þú við aðra, vannst lengi í Kolaporti, fórst tíð- um að spila, tókst þátt í ýmsu starfi eldri borgara og áttir ófáar stundir með fjölskyldunni. Það var því yndislegt að sækja þig heim og alltaf bauðstu upp á kaffi og heimabakað með því. Pönnu- kökur og kleinur kunnir þú að baka afbragðsgóðar og ef maður bað um uppskrift þá sagðirðu hana bara vera í fingrunum. Þú kunnir ýmsar gátur og fórst oft með vísur sem gjarnan voru um lífið í sveitinni þinni, svipmiklar persónur og mikilvæg málefni. Þannig varst þú tenging okkar við tíma sem við lifðum ekki. Og þótt margur fróðleikur deyi með þér mun annað sem betur fer lifa með okkur ásamt hlýrri minning- unni um þig. Róbert, Díana, Agata, Daníel og Kormákur. Jóhanna Guðbjörg Gunnlaugsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma mín er dáin. Alltaf þegar ég fór til ömmu varð ég svo glaður, það var svo margt sem við gerðum saman við fórum út og gáfum fuglunum og spil- uðum Boccia og Ólsen ól- sen. Ég mun aldrei gleyma öllum þessum minningum, hún amma var besta amma í heimi. Hún bakaði gaf og elskaði okkur öll og allir krakkar ættu að eiga svona góða ömmu og allir verða að muna að elska þá sem standa sér nærri því þeir geta horfið úr lífi okkar hvenær sem er. Takk fyrir allt elsku amma. Benedikt Aron Sigurþórsson. Daníel Heiðar, 9 ára, minnist Jóhönnu lang- ömmu sinnar. Elsku langamma mín, nú ertu dáin. Mér finnst það svo skrítið og sorglegt að hugsa um að ég eigi ekki eftir að hitta þig aftur. Það var alltaf skemmtilegt að vera með þér og þú kenndir mér marga góða kapla og spil við eldhúsborðið hjá ömmu í Blikanesi. Ég mun alltaf muna eftir þér og þótt þú sért farin frá okkur þá eigum við þig bara í hjart- anu okkar. Ég græt og græt þegar ég nú minnist þín en ég veit að nú ertu hjá Guði og líður vel þar. Guð blessi þig, langamma mín. Daníel Heiðar. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, HAFSTEINN SIGURGEIRSSON, Mánabraut 6, Þorlákshöfn, andaðist á hjartalækningadeild Land- spítalans við Hringbraut fimmtudaginn 19. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Halldóra Hafsteinsdóttir, Tryggvi Samúelsson, Gunndís Hafsteinsdóttir, Hafsteinn Hafsteinsson, Bryndís Hafsteinsdóttir, Sæmundur Steingrímsson, Gunnur Hafsteinsdóttir, Stefán Jónsson, Snædís Anna Hafsteinsdóttir, Stefán Geir Þórisson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN ÓSKARSSON, Hlévangi, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánu- daginn 23. apríl. Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 2. maí kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Stefán Atli Þorsteinsson, Kristín Ása Davíðsdóttir, Ingibjörg Jóna Þorsteinsdóttir, Haukur Örn Jóhannesson, Vilfríður Þorsteinsdóttir, Halldór Rósmundur, Ósk Þorsteinsdóttir, Baldur Ingi Ísberg, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.