Morgunblaðið - 27.04.2012, Page 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gefðu þér tíma til að sinna heimilinu
og lyfta því upp með því að mála eða færa til
húsgögn. Ekki deila við þá sem eldri eru og þér
lífsreyndari.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ættir að endurskoða afstöðu þína í
ákveðnu máli. Gleymdu því ekki að sjálfsvirð-
ing þín skiptir jafnmiklu máli og virðing ann-
arra. Mundu að ekki eru allir viðhlæjendur vinir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gleymdu þér ekki í eigin velgengni,
þótt gaman sé að baða sig í sviðsljósinu. Nýttu
tækifærið til að ganga í augun á einhverjum –
aðstæður verða aldrei þær sömu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þekking er voldugt afl og þú þarft að
nýta þekkingu þína betur en þú hefur gert
hingað til. Þú vilt hafa nóg fyrir stafni og þú ert
líka afar forvitin/n.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Stjörnurnar vilja minna þig á að stundum
þarf að hafa fyrir ástinni. Ekki láta sjá þig með
hverjum sem er. Þú ættir að hlusta betur á lík-
amann en þú gerir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu það ekki koma þér á óvart ef þú
færð atvinnutilboð sem þú hefur þegar hafnað.
Reyndu að venja þig á að fylgjast betur með
eyðslu þinni. Vertu einbeitt/ur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gefðu fólki meira en það býst við án þess
að láta í ljós að þú sért þér meðvitandi um það.
Rifrildi er í uppsiglingu, það er ágætt, það
hreinsar jú loftið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Listrænt auga þitt þráir smá-
skammt af stórkostlegri list. Njóttu góðra
stunda með öðrum og þiggðu öll boð sem ber-
ast.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er margt sem gengur þér í
haginn þessa dagana. Bara tilhugsunin um vel-
gengni getur bjargað deginum, ef ekki vill bet-
ur. Þú ættir að heimsækja vini oftar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er yndislegt þegar fólk kann að
meta og samþykkir einstaka kosti þína. Mis-
skilningurinn er fljótur að verða til ef menn
þurfa að geta í einhverjar eyður.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft ekki að óttast að leggja
starf þitt undir dóm annarra. Hugsaðu málið
vel áður en þú lætur það eftir þér að eyða pen-
ingum í óþarfa.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert þekkt/ur fyrir líflegt ímyndunar-
afl sem þú getur notað bæði til að leysa og
skapa vandamál. Einhver nákominn á í vanda
sem enginn veit af.
Af sjónleysi, heilsuleysi, fótaveiki
og litlu verki skrifar Björn Ing-
ólfsson skemmtilega hugleiðingu
á Leirnum, póstlista hagyrðinga:
Í rannsóknum mínum í gær komst
ég að því að í Grýtubakkahreppi
voru 19 hreppsómagar 1881.
Ásigkomulagi þeirra var lýst með
ýmsu móti: Örvasa, hrumleg,
vesalingur, ófermdur, sjónlaus,
heilsuveik, fótaveik, verklítill,
tekin að hrymast. Sumir voru
talsvert yngri en ég er núna og
þess vegna fór ég að bera þessar
einkunnir við sjálfan mig. Komst
að því að ekkert passaði nema
helst þessar tvær síðustu.
Síðan að fór ég að frymast
í fyrstu og myndast og limast
er talsverður spölur.
Ég er tekinn og fölur
og held ég sé farinn að hrymast.
Eins og nærri má geta stóð
ekki á svari. Ármann Þor-
grímsson var fljótur til: Við að
lesa um ástand mannfólks í
Grýtubakkahreppi 1881 sem
Björn hefur verið að skoða vakn-
ar ósjálfrátt sú hugsun hvernig
það sé í dag bæði þar og annars
staðar. Eins og Björn beinir mað-
ur huganum fyrst að sjálfum sér.
Orðið gamalt úrelt skar
oftast fúll í sinni
og til skammar alls staðar
eiginkonu minni.
En Davíð Hjálmar yrkir þeim
til uppörvunar; maður sem fer
engar fjarlægðir nema skokk-
andi:
Þó að bætist ört við ár
úfið skap má laga:
Farðu á stökk sem fælinn klár
um fjöll og gróna haga.
Hjálmar Freysteinsson yrkir að
gefnu tilefni:
Metorðagirndar margur var
marki brenndur.
Færri verða forsetar
en frambjóðendur.
Er Sigrún Baldursdóttir var
spurð hvernig henni litist á for-
setaframbjóðendur í ár á fundi
Kveðanda svaraði hún:
Hugur minn og hjarta geymir
heita ósk og von.
Mig allar nætur ákaft dreymir
Ástþór Magnússon.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af sjónleysi, heilsuleysi,
fótaveiki og litlu verki
G
æ
sa
m
a
m
m
a
og
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
áf
ó
lk
H
ró
lfu
r
h
ræ
ð
ile
g
i
Fe
rd
in
a
nd
VARIÐ
YKKUR Á
HUNDINUM
EF ÞÚ ERT MEÐ SVONA
SKILTI ÞÁ ÞARFTU EKKI
EINU SINNI HUND
AF
HVERJU ERTU AÐ
HORFA Á
SJÓNVARPIÐ?
HVAÐ MEÐ
GÚLLÍVER?
LITLA
SYSTIR ER
FARIN AÐ
REKA Á
EFTIR MÉR
ÞAÐ ER FARIÐ
AÐ LÍÐA AÐ
LOKUM
JÓLAFRÍSINS
LOK JÓLAFRÍSINS
LÍÐA EKKI...
...ÞAU STÖKKVA Á MANN
HELGA,
HVER VAR
AÐ BANKA?
ÞAÐ ER
LÆKNIRINN
OKKAR
HANN SPYR HVORT
EITTHVERT OKKAR
SÉ VEIKT
MIKIÐ HLÝTUR
AÐ VERA LÍTIÐ AÐ
GERA HJÁ HONUM
HVAR ER
RUNÓLFUR?
HANN VANN
RÉTTINN TIL
AÐ FYLGJA
„HELLO KITTY” Í
ÞAKKARGJÖRÐAR-
SKRÚÐGÖNGUNNI
GERIR HANN SÉR GREIN
FYRIR ÞVÍ AÐ HANN VANN
RÉTT Á ÞVÍ AÐ GANGA MEÐ
BLÖÐRU Í SKRÚÐGÖNGUNNI?
BLÖÐRU?
ÞÚ ERT SVO
MIKLU STÆRRI
EN ÞÚ LÍTUR
ÚT FYRIR AÐ
VERA Í
SJÓNVARPINU
Hjarta borgarinnar hefur alltafverið gamla höfnin og næsta ná-
grenni. Icelandair Hótel Reykjavík
Marina í gamla Slipphúsinu við Mýr-
argötu gefur svæðinu nýtt líf og bind-
ur skemmtilega saman miðbæinn og
Grandann.
x x x
Allir Íslendingar tengjast sjónum áeinn eða annan hátt þó að fæstir
hafi migið í saltan sjó. Sjávarútvegur
hefur ætíð verið undirstaða búsetu í
landinu og mörg sveitarfélög hafa
lagt áherslu á að viðhalda þekkingu
um liðna tíma með söfnum eins og
Síldarminjasafninu á Siglufirði og
Sjóminjasafninu í Reykjavík.
x x x
Víkverji setti sig í spor ferðamannsog gekk um miðbæinn um ný-
liðna helgi. Minjagripabúðirnar vöktu
ekki sérstaka athygli og verðið fyrir
tebolla á kaffihúsum við Laugaveg og
Austurvöll kallaði ekki beint á göngu-
garpinn. Hins vegar togaði sjórinn í
og lífið við höfnina sveik hvorki hann
né aðra. Þar gegndu veitingahúsin á
svæðinu veigamiklu hlutverki.
x x x
Á árum áður fóru strákar í Vest-urbænum gjarnan niður á höfn
til þess að veiða í soðið. Veiðarfærin
voru ekki merkileg, snærisspotti og
öngull, og beita fékkst hjá nær-
stöddum sjómönnum. Meira þurfti
ekki til og aldrei fóru menn heim með
öngulinn í rassinum.
x x x
Þegar Víkverji gekk framhjá einuveitingahúsanna var kallað á
hann. Þar var gamall skólafélagi og
fljótlega bættist sá þriðji í hópinn.
Gamli tíminn á svæðinu var öllum
efst í huga en þeir áttu það líka sam-
eiginlegt að sjá ótal tækifæri við
höfnina til viðbótar við líflega starf-
semi. Á næsta veitingastað biðu
nokkrir jafnaldrar eftir því að fara á
sjóstöng og gönguhópur aldinna
Vesturbæinga hvíldi lúin bein á Slipp-
barnum í nýja hótelinu eftir menn-
ingargöngu meðal annars um göt-
urnar sem allar minna á sjó.
Mikilvægi hafnarsvæðisins fór ekki á
milli mála.
Víkverji
Orð dagsins: En nú varir trú, von og
kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er
kærleikurinn mestur. (I.Kor. 13, 13.)
DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011
Kíktu á
brúðkaupsdaga
í Smáralind
um helgina