Morgunblaðið - 27.04.2012, Síða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2012
Ítalski leikstjórinn, leikarinn og
kvikmyndaframleiðandinn Nanno
Moretti verður formaður dóm-
nefndar í aðalkeppni kvikmynda-
hátíðarinnar í Cannes í ár. Hátíðin
hefst 16. maí og lýkur hinn 27.
Í dómnefndinni verða, auk Mo-
rettis, palestínski leikstjórinn og
leikkonan Hiam Abbass, breski
leikstjórinn Andrea Arnold,
franska leikkonan Emmanuelle De-
vos, þýska leikkonan Diane Kruger,
franski fatahönnuðurinn Jean Paul
Gaultier, skoski leikarinn Ewan
McGregor, bandaríski leikstjórinn
Alexander Payne og haítíski leik-
stjórinn Raoul Peck.
AFP
Formaðurinn Nanno Moretti mun
leiða dómnefnd aðalkeppninnar í ár.
Moretti formaður
dómnefndar í að-
alkeppni Cannes
Opnunarmynd hátíðarinnar í ár
verður nýjasta kvikmynd leikstjór-
ans Wes Anderson, Moonrise King-
dom.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Í kvöld verður frumsýnd í Há-
skólabíói heimildarmyndin Bully,
Grimmd: sögur af einelti í íslenskri
þýðingu, sem vakið hefur mikla at-
hygli í Bandaríkjunum og víðar. Hún
tekur á alheimsvandamálinu um ein-
elti og áhrifum þess á börn í skóla-
kerfinu. Lee Hirsch er höfundur
myndarinnar en
hann varð sjálfur
fyrir einelti í barn-
æsku. „Mér
fannst rétti tíminn
kominn fyrir slíka
mynd. Enginn
hefur veitt þessu
athygli á þennan
hátt áður. Kvik-
myndin er sterkur
miðill og veitir
innsýn sem oft getur verið erfitt að
ímynda sér. Tilgangur myndarinnar
er að skapa umræðuvettvang þar sem
fólk getur velt þessu alvarlega vanda-
máli fyrir sér,“ segir Hirsch.
Úrræðaleysi skólayfirvalda
Myndin segir sögu nokkurra ung-
menna sem fylgt er eftir í kjölfar vo-
veiflegra atburða sem rekja má til
eineltis. Fjölskyldufaðir sem nýlega
hefur misst son sinn ákveður að til-
einka líf sitt baráttunni gegn einelti.
Hann sem aðrir mæta litlum skilningi
á vandamálinu og úrræðaleysi ein-
kennir viðbrögð skólayfirvalda. „Við
sýndum næstum 5000 krökkum þetta
í Noregi. Þau komu úr öðru umhverfi
en því sem sýnt er í myndinni en þau
náðu því algjörlega sem myndin hafði
fram að færa. Sumir komu fram grát-
andi og opnuðu sig eftir að þeir sáu
myndina. Það sýnir hversu mikilvægt
er að opna umræðuna um þessi mál,“
segir Hirsch.
Myndin er tekin upp af Hirsch
sjálfum. Hann var sem fluga á vegg
og fylgdi krökkunum eftir, allt frá
heimili þeirra í skólabílinn og inn á
skólalóðina. Hann segir börnin hafa
vanist sér fljótt. „Eftir smátíma voru
þau orðin leið á mér og hegðuðu sér
nákvæmlega eins og þau gera vana-
lega. Ég held að það sé vegna þess
hve vön börnin eru því að vera undir
eftirliti. Í dag eru myndavélar í skól-
um, skólabílum og ekki má gleyma
því að margir eru með myndavélar í
símanum.“
Skilningsleysi hinna fullorðnu
Myndin hefur vakið mikla athygli í
Bandaríkjunum og hefur verið sýnd
þar í eitt ár. „Heilu samfélögin hafa
farið saman á myndina. Hún var til
sýnis í Hvíta húsinu og nýlega sáu
7000 skólabörn í Kaliforníu myndina.
Hvarvetna hafa viðbrögðin verið með
ólíkindum góð.“
Hirsch segir vandamál barna sem
verða fyrir einelti ekki síður liggja í
skilningsleysi þeirra sem eldri eru,
kennara og skólayfirvalda. „Í mynd-
inni kemur margoft fram að börnin
vilja ekki opna sig vegna þess að það
hefur ekki verið tekið á vandamálinu
þegar það kom upp áður. Okkur sem
eldri erum hættir til að vilja gera lítið
úr vandamálunum. Hér vil ég alls
ekki gera lítið úr starfi kennara sem
er vandasamt og erfitt. Ekki má
gleyma því að það eru margir frábær-
ir aðilar inni í skólakerfinu sem taka á
þessum málum en á stundum skortir
meðvitund um það hversu alvarlegar
afleiðingarnar geta verið. Því hættir
sumum til að taka einelti sem létt-
vægri stríðni sem er eðlileg.“ Myndin
hefur sameinað margar stofnanir og
samtök í Bandaríkjunum sem berjast
gegn einelti.
„Markmið okkar er að sýna milljón
manns myndina í Bandaríkjunum.
Sem stendur eru 50 þúsund búnir að
sjá myndina. Auðvitað snýst þetta
ekki um að finna sökudólga. Myndinni
er fyrst og fremst ætlað að veita okk-
ur tækifæri til þess að draga lærdóm
sem samfélag. Ekki bara í Bandaríkj-
unum heldur um allan heim,“ segir
Hirsch.
„Það verða allir að sjá þessa bíó-
mynd“
Því má við bæta að Sena, dreifing-
araðili myndarinnar hér á landi, vill
leggja þessu mikilvæga málefni lið
með því að bjóða öllum þeim sem
koma að þessum málum, svo sem
Reykjavíkurborg, grunnskólum borg-
arinnar og félagsmiðstöðvum, upp á
upp á sérsýningar, afsláttarsýningar
og hópsýningar til að sem flestir sjái
myndina. Hægt er að hafa samband
við Guðmund Breiðfjörð hjá Senu
vegna þessa. Auk þess hefur leikarinn
Stefán Karl Stefánsson, stofnandi
Regnbogabarna, fjöldasamtaka um
eineltismál, boðist til að halda fyr-
irlestra á undan sýningum og stýra
umræðum að þeim loknum.
„Það verða allir að sjá þessa bíó-
mynd. Þótt hún sé bandarísk fjallar
hún um hluti sem eiga sér hliðstæðu á
Íslandi því einelti er ofbeldi án landa-
mæra. Þessi mynd á eftir að bjarga
mannslífum,“ segir Stefán Karl.
Frekari fróðleik um myndina má
finna á thebullyproject.com.
Eineltismynd grætir börn
Heimildarmyndin Bully verður frumsýnd í kvöld Segir frá afleiðingum og birtingarmyndum
eineltis Hefur vakið sterk viðbrögð í Bandaríkjunum og börn hafa komið grátandi af sýningum
Einelti Alex Libby, drengur sem orðið hefur fyrir einelti. Saga hans er m.a.
rakin í heimildarmyndinni Bully sem frumsýnd verður ı́ Háskólabíói ı́ dag.
Lee
Hirsch
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
THE AVENGERS 3D Sýnd kl. 4 - 7 - 10 (Power)
AMERICAN PIE: REUNION Sýnd kl. 10:20
21 JUMP STREET Sýnd kl. 5:45 - 8
HUNGER GAMES Sýnd kl. 7 - 10
LORAX 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 5
STERK BYRJUN, MANN
ÞYRSTIR Í MEIRA!
T.V. - Vikan/Séð og Heyrt
HHHH
HEIMURINN FYLGIST AGNDOFA MEÐ
DREPFYNDIN MYND SEM GEFUR
FYRSTU MYNDUNUM EKKERT EFTIR!
Fór beint á toppinn í USA
BRÁÐSKEMMTILEG OG LITRÍK MYND
FRÁ HÖFUNDUM AULINN ÉG
„FYNDNASTA MYND
SEM ÉG HEF SÉÐ Í
LANGAN TÍMA!“
- T.V., Kvikmyndir.is
HHHH
STÆRSTA OFURHETJUMYND
ALLRA TÍMA
Ð
„SVÖL,
SKEMMTILEG,
GRÍPANDI OG FYNDIN“
„ÞÆR GERAST VARLA
BETRI EN ÞETTA!“
- Tommi, Kvikmyndir.is
HHHH
HHHH
- J.W. Empire
HHHH
- J.C. Total Film
HHHH
- J.C. Variety
HHHH
- T.M. Hollywood Reporter
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
„ÞESSI MYND Á EFTIR AÐ BJARGA MANNSLÍFUM.“
-STEFÁN KARL STEFÁNSSON, LEIKARI
- T.V., KVIKMYNDIR.IS - D.M.S. MBL
- T.V., KVIKMYNDIR.IS
TOPPMYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG!
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
21 JUMP STREET KL. 8 - 10.10 14 / AMERICAN PIE KL. 6 - 8 12
BATTLESHIP KL. 10.10 12 / MIRROR MIRROR KL. 6 L
THE AVENGERS KL. 4 - 5 - 8 - 10.30 - 11 10
THE AVENGERS LÚXUS KL. 5 - 8 - 11 10
21 JUMP STREET KL. 5.30 - 8 - 10.30 14
MIRROR MIRROR KL. 3.20 - 5.40 L
AMERICAN REUNION KL. 8 - 10.30 12
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3.30 L
HUNGER GAMES KL. 8 12
SVARTUR Á LEIK KL. 11 16
GRIMMD: SÖGUR AF EINELTI KL. 5.45 - 8 - 10.15 10
21 JUMP STREET KL. 8 - 10.30 14
MIRROR MIRROR KL. 5.40 L
IRON SKY KL. 10.30 12
TITANIC 3D ÓTEXTUÐ KL. 5.15 10
HUNGER GAMES KL. 9 12
SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 16
- T.V., KVIKMYNDIR.IS