SunnudagsMogginn - 22.04.2012, Blaðsíða 12
12 22. apríl 2012
Mánudagur
Hörður Hilmarsson
Fór á nýja veitinga-
staðinn Snaps á
Hótel Óðinsvéum
um helgina. Góður
matur á sanngjörnu verði, góð
þjónusta og mjög skemmtileg
„atmosfera“. Mæli með honum.
Silja Úlfarsdóttir Er
á besta fyrirlestri
sem èg hef farid á
sem thjálfari!!! Life
changing svei mér
thá!
Ingólfur Þór-
arinsson Litla flug-
an þvílíkur hittari að
það hálfa væri nóg.
Miðvikudagur
Kristján Þorvalds-
son Æ, æ, æ …
Bubbi og lífið úti á
landi … Atvinnurek-
endur segja að
langbestu þrælarnir komi af
landsbyggðinni. Bubbi ætti að
gleðjast fyrir þeirra hönd
(þ.e.a.s. atvinnurekenda, Pálma
í Fons, Jóns Ásgeirs og fleiri vina
sem hafa gert það gott á mölinni
og þiggja eflaust ódýrt og gott
vinnuafl).
Fésbók
vikunnar flett
Nafnið á APS-C-myndflögunni minnir á
APS-filmusniðið sem ýmsir framleið-
endur sameinuðust um um miðjan tí-
unda áratuginn og þeir sem muna á
annað borð eftir filmuvélum kannast
eflaust við það. Filman var 24 mm á
breidd og myndirnar svo misstórar eft-
ir skurðinum á þeim í framköllun (sem
sé: stækkað var uppúr myndinni).
APS-C myndflagan er 25,1 sinnum
16,7 mm með hlutföllin þrír á móti
tveimur.
Myndflaga í fullri stærð, á við þá
sem atvinnuljósmyndarar nota, er á
við 35 mm filmu. Slíkar flögur kalla
eðlilega á stærri myndavélar en Sony-
vélina hér til hliðar og kosta líka skild-
inginn.
Allir helstu framleiðendur framleiða
nú líka vélar með APS-C-flögu, enda
eru þær (tiltölulega) ódýrar, nettar og
meðfærilegar og skila fínum myndum.
Það er nefnilega ekki bara mynd-
flagan sem skiptir máli heldur líka
hugbúnaðurinn í vélinni, linsan og svo
vitanlega hæfni ljósmyndarans.
Vélar í Alpha-línu Sony nota ekki hefð-
bundið speglakerfi heldur hleypir sér-
stakur spegill ljósi í gegnum
sig og fyrir vikið er
hægt að taka myndir
hraðar en almennt
með speglavélum
(SLR-vélum) og þær
eru fljótari að ná
fókus. Þær eru líka
nettari og léttari en
myndavélar í sam-
bærilegum verð-
flokki.
Myndflagan er veru-
lega bætt frá síð-
ustu NEX-5-vél, tek-
ur nú 16 milljón díla
myndir, allt að 10
ramma á sekúndu og
ljósnæmið er komið
upp í ISO 100 til 25.600. Vélin
er ekki nema 0,02 sekúndur að
smella af mynd frá því þrýst er á töku-
hnappinn.
Ég veit ekki með þig, kæri lesandi, en mér finnst fátt
skemmtilegra en snertiskjár og ástæða til að fagna því að
snertiskjárinn á bakinu auðveldar til muna að breyta still-
ingum á vélinni, stilla fókus, lýsingu og þar fram eftir göt-
unum.
Boddíð á vélinni er
úr magnesíumblöndu
sem gefur henni traust-
vekjandi áferð. Eitt það fyrsta
sem maður hissar sig á er hvað hún
er létt og meðfærileg, en linsan sem fylgir, 18-55
mm F3,5 til 5,6, tekur í. Það er ekki innbyggt flass í
vélinni, en með fylgir nett flass sem sett er á vélina
og fer vel að hafa það alltaf á ef vill.
Gæðavél fyrir almenning
Sony er með helstu framleiðendum á svonefndum „prosumer“-myndavélum,
gæðavélum fyrir almenning sem hafa ýmsa kosti véla fyrir atvinnumenn.
Dæmi um það er ný A-línuvél frá Sony: Sony Alpha NEX-5N.
Græjur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Reika svipir fortíðar
APS snýr aftur í
nýrri mynd