SunnudagsMogginn - 22.04.2012, Qupperneq 47
22. apríl 2012 47
Listakonan Kristín Guðjónsdóttirlést 21. apríl 2007 aðeins fertugað aldri eftir margra ára veik-indi. Hún var afkastamikil lista-
kona, hélt einkasýningar og tók þátt í
samsýningum hér á landi, í Bandaríkj-
unum og víða um heim, en hún bjó vest-
an hafs mestallan sinn myndlistarferil.
Fyrir stuttu kom út bókin Stína, sem
helguð er listferli Kristínar.
Sterkur íslenskur svipur
Kristín lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Hamrahlíð vorið 1987 og nam
læknisfræði við Háskóla Íslands í eitt ár
en sneri sér síðan alfarið að listinni og
stundaði nám í Myndlistar- og hand-
íðaskóla Íslands og síðan í California Col-
lege of Arts and Crafts. Hún settist að í
Bandaríkjunum með Davíð Aðalsteins-
syni eiginmanni sínum, sem er prófessor
í stærðfræði við Háskóla Norður-
Karólínu.
Verk Kristínar þykja frumleg og bera
sterkan íslenskan svip. Hún tengdi sam-
an keramík, gler og málm og notaði mik-
ið form tengd sjó og sjómennsku, t.d.
bátsform, baujur, kúlur og sjávarbarið
fjörugrjót. Í bókina eru fjölmargar ljós-
myndir af verkum hennar og frá sýn-
ingum, auk texta um myndlist hennar og
ævi og frásagna samferðamanna hennar í
Bandaríkjunum.
Texti bókarinnar er á íslensku og
ensku, en höfundar eru Kristín Rósa Ár-
mannsdóttir, Jón Proppé, Ursula Goe-
bels-Ellis, Clifford Rainey, Mary Bayard
White og Kristín sjálf. Myndvinnslu ann-
aðist Kristján Guðni Pétursson, sem tók
einnig talsvert af myndum í bókina, en
flestar myndir í henni eru þó teknar af
Kristínu sjálfri.
Ritstjóri bókarinnar er Kristín Rósa
Ármannsdóttir, frænka Kristínar sem
kölluð er Rósa, en hún segir að hug-
myndina að bókinni og drifkraftinn
kominn frá Bergþóru Ragnarsdóttur,
móður listakonunnar. „Ég bauð fram að-
stoð mína þegar hún nefndi þetta við
mig, en við vissum auðvitað ekkert hvað
við vorum að fara út í varðandi bókaút-
gáfu,“ segir Rósa, „en við fengum ein-
valalið með okkur til að vinna verkið og
það hefur unnist vel, því í vor eru liðin
tvö ár frá því við byrjuðum að þreifa fyrir
okkur hverja við vildum hafa með í verk-
inu.“
Eins og fram kemur hér að ofan tók
Kristín flestar myndanna í bókinni og
Rósa segir að hún hafi verið iðin við að
ljósmynda verk sín og skrásetja þannig,
en meirhluti verla hennar er vestan hafs
þar sem starfsferill hennar var að mestu
leyti. „Hún Stína byrjaði snemma að
mynda sín verk á stafræna myndavél og
nýtti þær myndir á vefsíðu sem hún kom
sér upp strax 1996 og notaði til að kynna
sig og verk sín með góðum árangri,“ seg-
ir Rósa en síðuna má sjá á slóðinni
www.art.net/stina/.
Framsýn í endurvinnslu
Á þessari vefsíðu Kristínar stendur á
áberandi stað að verk hennar séu að 99%
úr endurunnum efnivið og Rósa segir að
hún hafi lagt mikla áherslu á endur-
vinnslu. „Hún var framsýn í sinni endur-
vinnsluhugsun og á undan sinni samtíð
með það.“
Í inngangi bókarinnar, sem Rósa skrif-
ar, getur hún um það að Ísland hafi verið
áberandi í verkum hennar og á tímabili
hafi hún nýtt form tengd sjó og sjó-
mennsku, t..d. bátsform, baujur, kúlur
og sæbarið grjót. „Ætli það sé ekki
heimþráin sem brýst út í formum
verka minna sem ég sæki í fjörur Ís-
lands,“ sagði Kristín í viðtali við Morg-
unblaðið í ágúst 1998, en þá sýndi hún
höggmyndir í Gerðarsafni í Kópavogi.
Á þeim tíma var hún aðallega að vinna
með fjörugrjót, en nýtti sér annars
ýmis efni við listköpun, aukinheldur
sem hún notaði iðulega gamla hluti
sem hún fann á víðavangi. Í viðtalinu
við blaðið segir hún að heimþráin til
Íslands hafi brotist út í þeim verkum
sem hún sýndi þá: „Ég byggi verk mín í
raun á landinu mínu, menningu þess
og fortíð.“
Kristín Guðjónsdóttir lést 21. apríl 2007 aðeins fertug að aldri. Hún var afkastamikil, hélt einkasýningar og tók þátt í samsýningum en hún bjó vestan hafs mestallan sinn feril.
Morgunblaðið/Ásdís
Byggt á landinu, menningu þess og fortíð
Listakonan Kristín Guðjónsdóttir, Stína, féll frá
aðeins fertug að aldri fyrir fimm árum. Fyrir til-
stuðlan móður hennar hefur komið út bók þar
sem listferli Stínu eru gerð ýtarleg skil.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Frá Seekers-sýningunni í Wriston-sýningarsölunum í Lawrence-háskóla, Appleston í Wis-
consin í október 2006, en það var síðasta einkasýning Kristínar Guðjónsdóttur.