Morgunblaðið - 18.05.2012, Side 2

Morgunblaðið - 18.05.2012, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. www.golfkortid.is Einstaklingskort 9.000 kr. Fjölskyldukort 14.000 kr. golfvöllur - eitt kort31 Dráttarvél með skóflu er heillandi og nytsamlegt tæki, hvort sem er í fullri stærð eða smækkaðri útgáfu. Þessir feðgar kynntu sér eina slíka í Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinum í gær og mátti vart á milli sjá hvor var áhugasamari, faðirinn eða sonurinn. Hvort faðirinn hefur reynslu af notkun dráttarvélar með skóflu fylgir ekki sögunni en í það minnsta gat hann leiðbeint syninum í þeim efnum og bar sig fagmannlega að. „Svona virkar þetta, kúturinn minn“ Morgunblaðið/Ómar Baldur Arnarson baldura@mbl.is Á fyrstu þrem mánuðum ársins voru 460 einkahlutafélög skráð á Íslandi eða 19 fleiri en á sama tíma í fyrra. Þau eru hins vegar 9 færri en fyrstu þrjá mánuði ársins 2010, árið sem stjórnvöld hafa sagt að hafi markað endalok samdráttarskeiðsins. Munurinn er enn meiri ef farið er aftur til ársins 2009 en þá voru 690 einkahlutafélög skráð á tímabilinu. Fleiri félagagerðir auka mun Séu fjögur félagsform lögð saman, einkahlutafélög, sameignarfélög, samlagsfélög og samlagshlutafélög er summan á fyrstu þrem mánuðum þessa árs 569, borið saman við 545 á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Árið 2010 litu 720 félög í þessum flokkum dags- ins ljós á tímabilinu og eru þau því 27% færri í ár. Árið 2009 var nánast eins en þá var 721 félag skráð í ein- hverjum þessara flokka. Spurður út í þá staðreynd að nýj- um félögum fjölgi ekki meira en þetta segir Gylfi Arnbjörnsson, for- seti Alþýðusambands Íslands, að stofnun félaga sé ekki einhlítur mælikvarði á atvinnuástandið. Til dæmis hafi verið girt fyrir skatta- hlunnindi sem fylgdu einkahluta- félögum og margir nýttu sér fyrir efnahagshrunið. Hitt sé ljóst að undirliggjandi vöxtur í hagkerfinu „sé langt frá því að vera nægur“ til að koma atvinnu- leysinu niður í viðunandi horf, ef frá sé talinn vöxtur greina sem njóti góðs af veiku gengi krónunnar. Mörg fyrirtæki í þrengingum „Lunginn af fyrirtækjum er með neikvætt eiginfé, þar með talin fyrir- tæki í útflutningi. Fyrirtæki sem tapa eiginfé geta ekki aukið fram- leiðsluna þrátt fyrir hagstæð skilyrði enda kostar það peninga að vaxa. Það er einnig mikilvægt fyrir fyrirtækin að almenningur hafi kaupgetu sem hann hefur ekki þegar gengi krónunnar er svona veikt. Allt leggst þetta á eitt um að við sjáum hvorki uppbyggingu né viðunandi vöxt í atvinnulífinu. Það ár fjarlægist þegar þess má vænta að staðan verði orðin viðunandi. Seðlabankinn bendir á að atvinnu- leysi fari minnkandi. Það er rétt en þó því miður fyrst og fremst vegna þess að fólk er að fara út af vinnu- markaði, missa bótarétt eða flytja til útlanda, en ekki vegna þess að störf- um sé að fjölga. Að óbreyttu verður atvinnuleysi langt yfir því sem getur talist viðunandi á árunum 2014-2015. Þetta stefnir því í að verða eitt lengsta samfellda atvinnuleys- istímabil Íslandssögunnar. Okkur finnst að það eigi að vera tilefni að- gerða af hálfu stjórnvalda. Því miður sjáum það hins vegar ekki.“ Til marks um ládeyðu Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, tekur undir að meira þurfi til. „Þessar tölur lýsa þeim doða sem er enn þá í atvinnulífinu. Stofnun fyrirtækja er ekki farin að aukast og það er merki um litla hreyfingu í efnahagslífinu. Þetta er í samhengi við aðrar tölur sem vitna um stöðnun á vinnumarkaði og litla fjárfestingu. Ef hagvöxtur heldur áfram að vera aðeins á bilinu 2-3% mun at- vinnuleysið ekki fara niður í við- unandi tölu. Við höldum aðeins í horfinu og ríkið mun áfram telja sig þurfa að skera niður og hækka skatta. Störfum fjölgaði ekkert 2010- 2011 og voru þau 167.300 bæði árin. Fá ný félög að fæðast í hagkerfinu  Ríflega fjórðungi færri félög í fjórum lykilflokkum skráð á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en 2010  Forseti ASÍ óttast að nokkur ár séu eftir af einu lengsta atvinnuleysisskeiði Íslandssögunnar Gylfi Arnbjörnsson Vilhjálmur Egilsson Í gær var tekin fyrsta skóflustunga að nýju hjúkrunar- heimili á Nesvöllum í Reykjanesbæ. Fulltrúar elstu og yngstu kynslóðar í Reykjanesbæ sáu sameiginlega um að taka skóflustunguna að viðstöddum gestum. Eftir athöfn- ina kynnti bæjarstjórn Reykjanesbæjar framkvæmdina og bauð gestum upp á kaffi og rjómatertu. Framkvæmdir við bygginguna hófust formlega í gær, byggt verður nýtt hjúkrunarheimili fyrir 60 íbúa en mögu- leikar eru á frekari stækkun í framtíðinni. Nesvallasvæðið hentar vel fyrir aldraða íbúa enda er það staðsett í miðju sveitarfélagsins og sérstaklega valið með tilliti til þarfa aldraðra íbúa. Hjúkrunarheimilið verður staðfært að þörfum nú- tímans. Þar er lögð áhersla á góð einkarými fyrir hvern og einn en byggingin mun tengjast við þjónustumiðstöð og ör- yggisíbúðir á Nesvöllum. Að sögn Árna Sigfússonar bæjarstjóra fagna þau þess- um áfanga í uppbyggingu á öldrunarþjónustu sveitarfé- lagsins, sem verður kærkomin viðbót við þá góðu þjónustu sem í boði er fyrir eldra fólk í Reykjanesbæ. aslaug@mbl.is Fyrsta skóflustungan að nýju hjúkrunarheimili Samtaka Tvær kynslóðir tóku skóflustunguna í dag.  Kærkomin viðbót við þá góðu þjónustu sem fyrir er Svala Björgvins- dóttir og félagar hennar í hljóm- sveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtæk- isins Smart sem sænski fatafram- leiðandinn WeSC sá um hönnun á. Auglýsingin kom út í gær en hún var tekin upp í Los Angeles í Bandaríkjunum fyrr á árinu. Sænski leikarinn Peter Stormare leikur einnig í auglýsingunni sem og rapparinn Lady Tigra, plötusnúð- urinn og tónlistarmaðurinn Pase Rock og myndlistarkonan Vanessa Prage. Steed Lord og smábíll Svala Björgvinsdóttir  Hljómsveitin í aug- lýsingu fyrir Smart Skannaðu kóðann til að horfa á aug- lýsinguna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.