Morgunblaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2012 Sími 568 5170 Góð þjónustaFagmennskaGæðavörur Gáfu í frekar en að draga úr Grettir segir það líka hafa verið gæfuspor að þegar afleiðingar efna- hagskreppunnar skullu á atvinnulíf- inu afréðu hann og Benedikt að halda fullum dampi. „Við ákváðum að vera ekki með neitt væl. Þó að það hafi kallað á meira umstang en áður, og erfiðara verið að koma greiðslum til birgja pöntuðum við allar okkar venjulegu vörur, fylltum allar hillur og gættum þess að eiga allt til sem viðskiptavini okkar gæti vanhagað um. Okkur er annt um að okkar kúnnar viti að hér geta þeir fundið góða vöru og lendi ekki í neinu ves- eni.“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Velgengni „Þegar verst lét í dýpstu lægðum kreppunnar misstum við kannski 8-10% af sölu, en ekki 30, 40 og jafn- vel 50 eða 60% eins og aðrir horfðu upp á. Fyrir okkur var bankahrunið því meira eins og klapp á kinnina en kjafts- högg,“ segir Grettir (t.v.). Með honum á myndinni er meðeigandi hans Benedikt Emil Jóhannsson. Hagnaður bandarísku stórversl- anakeðjunnar Wal-Mart jókst um 10% á fyrsta ásfjórðungi. Þetta kom fram í rekstrartölum sem sam- steypan birti á fimmtudag, að því er Wall Street Journal greinir frá. Hagnaðartölur voru einnig sterk- ar hjá Wal-Mart utan Bandaríkj- anna og heildartekjur jukust um 8,5%. Sala jókst um 8,6% og nam alls 112,3 milljörðum dala. Er þessi árangur umfram það sem spáð hafði verið og nam hagn- aðurinn 1,09 dölum á hlut. Wal- Mart reiknar með hagnaði upp á 1,13 til 1,18 dali á hlut á öðrum fjórðungi. Árangurinn má m.a. rekja til aukins streymis viðskiptavina í verslanirnar og að upphæð hverrar sölu hefur farið hækkandi. Vöxt- urinn var svipaður í öllum vöru- flokkum nema afþreyingarvöru. Þetta er þriðji fjórðungurinn í röð þar sem sölutölur Wal-Mart eru á uppleið. Fyrirtækið hefur lagt aukinn kraft í að lækka vöruverð m.a. til að bregðast við þeirri hug- arfarsbreytingu hjá neytendum að Wal-Mart sé ekki endilega alltaf með besta verðið. AP segir Wal-Mart hafa tekist að snúa rekstrinum rækilega við eftir að hafa orðið illa fyrir barðinu á efnahagskreppunni. Lágtekjuhóp- ar, sem tekið höfðu á sig mikinn skell s.s. vegna aukins atvinnuleys- is, mynda stóran kjarna í við- skiptavinahópi verslananna. ai@mbl.is AFP Uppgangur hjá Wal-Mart

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.