Morgunblaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2012
Hinn bangsalegi tengda-mömmudraumur JasonSegel getur verið af-skaplega skemmtilegur
þegar hann er ekki á væmnustu still-
ingu en í þessari mynd ber heldur
slakt handritið hann ofurliði. Segel
getur reyndar sjálfum sér um kennt
því hann skrifaði handritið ásamt
leikstjóra myndarinnar. Það eru
ágætissprettir í myndinni af og til en
hægagangur og óþarfir útúrdúrar
bera hana á endanum ofurliði.
Kannski átti þetta aldrei að vera
rómantísk gamanmynd heldur
raunsæisdrama með smáskvettu af
gríni og rómantík, hver veit? Það
breytir því þó ekki að skemmt-
anagildið er heldur lítið. Segel og
Stoller hafa áður unnið saman, að
hinni bráðskemmtilegu Forgetting
Sarah Marshall. Segel skrifaði hand-
ritið að henni einn, Stoller leikstýrði.
Það gafst betur.
Í myndinni segir af kærustupari í
San Fransisco, Tom og Violet, sem
trúlofa sig eftir árslangt samband og
vilja halda brúðkaupið eins fljótt og
auðið er. Violet býðst þá rannsókn-
arstaða í sálfræði við háskóla í Ann
Arbour í Michigan. Ákveða þau Tom
að flytja þangað í kuldann og fresta
brúðkaupinu um óákveðinn tíma.
Tom segir upp starfi sínu sem yf-
irkokkur á flottum veitingastað og
tekur að sér ómerkilegt starf á sam-
lokubúllu á nýja staðnum. Óhamingj-
an hellist yfir hann, draumarnir
brostnir en Violet er alsæl og gengur
allt í haginn. Dvölin í Ann Arbour
lengist, Tom verður að hálfgerðum
villimanni og sambandið fer út um
þúfur. Ekkert brúðkaup og almennt
volæði. En öll él birtir upp um síðir.
The Five-Year Engagement kemst
aldrei almennilega í gang, lægðirnar
fleiri en hæðirnar sem er miður. Göt-
ótt handrit og þunn saga kemur í veg
fyrir að viðkunnanlegir leikararnir
fái að njóta sín. Mörg atriði sem ef-
laust eiga að vera drepfyndin eru það
ekki og hefðu betur ratað í rusla-
tunnu klippara. Það er úr litlu að
moða, fyrirhuguðu brúðkaupi sem
ekkert verður af og maður spyr sig
hvaða máli það skipti hvort og hve-
nær þetta brúðkaup verður haldið.
Hverju breytir það? Engu. Sem gerir
grunnhugmyndina heldur slaka.
Myndin er þó ekki alslæm. Leik-
arar standa sig vel og bjarga því sem
bjargað verður. Myndin er því ekki
algjör tímasóun þó hún sé í lengra
lagi, 124 mínútur. Segel nær nokkr-
um sinnum að kitla hláturtaugar
áhorfenda, langbestur þegar hann er
í hvað mestu rugli og geðshræringu.
Má þar nefna ágætisatriði þar sem
frosin stóratá kemur við sögu og Se-
gel vaknar ber að neðan í snjóskafli,
sannarlega kominn á ystu nöf. Því
miður er ekki stærri hluti mynd-
arinnar á þessum súrrealísku grín-
nótum. Blunt er sjarmerandi að
vanda sem hin breska Violet en hlut-
verkið býður ekki upp á mikil tilþrif í
gamanleik. Rhys Ifans er því miður
illa nýttur, sá velski afbragðsleikari.
Sumsé heldur slök mynd sem hefði
orðið miklu betri ef lökustu atriðin
hefðu verið látin fjúka.
Rómó Tom biður Violet í kvikmyndinni The Five-Year Engagement.
Bangsi getur
gert betur
Smárabíó, Laugarásbíó
og Borgarbíó
The Five-Year Engagement bbmnn
Leikstjóri: Nicholas Stoller. Aðal-
hlutverk: Jason Segel, Emily Blunt,
Chris Pratt og Rhys Ifans. Bandaríkin,
2012. 124 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Fór beint á toppinn í USA
BRÁÐSKEMMTILEG OG LITRÍK MYND
FRÁ HÖFUNDUM AULINN ÉG
STÆRSTA OFURHETJUMYND
ALLRA TÍMA
„SVÖL,
SKEMMTILEG,
GRÍPANDI OG FYNDIN“
„ÞÆR GERAST VARLA
BETRI EN ÞETTA!“
- Tommi, Kvikmyndir.is
HHHHHHHH
- J.W. Empire
HHHH
- J.C. Total Film
HHHH
- J.C. Variety
HHHH
- T.M. Hollywood
Reporter
HHHH
- T.V. Séð og Heyrt
THE DICTATOR Sýnd kl. 4 - 6 - 8 - 10
THE FIVE YEAR ENGAGEMENT Sýnd kl. 8
THE RAID Sýnd kl. 10:25
THE AVENGERS 3D Sýnd kl. 4 - 7 - 10
LORAX 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 4 - 6
BRÁÐSKEMMTILEG MYND FRÁ
FRAMLEIÐENDA BRIDESMAIDS
OG LEIKSTJÓRA
FORGETTING SARAH MARSHALL
SPREN
GHLÆ
GILEG
MYND
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐI OKKUR BORAT
KEMUR EIN FYNDNASTA MYND
ÁRSINS ÞAR SEM SASHA BARON
COHEN FER Á KOSTUM Í HLUTVERKI
KLIKKAÐASTA EINRÆÐISHERRA
ALLRA TÍMA
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
SMÁRABÍÓ
HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
THE DICTATOR KL. 4 - 6 - 8 - 10 12
THE DICTATOR LÚXUS KL. 4 - 6 - 8 - 10 12
THE FIVE YEAR ENGAGEMENT KL. 8 - 10.40 12
LOCKOUT KL. 8 12
HOW I SPENT MY SUMMER VACATION KL. 10.10 16
21 JUMP STREET KL. 5.40 - 8 - 10.30 14
MIRROR MIRROR KL. 3.30 L
LORAX - ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 - 5.45 L
HUNGER GAMES KL. 5 12
- T.V., KVIKMYNDIR.IS
THE DICTATOR KL. 6 - 8 - 10 12
THE 5 YEAR ENGAGEMENT KL. 5.45 - 8 12
LOCKOUT KL. 10.15 12
- V.J.V., SVARTHÖFÐI.IS
- E.E. - DV.
-Þ.Þ., FT/SVARTHÖFÐI.IS
LOKAÐ 18. - 23. MAÍ