Morgunblaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 14
SVIÐSLJÓS Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Ásmundi Friðrikssyni, bæjarstjóra í Garði, var sagt upp störfum á auka- bæjarstjórnarfundi sveitarfélagsins í fyrrakvöld. Uppsögn hans var sam- þykkt með fjórum atkvæðum nýs bæjarstjórnarmeirihluta N- og L- lista á móti þremur atkvæðum D- lista. Á fundinum var m.a. fjallað um fundargerð skólanefndar. Hinn nýi meirihluti í bæjarstjórn var mynd- aður eftir að Kolfinna S. Magnús- dóttir bæjarfulltrúi sagði sig frá meirihlutasamstarfi við D-lista í síð- ustu viku. Í samtali við vef Morg- unblaðsins sagði Kolfinna eina af ástæðum slitanna þá að pólitík ætti ekki að koma nærri þeim ákvörðun- um sem teknar væru um skólamál í Garði, þ.e. starfsemi Gerðaskóla, grunnskólans í bænum. Á fundinum tók nýkjörinn forseti bæjarstjórnar, Jónína Holm, orðið af Ásmundi þegar umræður voru um fundargerð skólanefndar, sendi hann til sætis og lokaði fundinum sem var fjölsóttur af bæjarbúum. Við það hitnaði fundargestum í hamsi, hróp voru gerð að bæjar- stjórninni og m.a. gerð krafa um að haldinn yrði borgarafundur. Mun Jónína þá hafa spurt hvort kalla þyrfti til lögreglu. Þegar umræðum um fundargerð skólanefndar lauk var bæjarbúum hleypt aftur inn í fundarsal. „Núna verður bænum stjórnað af kennarastofunni“ Ásmundur segist hafa verið að ræða um skýrslu sem mennta- og menningarmálaráðuneytið lét vinna um Gerðaskóla, Úttekt á starfsemi Gerðaskóla sem skilað var í mars sl, þegar Jónína stöðvaði umræðurnar og lokaði fundinum. „Hún er kennari við skólann, fagstjóri í sérkennslu, og hún er gagnrýnd mjög harkalega í þessari skýrslu,“ segir Ásmundur. „Ég var að veifa þarna bréfum frá þrettán fjölskyldum í bænum sem voru að kvarta yfir framkomu henn- ar í þeirra garð og þá stoppaði hún umræðurnar og rak alla út.“ Ásmundur segir þetta eitt af vandamálunum í Gerðaskóla. „Fyrir Garðmenn þurfti enga skýrslu, það vita allir hvað er að í þessum skóla. Ég gaf mig út fyrir það að ætla að standa í báðar lappir í þessu máli, alla leið til enda af því að þarna eru stórar fjölskyldur á bak við sem ráða orðið skólanum, skólinn er fyrir þær en ekki börnin. Það kemur bara í ljós núna að þegar við vorum alveg að landa þessu máli þá er ekki þrek í samfélaginu til þess að klára það. Núna verður bænum stjórnað af kennarastofunni, forseti bæjar- stjórnar er fagstjóri sérkennslu og fær harkalega útreið í þessari skýrslu. Og Kolfinna er fyrrverandi kennari við skólann og hinir tveir (í bæjarstjórnarmeirihluta, innsk. blm.) eru eiginmenn kennara og það er ekki líklegt að þetta fólk fari eftir skýrslunni þar sem sagt er að það þurfi að segja upp öllu stjórnunar- teymi skólans. Annar deildarstjórinn þar er í öðru sæti á L-lista, sem var að komast í meirihluta. Og ég hef bara miklar áhyggjur af því að þessi byrjun þeirra segi það að þau ætli ekki að klára þetta,“ segir Ásmund- ur. Í skýrslunni komi fram mjög ákveðin ábending um það að skoða verði hvort skólanefndin geti starfað áfram, í ljósi pólitískra ástæðna. Í skýrslunni segir orðrétt: „Mikilvægt er að stjórnendateymið tengist ekki pólitískum fylkingum innan sveitar- félagsins“. Segir Oddnýju framlengja hönd sína í meirihlutanum Ásmundur segir skólanefndina hafa haldið einn fund og rætt hafi verið um þá fundargerð í fyrrakvöld. „Þar kemur fram að allir skólanefnd- armenn eru tilbúnir að hætta og skapa svigrúm til að fá fólk að sem er ekki tengt pólitíkinni. Þá kemur þessi nýi meirihluti með þá tillögu að Eiríkur Hermannsson, eiginmaður Oddnýjar Harðardóttur fjármála- ráðherra, verði næsti formaður skólanefndar. Við vitum það að Oddný Harðardóttir stendur á bak við allan þennan gjörning og þau gera aldrei neitt svona nema að hafa samband við hana, þau tóku sér fundarhlé til að hringja í Oddnýju til að spyrja hvernig þau ættu að snúa sér í umræðunum,“ segir Ásmundur en fjármálaráðherrann er varabæj- arfulltrúi í Garði. „Þarna sendir hún eiginmann sinn inn, er að framlengja hönd sína í meirihlutanum með því að senda inn Eirík Hermannsson, fyrrverandi fræðslustjóra á Suðurnesjum, sem formann skólanefndar. Hann er ný- hættur sem fræðslustjóri í Reykja- nesbæ og við höfum miklar áhyggjur af því að mjög gott samstarf okkar við fræðsluskrifstofuna muni taka al- gjöra kúvendingu eftir að Eiríkur komi. Og þær ábendingar í skýrsl- unni, að við eigum að auka samstarf okkar við fræðsluskrifstofuna, verði á hinn veginn. Mér finnst öll þessi framkoma nýja meirihlutans sýna það að þau munu ekki taka á skýrsl- unni,“ segir Ásmundur. Fundarmönnum heitt í hamsi  Bæjarstjóra í Garði var sagt upp störfum á bæjarstjórnarfundi  Forseti bæjarstjórnar sendi hann til sætis þegar rætt var um úttekt á Gerðaskóla og lokaði fundinum fyrir gestum sem heitt var í hamsi Hitafundur Frá fundi bæjarstjórnar í Garði í fyrrakvöld, búið að loka fundinum og bæjarbúar fylgjast með í gegnum gler, afar ósáttir. Ljósmynd/Víkurfréttir 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2012 S HELGASON steinsmíði síðan 1953 SKEMMUVEGI 48 ▪ 200 KÓPAVOGUR ▪ SÍMI: 557 6677 ▪ WWW.SHELGASON.IS SAGAN SEGIR SITT „Ásmundur var mjög ómálefna- legur, var með persónuníð, ókurteis og fólk var með frammí- köll. Hann beindi máli sínu til fund- armanna og ég ákvað á þeim tímapunkti að stoppa hann því þetta var ekki sæmandi,“ segir Jón- ína Holm, forseti bæjarstjórnar, spurð að því af hverju hún hafi lok- að fundinum. Jónína segir alrangt að hún sé gagnrýnd harðlega fyrir störf sín, í úttekt á starfsemi skól- ans. „Þetta hlýtur að teljast allund- arleg starfsmannastjórnun fyrrver- andi bæjarstjóra, að ég fái upplýsingar um umrædd bréf á opnum bæjarstjórnarfundi. Í ljósi þess dreg ég sannleiksgildi þeirra í efa,“ segir Jónína um bréfin sem Ásmundur nefnir. Að auki séu kenn- arar bundnir trúnaði gagnvart nem- endum skólans og aðstandendum þeirra og Ásmundur hljóti að vita það. Jónína bendir á að á síðasta fundi skólanefndar hafi allir fulltrú- ar, úr D-, L- og N-lista, verið sam- mála um að farið yrði í úttekt á skólastarfinu og gerð aðgerðaáætl- unar um úrbætur. „Það er bókað eftir okkur, undir liðnum fund- argerð skólanefndar, að svo verði, þannig að ég skil ekki af hverju er verið að toga þetta út í eitthvað annað en það er,“ segir Jónína. – Í skýrslunni stendur að mikil- vægt sé að stjórnendateymi tengist ekki pólitískum fylkingum innan sveitarfélagsins. „Já, og það var samþykkt í skóla- nefnd, af flokkunum þremur, að svo yrði. Að aðgerðaáætlunin verði unnin af fræðslustjóra og verðandi skólastjóra og að bæjarstjórnin átti ekki að koma þar að og gerir það ekki,“ segir Jónína. „Auðvitað vilj- um við hag skólans sem bestan,“ bætir hún við. Hvað uppsögn Ásmundar varðar segir Jónína hana eðlilega í ljósi þess að hann tilheyri ekki nýjum meirihluta. Ókurteisi og frammíköll FORSETI BÆJARSTJÓRNAR SVARAR ÁSÖKUNUM Jónína Holm Sjö ára gömul stúlka var flutt á slysadeild í gær eftir að hafa fengið golfkúlu í andlitið við Ell- iðavatn þar sem hún var að veiða síli með jafn- öldrum sínum. Að sögn afa hennar, sem ekki vill láta nafns síns getið, voru tveir ungir menn um tvítugt að slá golf- kúlur út í vatnið og hæfði ein þeirra stúlkuna í vörina þannig að sprakk fyrir. Við það stungu mennirnir af á bíl. Sauma þurfti fjögur spor í vör stúlkunnar utanverða og tvö í hana innanverða. Atvikið átti sér stað um kl. tvö síðdegis í gær. Móðir stúlkunnar fór með hana á slysadeild og var málið tilkynnt lögreglu sem tók skýrslu. Afi stúlkunnar sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að hann vildi segja frá atvikinu þannig að það yrði öðrum víti til varnaðar. Sló golfkúlu í andlit- ið á sjö ára stúlku Golfkúlur eiga heima á golfvöllum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.