Morgunblaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 139. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Áfall fyrir Kennedy-fjölskylduna
2. Erfitt að halda andliti nálægt Cohen
3. Blekktu með skóauglýsingum
4. Tískuslys Cörlu Bruni
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Seinustu tónleikar tónleikarað-
arinnar Kaffi, kökur og rokk og ról
verða haldnir á þriðjudaginn, 22. maí,
kl. 20.30, í húsnæði SÁÁ, Efstaleiti 7.
Fram koma hljómsveitirnar Langi Seli
og Skuggarnir og Retrobot.
Langi Seli og Retro-
bot leika í húsi SÁÁ
Bandaríski
söngvarinn og
lagahöfundurinn
James Taylor
heldur tónleika í
kvöld kl. 20 í Eld-
borgarsal Hörpu.
Taylor hefur hlot-
ið fimm Grammy-
verðlaun og var
limaður inn í Frægðarhöll rokksins
árið 2000. Af vinsælum lögum með
honum má nefna „You’ve Got A
Friend“ og „Fire and Rain“.
James Taylor heldur
tónleika í kvöld
Um helgina, 18.-20. maí, mun
standa yfir fyrsta sýningin í röð
sem kennd er við Johnny og nefnist
sú Johnny’s #1. Sýningin verður
opnuð í sal Heilsu-
verndarstöðvarinnar
við Barónsstíg í dag
kl. 18 og lýkur henni
á sunnudag. Sýn-
endur eru listamenn-
irnir Þór Sig-
urþórsson, Örn
Helgason og Darri
Lorenzen.
Johnny’s #1 í Heilsu-
verndarstöðinni
Á laugardag Austan 10-13 m/s og lítilsháttar rigning syðra, en
annars hægari og þurrt að kalla. Hiti 3-10 stig. Á sunnudag Aust-
læg átt, 5-10 m/s og væta suðaustanlands, en annars stöku skúrir.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan og norðvestan 1-8 m/s. Gengur í
suðaustan og austan 8-13 með rigningu við suðurströndina í kvöld.
Annars hægari vindur og úrkomulítið. Hiti 3-10 stig.
VEÐUR
Kristinn Björgúlfsson, og tveir
fyrrverandi samherjar hans
hjá norska félaginu Oppsal,
unnu í vikunni mál gegn félag-
inu fyrir norskum dómstólum.
Þeir kærðu Oppsal fyrir ólög-
lega uppsögn á samningi fyrir
um það bil ári en dómur var
kveðinn upp í vikunni og voru
dómararnir þrír á einu máli
um að félagið hefði gerst
brotlegt og dæmdu leik-
mönnunum skaðabæt-
ur. »3
Kristinn vann
mál gegn Oppsal
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari
þýska handknattleiksliðsins Rhein-
Neckar Löwen, sagði við Morg-
unblaðið í gær að hann væri
ekkert á förum frá félag-
inu en Guðmundur á
þrjú ár eftir af samningi
sínum við félagið. »1
Er ekkert á förum frá
Rhein-Neckar Löwen
„Mér hefur gengið alveg þokkalega
og ég er að skora mörk. Ég get samt
bætt spilamennskuna hjá mér. Það
versta er að liðinu hefur ekki gengið
nægilega vel að skora. Við erum bara
búnir að setja 11 mörk í 11 leikjum
sem er ekki alveg sæmandi meist-
araliði,“ sagði Alfreð Finnbogason
m.a. við Morgunblaðið en hann raðar
inn mörkunum í Svíþjóð. »2
Alfreð ánægður með
frammistöðuna
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þetta tókst sérlega vel, mér var
tekið eins og þjóðhöfðingja og farið
með mig sem stórstjörnu,“ segir
gítaristinn Björn Thoroddsen um
tónleika í Denver í Colorado um
liðna helgi.
Birni var boðið að leika með
heimabandinu Swing Je T’aime á
tónleikum í Denver sl. laugardags-
kvöld í tilefni fyrsta flugs Icelandair
til bandarísku borgarinnar. „Það er
alltaf frábært fyrir tónlistarmenn að
fá tækifæri til þess að vinna með
einhverjum sem hefur náð al-
þjóðlegri frægð,“ sagði Aaron Walk-
er, gítarleikari hljómsveitarinnar,
um komu Björns og bætti við að
liðsstyrkurinn væri ekki síður búbót
fyrir hlustendur.
Umboðsmaður og Vignola
Haustið 2000 kom Björn fyrst
fram í Norður-Ameríku, þegar hann
skemmti á sérstökum viðburðum
sem haldnir voru í Manitoba í Kan-
ada til að minnast þess að 1.000 ár
voru liðin frá því að fyrstu Íslend-
ingarnir komu til Ameríku og 125
ára landnáms þeirra við Winnipeg-
vatn. Síðan hefur hann verið iðinn
við kolann, bæði í Kanada og Banda-
ríkjunum, og haldið 6-10 tónleika
vestra á ári. „Þetta eru yfir 100 tón-
leikar frá því ég hóf keppni vestra,“
segir hann.
Erfitt er að nefna einn viðburð
umfram annan en Björn segir að
hann hafi alltaf sérstakar taugar til
Winnipeg enda hafi fyrsta giggið
verið þar og síðan hafi hann verið í
aðalhlutverki á öllum tónleikum sem
hann hafi tekið þátt í í borginni.
„Tónleikar í Lincoln Center í New
York, djassklúbbnum Blues Alley í
höfuðborginni Washington og á þak-
inu á Art Gallery í Winnipeg í fyrra
standa upp úr.“
Í ársbyrjun spilaði Björn með
Tommy Emmanuel „og við það opn-
uðust flóðgáttir í Ameríku,“ segir
Björn sem stefnir að því að fá
bandaríska gítarleikarann Frank
Vignola til landsins og spila með
honum á Gítarfestivali Bjössa Thor í
haust.
Óhætt er að segja að Björn hafi
alls staðar slegið í gegn og í því sam-
bandi má nefna að eftir tónleikana í
Denver var gengið frá því að Lacey
Walker verður umboðsmaður hans í
Norður-Ameríku. „Þetta er orðið
það umfangsmikið að það er ekkert
vit í öðru en hafa umboðsmann og
þegar hún bauðst til þess að taka
starfið að sér ákvað ég að kýla á það
og taka slaginn. Það þýðir ekkert að
hika enda er ég sannfærður um að
ég á fullt erindi á þennan markað.“
Tekið eins og þjóðhöfðingja
Björn Thorodd-
sen æ stærra nafn
í Norður-Ameríku
Morgunblaðið/Ómar
Öflugur Björn Thoroddsen hefur haldið yfir 100 tónleika í Norður-Ameríku og þétt dagskrá er framundan.
Björn Thoroddsen verður með
ferna tónleika í Winnipeg 17.-21.
júní. Hann kemur þá tvisvar fram á
alþjóðlegu djasshátíðinni sem
haldin er árlega í borginni og verða
fyrri tónleikarnir útgáfutónleikar
með Morgana’s Revenge auk þess
sem hann kemur fram á sér-
stökum tónleikum með Tim Butler.
Í öllum tilfellum er Björn auglýstur
sem helsta stjarna tónleikanna.
Björn tekur þátt í árlegu nor-
rænu djasshátíðinni í Washington
og verður með tónleika á þaki
Swedish House í höfuðborginni
26. júní. Síðan verður hann með
tvenna tónleika á djasshátíðinni í
Rochester og lýkur ferðinni með
tvennum tónleikum í Washington,
fyrst með bassaleikaranum Jeff
Campbell og trommaranum Mike
Melito í Twins djassklúbbnum 29.
júní og með Kruno Spisic á
Djangofolies-hátíðinni.
Helsta stjarnan í Winnipeg
TÓNLEIKARÖÐ VESTRA Í JÚNÍ