Morgunblaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 11
Grýlurnar Ragga Gísla var ein af hinum mögnuðu Grýlum, sem var ein af fyrstu kvennahljómsveitum Íslands. Sjálfstraust á sviði „Á föstudögum verður vinnu- smiðja og þar munum við spjalla við stelpurnar um allt sem viðkemur stelpum og tónlist og þar læra þær líka ýmislegt um sviðsframkomu, textagerð og ýmislegt fleira sem snýr að tónlistarsköpun og tónlist- arumhverfinu. Við spjöllum líka um sjálfstraust á sviði, um staðal- ímyndir, hvernig konur eru oft sýndar á sviði og fleira í þeim dúr. Kveikjan að þessu er sú að okkur finnst að stelpur eigi skilið að fá fleiri tækifæri til að láta ljós sitt skína opinberlega uppi á sviði, því staðreyndin er sú að það eru tölu- vert fleiri karlkyns tónlistarmenn en kvenkyns á Íslandi og margvís- legar ástæður fyrir því. Ein ástæð- an getur verið sú að í uppeldinu og í félagsmótuninni eru stelpur síður líklegar til að stíga skrefið og þora að prófa sig áfram í hljómsveitum. Þess vegna viljum við bjóða upp á þennan vettvang, við viljum bjóða stelpum upp á öruggt rými til að prófa ýmislegt sem þær eru kannski ekkert hundrað prósent öruggar með. Hvetja þær til að láta vaða.“ Tónleikar í lokin „Við ætlum líka að fá tónlistar- konur í heimsókn sem spila fyrir stelpurnar, spjalla við þær og segja þeim frá reynslu sinni sem tónlist- arkonur. Við ætlum að halda spenn- unni og ekki gera opinbert hverjar þær eru. Við viljum semsagt koma þeim skemmtilega á óvart. Rokk- búðirnar enda svo á lokatónleikum þar sem hver hljómsveit stígur á svið og flytur lag fyrir framan full- an sal af vinum og fjölskyldum þeirra,“ segir Áslaug og bætir við að á meðan á námskeiðinu stendur ætli þær stöllur að vera með líf- legar umræður um konur í tónlist á heimasíðunni stelpurrokka.org. „Við ætlum líka að setja þar inn ljósmyndir af námskeiðinu og halda úti líflegu bloggi um það.“ Hugsjón og tónlistarástríða „Við, sem stöndum að tónlist- arverkefninu Stelpur rokka, erum hópur kvenna sem gera þetta af femínískri hugsjón og tónlistarástr- íðu og mestmegnis í sjálfboðastarfi. Margar í hópnum vildu svo gjarnan að eitthvað svona hefði verið í boði þegar þær voru 12-16 ára og eru því mjög spenntar að leggja málefn- inu lið. Þær konur sem við fengum til að vinna í rokksumarbúðunum gera það í sjálfboðavinnu. Við erum partur af alþjóðlegri hreyfingu rokksumarbúða og erum í sam- tökum sem heita Girls Rock Camp Alliance, en það er hreyfing sem heldur árlega ráðstefnu rokksum- arbúða um víða veröld. Við fórum á slíka ráðstefnu í Bandaríkjunum núna í mars og þar fengum við tækifæri til að styrkja böndin við aðrar rokksumarbúðir í Bandaríkj- unum, Frakklandi, Þýskalandi, Sví- þjóð og fleiri Evrópulöndum. Nán- ara samstarf innan Evrópu er á dagskrá fljótlega,“ segir Áslaug sem er lærður klassískur píanóleik- ari og hefur spilað með hljómsveit- inni Just another snake cult. „Ég eins og svo margar stelpur fór í gegnum klassískt tónlistarnám án þess að stofna nokkurn tímann hljómsveit. Strákar virðast miklu fremur en stelpur prófa sig áfram í hljómsveitum. Við viljum leggja okkar af mörkum til að rétta af þennan halla.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2012 Vinkonurnar Jóhanna Guðrún og Jenný standa fyrir fatamarkaði laugardaginn 19. maí. Úrvalið verð- ur þó ekki aðeins takmarkað við hágæða og hámóðins tískufatnað á hlægilegu verði, heldur fá unn- endur ítalskra bókmennta og menningar einnig tækifæri til festa kaup á ítölskum bókum og kvik- myndum. Markaðurinn verður haldinn í bakgarði á Óðinsgötu 4 kl. 14.00- 17.00. Á markaðnum verður m.a. að finna glæsilega kjóla, peysur, gallajakka frá Diesel, leðurtöskur frá Furla og DK, pils frá Calvin Klein, lítið notaða skvísu-skó, leð- urjakka frá Miss Sixty, gallabuxur frá Levi’s, Diesel og Miss Sixty og vönduð sumarföt frá Ítalíu. Fatamarkaður á Óðinsgötu Morgunblaðið/Golli Stemning Hægt er að gera góð kaup á fatamörkuðum. Leðurtöskur, skvísuskór og vandaður sumarfatnaður Rokkbúðirnar verða starfandi frá 2. júlí til 27. júlí. Skráning á nám- skeiðið Stelpur rokka er farin af stað á heimasíðunni þeirra: stelpurrokka.org, aðeins komast 30 að, svo það er um að gera fyr- ir áhugasamar að drífa sig. „Við erum að leita eftir fólki til að lána eða gefa okkur hljóðfæri, því okkur vantar enn nokkur hljóðfæri til rokk- sumarbúðanna. Fólk getur sett sig í samband við okkur á netfanginu okkar: rokksumarbud- ir@gmail.com,“ segir Áslaug. Rokkbúðir á Granda í júlí SKRÁNING HAFIN Ég á það sameiginlegt meðrestinni af mannkyninu aðelska mat. Það gleður migfátt meira en ilmandi, fal- leg og gómsæt máltíð. Þessi matarást er bæði heit og kröftug og hefur vald- ið ófyrirséðum vandræðum í gegnum tíðina. Þannig sá ég ekkert athuga- vert við að burðast með 4 kílóa chedd- ar-oststykki frá Spáni til Íslands, en íslenskir tollverðir deildu þeirri skoð- un ekki með mér. Eins voru ekki allir jafn hrifnir þegar ég beit í mig að ég yrði að koma mér upp hæfni til að baka hinn fullkomna marengs – og kæmi þess vegna tveimur tímum of seint í útskrift kærrar vinkonu, eftir að 3 fyrstu bökunartilraunirnar fóru í súginn. Einhver snillingur smíðaði hug- takið matarminni, en ég á einmitt fjölmörg dæmi um minningar tengd- ar mat. Þannig gleymi ég seint óbil- andi þrautseigju mömmu minnar í því að kynna mig fyrir dásemdum eld- hússins, og ristað brauð með eplum og sultu mun ávallt minna mig á hana. Einnig er illþefjandi Gamle- Ole kyrfilega bundinn minning- unni um skólavist í Ostaskól- anum með kærum vini, stöpp- uð ýsa í tómatsósu minnir mig á afa og ömmu og Diet Coke á fyrrverandi kærasta sem kom mér upp á lagið með neyslu á þeim vanmetna drykk. Matar- smekkur minn er breiður og það er fátt sem ég legg mér ekki til munns, en ég á einstaklega hvít- hyskislega spretti af og til. Þannig hef ég einstakt dálæti á amerískum skyndi- bita og finnst bara hressandi að sjá hvernig djúpsteik- ingarolían breytir hvítum umbúðum í glærar fyrir tilstilli einhverra dásam- legra töfra. Ég er líka mikill sósu- aðdáandi og er á þeirri skoðun að meira sé einfaldlega meira þegar kemur að sósum. Það er að mínu mati virðingarvert að leggja til hliðar snobbið þegar kemur að mat, því vel matreiddar franskar kartöflur geta verið ná- kvæmlega jafn mikið listaverk og kavíarturn með húbba-búbba-froðu á 5 stjörnu veitingastað. Heldur má ekki gleyma ánægjunni bæði við að borða og laga mat í félagi við aðra. Mörgum af bestu stundum mínum hefur verið eytt við sushi-eða pítsugerð með vinum og fjöl- skyldu og góður matur í góðum félagsskap hlýtur að vera há- punktur á degi margra. Ég lýk þessu á tilvitnun í Liz Lemon, hinn stórkostlega gallagrip sem er að- alpersóna þáttanna 30 Rock, en hún hitti nagl- ann rækilega á höfuðið þegar hún sagði: „Mannkynið á sér eitt sameiningartákn: Sam- lokuna. Mín trú er sú að það eina sem fólk vill í raun og veru er að geta setið í friði og spekt og borðað safaríka samloku.“ »Þannig sá ég ekkertathugavert við að burðast með 4 kílóa cheddar- oststykki frá Spáni til Íslands, en íslenskir tollverðir deildu ekki þeirri skoðun með mér. Heimur Guðrúnar Sóleyjar Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is Útskriftargjöfin fæst í Casa Skeifunni 8, 108 Reykjavík, Kringlunni sími 588 0640. Verð kr. 2.790

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.