Morgunblaðið - 18.05.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2012
Ekki er heiglum hent að vera íVG. Forysta flokksins hefur
svikið loforð hans svo herfilega að
málefnastaðan er rústir einar. En
stjórn flokksins, sem formaður og
varaformaður eiga
sæti í ásamt níu öðr-
um, sýnir að í VG
hafa menn húmor
fyrir sviknu loforð-
unum.
Nú hefur stjórninályktað að Ís-
lendingar eigi ekki
að vera hluti af Atl-
antshafsbandalag-
inu eða taka þátt í
hernaðaraðgerðum
á vegum þess.
Stjórnin minnirkjörna fulltrúa sína á stefnu
flokksins sem segir að Ísland eigi að
standa utan hernaðarbandalaga og
ganga úr NATÓ. Ættu þingmenn
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs að vinna ötullega að því í
störfum sínum á Alþingi þar til
markmiðinu er náð,“ segir í ályktun
stjórnarinnar.
Ekki er tekið fram hvort Stein-grímur J. Sigfússon og Katrín
Jakobsdóttir, sem ítrekað gáfu leyfi
fyrir hernaðaraðgerðum NATO í
Líbýu, hafa samþykkt ályktunina,
en sennilega hafa þau ekki séð neitt
athugavert við það.
Þau mundu líklega ekki heldursjá neitt athugavert við það ef
slík ályktun kæmi fram á virðu-
legum stjórnarfundi, að samþykkja
að Ísland skyldi standa utan við
Evrópusambandið og ganga snar-
lega úr því ef þeim tekst að koma
því þar inn.
Til hvers að hafa samræmi í orð-um og athöfnum ef ósamræmið
er mögulegt?
Steingrímur J.
Sigfússon
Segjum eitt,
gerum annað
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir
Veður víða um heim 17.5., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 3 skýjað
Akureyri 2 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 9 léttskýjað
Vestmannaeyjar 5 skýjað
Nuuk 2 alskýjað
Þórshöfn 2 alskýjað
Ósló 12 léttskýjað
Kaupmannahöfn 11 léttskýjað
Stokkhólmur 13 heiðskírt
Helsinki 12 skúrir
Lúxemborg 15 heiðskírt
Brussel 13 léttskýjað
Dublin 8 skýjað
Glasgow 8 skúrir
London 13 léttskýjað
París 16 heiðskírt
Amsterdam 15 heiðskírt
Hamborg 11 skýjað
Berlín 12 heiðskírt
Vín 13 skýjað
Moskva 22 heiðskírt
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 27 heiðskírt
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 22 heiðskírt
Róm 21 heiðskírt
Aþena 15 skúrir
Winnipeg 22 léttskýjað
Montreal 13 léttskýjað
New York 17 heiðskírt
Chicago 18 léttskýjað
Orlando 25 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:01 22:48
ÍSAFJÖRÐUR 3:38 23:21
SIGLUFJÖRÐUR 3:20 23:05
DJÚPIVOGUR 3:24 22:24
Dieter Roth
18. maí – 3. júní
RauÐaRáRstíguR 14 · sími 551 0400 · www.mynDlist.is
OpiÐ ViRka Daga 10–18 • laugaRDaga 11–16 • sunnuDaga/sunDays 14–16
Opnun í dag 17–19
Allir velkomnir
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, átti fund með
William Hague, utanríkisráðherra
Bretlands, í Lundúnum í fyrradag.
Bjarni sagði í samtali við vef Morg-
unblaðsins í gær að fundurinn hefði
verið góður. Þeir Hague hefðu m.a.
rætt samskipti Sjálfstæðisflokksins
og breska Íhalds-
flokksins, ástand-
ið í Evrópu, evru-
krísuna og farið
yfir sjónarmið
Breta varðandi
það sem væri að
gerast og þróast í
Evrópusamband-
inu. Þá sagðist
Bjarni hafa rætt
við Hague um
makríldeiluna og mótmælt því að
ESB beitti Íslendinga refsiaðgerð-
um í þeirri deilu. Á fundinum hefði
komið fram að Bretar hefðu miklar
áhyggjur af því hvernig tækist að
leysa evrukrísuna og hvaða áhrif hún
kæmi til með að hafa á breskan efna-
hag. Breski Íhaldsflokkurinn vildi
halda sig utan evrusvæðisins og væri
mótfallinn hugmyndum um ESB í
framtíðinni sem n.k. sambandsríki.
„Þetta er krafa margra stóru
ríkjanna, það er ljóst að það er und-
irliggjandi mikil óvissa um hvernig
þróa eigi sambandið inn í framtíð-
ina,“ sagði Bjarni.
Bjarni átti fund með Hague
Evrukrísan og
makríldeilan meðal
umræðuefna
Bjarni
Benediktsson
Gunnlaugur K.
Jónsson, forseti
Náttúrulækn-
ingafélags Ís-
lands (NLFÍ) og
stjórnarformaður
Heilsustofnunar
NLFÍ í Hvera-
gerði, var í gær
endurkjörinn
sem fyrsti vara-
forseti og í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands
heilsustofnana (European Spas
Association/ESPA) á aðalfundi sam-
takanna í Jurmala í Lettlandi.
Meginhlutverk ESPA er að kynna
heilsulindir og böð í Evrópu og gæta
þess að náttúrulegir meðferð-
arkostir jarðvegs loftslags og sjávar
séu almenningi sem aðgengilegastir.
Með sama hætti er tilgangur sam-
takanna að koma á og efla samvinnu
við opinbera aðila og einkaaðila í vís-
indum, embættiskerfi, efnahagslífi,
á félagslegum og menningarlegum
sviðum, og stuðla að sjálfbærri hag-
nýtingu náttúruauðlinda til verndar
og bóta á lýðheilsu.
Innan aðildarlanda ESPA eru vel
á annað þúsund fyrirtæki og stofn-
anir auk heilsumiðstöðva, heilsuhót-
ela og sveitarfélaga. Starfsmenn
þeirra eru á annað hundrað þúsund
og árleg velta er talin í tugum millj-
arða evra.
Verkefni ESPA eru m.a. ákveðin
með hliðsjón af auknum samskiptum
og samrunaferlum innan Evrópu.
Starf ESPA er unnið án ágóðasjón-
armiða.
Á aðafundinum í gær var Martin
Plachy, Tékklandi, kjörinn forseti
ESPA. Plachy er eigandi Royal
Spas, Kur og Medical Spa-
heilsulindakeðjunnar í Tékklandi.
Heilsulindarsamtök Íslands (HLSÍ)
eru aðili að ESPA. Fulltrúi HLSÍ í
landsstjórn ESPA var kjörinn Sig-
mar B. Hauksson en öll aðild-
arlöndin eiga þar einn fulltrúa, burt-
séð frá stærð og/eða íbúafjölda.
Endurkjör-
inn varafor-
seti ESPA
Gunnlaugur
K. Jónsson
Evrópusamband
heilsustofnana