Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
Það er mikið að gera í fjárhúsum landsins þessa
dagana og því er mikilvægt að númera öll lömb
sem fyrst, sérstaklega þar sem margt fé er á bæj-
um. Systurnar í Lyngbrekku í Þingeyjarsveit, þær
Hildigunnur og Kristín Margrét Jónsdætur, hafa
mikinn áhuga á sauðfénu og leggja dag við nótt í að
sinna fénu. Síðastliðið sumar voru byggð ný fjárhús
í Lyngbrekku og hefur það auðveldað mjög sauð-
burðinn á þessu vori og vel fer um féð. Á myndinni
má sjá þær systur vera að númera eitt lambið og er
hvert númer skráð í svokallaða vorbók, sem síðan
er færð inn í Fjárvís, sem er skýrsluhaldsforrit
sauðfjárræktarinnar. Systurnar eru bjartsýnar á
tíðarfarið og fljótt fara allar kindur í Lyngbrekku
út ef veðurspáin gengur eftir.
Öll lömb fá sitt númer
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Það er mikið um að vera í fjárhúsum landsins
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það er allt annað ástand á svartfuglinum nú en í
fyrra. Nú er ástandið eðlilegt en það var það ekki í
fyrra. Það er mökkur af fugli um allt,“ sagði Valur
Andersen, bjargmaður í Vestmannaeyjum. Hann
hefur stundað eggjatöku í Súlnaskeri, Geir-
fuglaskeri og Geldungi í mörg ár ásamt fleirum. Í
þessum eyjum er 4-5 þúsund eggja varp.
Valur sagði að þeir hefðu farið fjórar eggjaferð-
ir í maí í fyrra og ekki náð nema 20 svartfugl-
seggjum og látið þar við sitja. „Þetta var nánast
eins og eyðimörk alveg fram undir mánaðamót
maí og júní. Það var ekki nokkur fugl og ekki drit í
bjargi og ekki neitt. Það gerðist ekkert fyrr en í
júní í fyrra og þá var lítið,“ sagði Valur.
Eggjavertíðin hófst á fýlseggjum að venju og
náðu þeir um 1.000 fýlseggjum. Fýlnum er alltaf
að fjölga og eins er súlan að stækka við sig. Fyrsta
ferðin eftir svartfuglseggjum í vor var farin á
föstudaginn var í Súlnasker og Geirfuglasker. Þar
náðust 130 egg enda varpið rétt að byrja. Reynt
er að fara með þriggja daga millibili til loka maí og
hirða glæný egg úr fyrra varpinu. Fuglinn er svo
látinn eiga sig með seinna varpið.
Alveg óhemja af fugli í Grímsey
Grímseyingar fóru fyrst til eggja 12. maí og
voru í bjarginu alla síðustu viku. „Það er sjálfsagt
meira nú en í fyrra, alveg óhemja af fugli,“ sagði
Bjarni Magnússon, fyrrverandi hreppstjóri og
bjargmaður í Grímsey til margra áratuga. Hann
sagði eggjatökuna vera með fyrra fallinu að þessu
sinni.
„Við fáum alveg nóg af eggjum – eins og við vilj-
um,“ sagði Bjarni. Í fyrra gerði vitlaust veður 21.
maí, áður en eggjatöku lauk svo þeir gátu aldrei
klárað það árið. Þá kom bæði snjór og öskufall.
Eggin sem nú fást eru nýorpin og óstropuð.
„Þeir sem vilja stropað fá ekki neitt, þau egg
eru ekki til,“ sagði Bjarni. „Þetta er búið að vera
virkilega gaman. Ég segi fyrir mig að ég held að
maður legðist bara í rúmið ef manni væri neitað
um að taka egg.“
Bjarni átti von á því í gær að farið yrði a.m.k.
einu sinni enn í bjargið á þessari eggtíð.
Allt annað ástand en í fyrra
Bjargmenn segja betra ástand hjá svartfugli í Vestmannaeyjum og Grímsey
Varpið hefur farið vel af stað þetta vorið, bæði fyrir sunnan og norðan land
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Svartfuglsegg Margir eru sólgnir í eggin.
,,Íbúar hússins eru mikið á móti því að hér verði opnað
hostel,“ segir Arnar Már Þórisson sem hyggst opna 250
manna hostel við Laugaveg 105. Jákvætt svar fékkst
frá Reykjavíkurborg við fyrirspurn Arnars nýverið, en
þar var spurt hvort leyfi fengist fyrir hosteli án sam-
þykkis meðeiganda. Hugmyndin er sú að reksturinn
verði í anda KEX hostels, sem rekið hefur verið við
Skúlagötu.
Ferlið hefur dregist til muna vegna ósættis íbúanna
en nú er komið á daginn að ekki þarf samþykki íbúanna
fyrir framkvæmdunum.
Ákvörðun verður tekin á næstu vikum.
,,Íbúarnir hafa gert allt til að tefja okkur, það er því
ekki víst hvort við byrjum framkvæmdir núna. Allir
túristarnir yrðu farnir þegar við myndum opna í
haust,“ segir Arnar sem telur að framkvæmdir muni
tefjast að einhverju leyti. Arnar segir að nánari ákvarð-
anir verði teknar á næstu vikum og þá munu hlutirnir
varðandi hostelið skýrast enn betur.
Áður var Náttúrufræðistofnun á Laugavegi 105 en
stofnunin flutti þaðan í október árið 2010 eftir að hafa
verið með starfsemi sína í húsinu í um 50 ár.
Jafnframt var náttúrugripasafn í sama húsi.
aslaug@mbl.is
Má opna hostel á Laugavegi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laugavegur 105 Í ráði er að opna gistihús við Hlemm.
Þarf ekki leyfi íbúa húss-
ins fyrir 250 manna hosteli
Ögmundur Jón-
asson innanríkis-
ráðherra segir
ekkert því til
fyrirstöðu að efnt
verði til þjóðar-
akvæðagreiðslu
um Evrópu-
sambandsum-
sókn Íslands sem
fyrst. Hann segir
stóran hluta þjóð-
arinnar vilja fá skýrari línur um
hvað sé í boði. „Það er að koma á
daginn hvað það er,“ segir Ögmund-
ur.
„Ekkert er því til fyrirstöðu að við
efnum til þjóðaratkvæðagreiðslu hið
fyrsta,“ segir Ögmundur. „Ég hef
verið því fylgjandi í langan tíma að
við flýttum þessu ferli og flýttum af-
greiðslu þessa máls. Og eitt er ég
viss um: Að aldrei, aldrei hefur verið
vitlausara en nú að ganga inn í Evr-
ópusambandið,“ segir Ögmundur.
Innanríkisráðherra var að svara
fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur,
þingmanns Framsóknarflokksins, á
Alþingi í gær. Vigdís hefur ekki farið
í grafgötur með þá afstöðu sína að
draga eigi umsókn um aðild að ESB
til baka. Hún vill að þingið taki málið
til umræðu á vorþingi sem nú stend-
ur yfir. Ögmundur lét þá skoðun í
ljós að skjóta ætti málinu til þjóð-
arinnar án aðkomu þingsins. Vigdís
er því ósammála og telur að þingið
þurfi fyrst að taka málið til af-
greiðslu áður en þjóðin taki afstöðu í
málinu. „Þessu máli verður ekki
komið til þjóðarinnar án aðkomu
þingsins,“ segir Vigdís.
Enn er eftir að opna stóra kafla í
aðildarviðræðum við Evrópusam-
bandsins. Meðal annars um land-
búnað og sjávarútveg.
Atkvæða-
greiðslu
sem fyrst
Ögmundur
Jónasson
Ögmundur vill flýta
umsókn í þjóðaratkvæði
Rannsóknarnefnd flugslysa (RNF)
er nú að afla gagna vegna öryggis-
lendingar farþegaþotu Icelandair á
Keflavíkurflugvelli á föstudagskvöld.
Þorkell Ágústsson, forstöðumaður
og rannsóknarstjóri RNF, taldi að
niðurstöðu mætti vænta á næstu vik-
um samkvæmt eðlilegum gangi slíkra
rannsókna.
Sem kunnugt er bilaði lega í einu
hjóla flugvélarinnar sem olli því að
hjólið læstist og datt af þegar vélin
hóf sig til lofts. Alls voru 191 um borð.
Lendingin tókst giftusamlega.
Niðurstaða á
næstu vikum
SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA
Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á
sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan.
Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur
sínum náttúrulega lit.
GERUM SÓLPALLINN
EINS OG NÝJAN
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225