Morgunblaðið - 22.05.2012, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Hrossum á Íslandi hefur fjölgað
hægt og rólega síðustu ár. Hrossa-
fjöldinn stóð sem hæst í rúmum 80
þúsundum árið 1996 en fór niður í
71 þúsund árið 2002. Hrossum hef-
ur fjölgað nokkuð síðan og virðist
stefna í að ná fyrri hæðum. Rétt
tæplega 78 þúsund hross eru til í
landinu núna samkvæmt nýjustu
tölum búfjáreftirlitsmanna sem
Matvælastofnun tekur saman. Um
7.000 folöld fæðast árlega sam-
kvæmt upplýsingum á Mast.is, en
þar má sjá búfjártölur í landinu
síðustu þrjátíu ár.
Af sveitarfélögum eru langflest
hrossin í Skagafirði eða 5.200, sem
gerir tæplega 10% af öllum hross-
um í landinu. Næst á eftir koma
Rangárþing eystra og Rangárþing
ytra og Borgarfjörður. Fæst hross
eru í Grímsey, eða níu talsins.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sverri Sverrissyni, sérfræðingi hjá
Matvælastofnun, bárust ekki
margar athugasemdir frá búfjár-
eftirlitsmönnum í ár um ofbeit
hrossa.
Í Morgunblaðinu í gær er haft
eftir Andrési Arnalds, fag-
málastjóra hjá Landgræðslu rík-
isins, að beitarhagar fyrir hross
séu víða of mikið bitnir. Ástandið
nú sé jafnvel verra en fyrir rúmum
tuttugu árum þegar land fór víða
illa vegna ofbeitar. Hann segir
ástandið í heildina vera óviðunandi.
Hófleg landnýting
Kristinn Guðnason, formaður
Félags hrossabænda, segir að fé-
lagið hafi beitt sér fyrir hóflegri
landnýtingu í góðu samstarfi við
Landgræðslu ríkisins. En Land-
græðslan hefur yfirumsjón með
landnýtingarþætti gæðastýringar í
hrossarækt.
„Fyrir rúmlega tíu árum var
gerð könnun á ástandi hrossahaga.
Þá var ástandið frekar slæmt og
var farið í að reyna að breyta því.
Það sem hamlaði okkur þá var mik-
ill hrossafjöldi sem hafði engan til-
gang og menn komu ekki í slátur-
hús. Félag hrossabænda beitti sér
þá fyrir því að opna sláturmarkaði
sem tókst í samstarfi við slátur-
leyfishafa,“ segir Kristinn. „Í fyrra
gerði Landgræðslan óformlega
könnun á ástandi beitarlands. Þeir
sögðu að þetta virtist vera mun
betra en áður þó að einhverjar
jarðir hefðu verið í slæmu standi.“
Fella hross án hlutverks
Kristinn segir að það sé líklega
að gerast aftur að hross í landinu
séu að verða óþarflega mörg. „Það
eru of mörg hross með ekkert hlut-
verk og ef þau hafa ekki hlutverk
er þeim kannski ekki sinnt eins vel.
Við erum alltaf að hvetja fólk til að
fella hross sem hafa ekki hlutverk.
Hrossasalan hefur líka dregist
mikið saman. Það var góður mark-
aður fyrir allslags hross og við vor-
um að selja um 2.000 hross úr landi
á ári. Svo dróst markaðurinn veru-
lega saman, þá voru allt of margir
sem treystu orðið á markaðinn og
voru of lengi að viðurkenna að það
væri engin sala lengur. Við flytjum
ekki út nema rúm þúsund hross á
ári núna og það eru ekkert nema
góð hross sem gilda í dag,“ segir
Kristinn og bætir við að það sé ekki
að sjá í náinni framtíð að salan á
misgóðum hrossum glæðist.
Hrossaslátrun hefur gengið vel í
vetur og vantar hross í förgun hjá
sláturleyfishöfum að sögn Kristins.
Vankunnátta er líka ein ástæða
ofbeitarinnar að mati Kristins.
„Menn eru að kaupa land sem hef-
ur ekki verið nýtt lengi, er vaðið í
sinu og mjög rýrt þegar er farið að
nota það. Landið umturnast strax,
sérstaklega ef það er komið heldur
stórt stóð á það. Vegna vankunn-
áttu meta menn aðstæður ekki
rétt. Það er mjög auðvelt fyrir fólk
sem vill nýta landið sitt skyn-
samlega að hafa samband við bún-
aðarsambönd eða Landgræðsluna.
Þar eru þessar upplýsingar og að-
ilar sem vilja leiðbeina fólki. Það
er oft svo lítið sem þarf að gera til
að bæta úr ofbeitinni,“ segir Krist-
inn.
Dýrt hey ein ástæðan
Margar ástæður hafa verið
nefndar fyrir að ofbeit hrossahaga
virðist vera meira áberandi nú.
Ein ástæðan er slæmt vor í fyrra
sem kom illa niður á beitarþoli og
lítið hey sem var í landinu eftir síð-
asta sumar. Það hækkaði verð á
heyi sem gerði það að verkum að
hrossaeigendur fóru að spara hey
eins og þeir gátu og píndu hrossin
á beitinni sem kom niður á land-
inu.
Á góðu landi er oft talað um að
það þurfi hektara (10.000 fer-
metra) á hvern hest. Meðalþungi
íslenskra hrossa er um 370 kg og
daglegar viðhaldsþarfir því nálægt
3,1 fóðureining.
Morgunblaðið/RAX
Útigangur Meðalþungt hross er 370 kg. Ef land er bitið og veikt fyrir t.d. í bleytutíð eru hross fljót að traðka það niður í drullu. Útigangshross þurfa grasgefið land, skjól og vatn.
Um 78 þúsund hross í landinu
Formaður Félags hrossabænda segir hross í landinu vera óþarflega mörg og of mörg hross með
ekkert hlutverk Vankunnátta hrossaeigenda oft orsök ofbeitar Mest af hrossum er í Skagafirði
Hrossaeign í landinu síðustu tíu ár
71.012
78.000
77.000
76.000
75.000
74.000
73.000
72.000
71.000
70.000
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
72.222
75.644
77.502 77.710
Heimild: Capacent
Hross
» Um 78.000 hross eru til í
landinu núna. Af þeim eru um
30.000 hryssur. 25.000 hestar
eru til og 17.000 trippi. Um
7.000 folöld fæðast árlega.
» Á góðu landi er oft talað um
að það þurfi hektara (10.000
fermetra) á hvern hest. Með-
alþungi íslenskra hrossa er um
370 kg og daglegar viðhalds-
þarfir því nálægt 3,1 fóðurein-
ing.
» Árlega eru seld úr landi rúm-
lega þúsund hross. Tæplega
helmingi færri en fyrir hrun.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Óvenjumörg fíkniefnamál komu til
kasta lögreglunnar um síðastliðna
helgi. Í flestum tilfellum var um að
ræða karla á þrítugsaldri sem gripn-
ir voru með fíkniefni í fórum sínum.
Einkum var um að ræða amfetamín,
kókaín og kannabisefni. Jafnframt
var hald lagt á nokkra hnífa í þessum
aðgerðum.
Fannst illa haldinn af neyslu
Einn karlmaður var handtekinn
vegna sölu fíkniefna. Í framhaldinu
var farið að heimili hans þar sem
hald var lagt á kannabisefni. Eins
fundust nokkrir tugir gramma af
maríjúana í íbúð í Hafnarfirði. Á
sama heimil fannst maður illa hald-
inn af eftir fíkniefnaneyslu. Sá var
fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.
Lögreglan stöðvaði jafnframt
kannabisræktun á þremur stöðum á
höfuðborgarsvæðinu fyrir helgina.
Sú stærsta var í Hafnarfirði. Þar var
að finna um 180 kannabisplöntur. Á
sama stað var lagt hald á ýmsan bún-
að sem tengdist starfseminni. Meðal
annars fjölmarga gróðurhúsalampa.
Ræktunin var vel falin í 100 ferm.
rými í kjallara hússins. Karl um þrí-
tugt var yfirheyrður í þágu rann-
sóknarinnar en sá reyndi að komast
undan á hlaupum þegar lögreglan
bankaði upp á.
Í miðborginni fundust um 20
kannabisplöntur á heimili manns um
fertugt og í iðnarhúsnæði í austur-
borginni lagði lögreglan hald á rúm-
lega 40 kannabisplöntur til viðbótar.
Fjölmörg fíkniefnamál
Gripnir með amfetamín, kókaín og kannabisefni
Lögregla stöðvaði kannabisræktanir á þremur stöðum
Morgunblaðið/Kristinn
Kannabis Lögreglan stóð í ströngu.
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
STÚDENTAGJAFIRNAR FÁST
HJÁ JÓNI OG ÓSKARI
Stúdentarósin 2012
úr 14 kt gulli
kr. 19.900
Stúdentastjarnan 2012
úr 14 kt gulli
kr. 16.500
Stúdentastjarnan /Silfur
kr. 7.900