Morgunblaðið - 22.05.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
Steingrímur J. Sigfússon telur aðsér hafi á dögunum verið boðið
starf fjármálastjóra Grikklands. Boð-
ið hafi verið sett fram á göngum höf-
uðstöðva Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
en algengast mun
vera að slík störf séu
boðin á þeim vett-
vangi.
Steingrímur tekurþessu boði nægi-
lega alvarlega til að
færa það í tal í um-
ræðuþætti rík-
isstjórnarinnar og
hann telur sér meira
að segja til tekna en
ekki háðungar að
hafa fengið þetta
meinta boð frá AGS.
Afrek Steingríms á sviði al-þjóðlegra fjármála eru þau helst
að hafa reynt að hengja skuldir upp á
hundruð milljarða króna í erlendri
mynt á íslenska skattgreiðendur.
Auðvitað vilja erlend fjármálafyr-irtæki og fulltrúar þeirra ekkert
frekar en að fá slíkan mann í inn-
heimtu fyrir sig á Grikklandi.
Þar þekkja menn Trójuhesta semhafa dugað prýðilega og aldrei
að vita nema hægt sé að hengja allar
skuldir við erlenda banka á gríska
skattgreiðendur ef vanur maður fæst
í verkið og vinnur það innanfrá.
Þess vegna hlýtur Steingrímur aðsegja satt um tilboðið góða á
ganginum.
Ekki er síður líklegt, og má raunartelja víst, að Jóhanna Sigurðar-
dóttir hafi fengið tilboð frá ESB um
landstjóraembætti á Grikklandi. Af-
rek hennar hafa ekki síður vakið
verðskuldaða alþjóðlega athygli en
afrek Steingríms.
Steingrímur J.
Sigfússon
Trójuhestinn til
Grikklands
STAKSTEINAR
Jóhanna
Sigurðardóttir
Veður víða um heim 21.5., kl. 18.00
Reykjavík 13 léttskýjað
Bolungarvík 9 heiðskírt
Akureyri 8 skýjað
Kirkjubæjarkl. 9 rigning
Vestmannaeyjar 7 skýjað
Nuuk 1 snjóél
Þórshöfn 7 þoka
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Stokkhólmur 18 heiðskírt
Helsinki 21 heiðskírt
Lúxemborg 20 skýjað
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 13 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 15 léttskýjað
París 12 skúrir
Amsterdam 23 heiðskírt
Hamborg 23 heiðskírt
Berlín 27 heiðskírt
Vín 22 skúrir
Moskva 26 heiðskírt
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 18 léttskýjað
Aþena 20 alskýjað
Winnipeg 20 skýjað
Montreal 26 léttskýjað
New York 15 skúrir
Chicago 13 alskýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:49 23:01
ÍSAFJÖRÐUR 3:22 23:38
SIGLUFJÖRÐUR 3:03 23:22
DJÚPIVOGUR 3:11 22:38
„Fundurinn er haldinn að gefnu til-
efni vegna þeirrar umræðu sem fer
alltaf í gang á haustin þegar útihá-
tíðir eru gerðar upp og enginn vill
bera ábyrgð á því sem miður fór. Við
viljum taka málið upp áður en hátíð-
irnar fara af stað og skapa einhverja
umræðu um það fyrirfram hvernig
megi koma í veg fyrir ofbeldi og ölv-
un á þessum hátíðum,“ segir Guðni
R. Björnsson í fræðslu- og for-
varnahópnum Náum áttum en hóp-
urinn stendur fyrir fundi á Grand
hótel í fyrramálið undir yfir-
skriftinni „Sumarhátíðir – sýnum
ábyrgð“. Fjallað verður um sumar-
hátíðir á Íslandi, framkvæmd þeirra
og ábyrgðina sem fylgir hátíðarhaldi
eins og þjóðhátíð, bæjarhátíð, útihá-
tíð eða hestamóti. Farið verður yfir
atriði eins og markmið þeirra, reglu-
verk og viðbúnað sveitarfélaga og
annarra mótshaldara.
Fyrirlesarar eru þrír. Eyrún
Jónsdóttir frá neyðarmóttökunni
fjallar um fórnarkostnaðinn, Rúnar
Halldórsson félagsráðgjafi ræðir um
útihátíðir á Suðurlandi og viðbúnað
sveitarfélaga og Tómas Guðmunds-
son frá Akranesstofu fjallar um há-
tíðina „Írskir dagar“.
Að loknum erindum eru pallborðs-
umræður og þá bætast við Stefán
Eiríksson, lögreglustjóri höfuð-
borgarsvæðisins, Ómar Bragi Stef-
ánsson frá UMFÍ, Sveinbjörn Krist-
jánsson frá SAMAN-hópnum og
fulltrúi 100 karla hópsins sem vakti
m.a. athygli á nauðgunarmálum frá
síðasta sumri. Fundurinn stendur
frá kl. 8.15 til 10. Þátttökugjald með
morgunverði er 1.500 kr.
Ræða ábyrgð á útihátíðum í sumar
Hátíðir Senn fara af stað hátíðir um
allt land og standa fram á haust.
Íþrótta- og Ólympíusamband Ís-
lands, Rauði krossinn og Sjóvá
standa fyrir söfnun á brjóstahöldum
og öðrum undirfötum í tengslum við
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ sem fram fer
þann 16. júní. Árlega velja skipu-
leggjendur Kvennahlaupsins eitt
málefni tengt konum til að vekja sér-
staka athygli á. Í ár var ákveðið að
hvetja þátttakendur hlaupsins til að
gefa nærföt (s.s. brjóstahöld) í fata-
safnanir hjálparsamtaka en nær-
fatnaður skilar sér síður í hefð-
bundnum fatasöfnunum en annar
fatnaður. Söfnuninni var hleypt af
stokkunum í gær en þá mættu Stella
Sigurðardóttir, leikmaður Fram í
handknattleik og nýkjörinn leik-
maður ársins í N1-deild kvenna, og
móðir hennar, Soffía Bragadóttir, til
Rauða krossins til þess að gefa
fyrstu brjóstahöldin. Anna Stef-
ánsdóttir, formaður RKÍ, fylgdist
með. Söfnunin mun standa út júní.
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Söfnun hafin á
brjóstahöldum
V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is
Múlalundur - fyrir betri framtíð
ALLT FYRIR SKRIFSTOFUNA