Morgunblaðið - 22.05.2012, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
Nýlega fór fram formleg afhending
á búnaði smáum sem stórum til
tveggja deilda á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi (LSH), taugalækn-
ingadeild og sjúkraþjálfun.
Meðal þess sem var gefið var
hluti hágæslubúnaðar, nudd-
bekkur, vinnustólar, hjólastóll, set-
æfingahjól, ísskápur og upp-
þvottavél. Búnaðurinn mun nýtast
öllum sjúklingahópum sem koma á
deildirnar.
Þeir sem gáfu voru: Parkinson-
samtökin, MG félagið og MND fé-
lagið. Gefendurnir nutu eins og oft
áður aðstoðar Svalanna, félags
fyrrverandi flugfreyja.
„Við sem gáfum þökkum kærlega
hlýjar móttökur og hlökkum til
frekari verkefna á sjúkrahúsi allra
landsmanna,“ segir í tilkynningu
frá gefendum.
Afhending Gefendur og fulltrúar LSH við
afhendingu gjafanna á dögunum.
LSH fékk afhentar
fjölmargar gjafir
Fimmtudaginn 24. maí verður hald-
in ráðstefna í Háskólanum á Akur-
eyri sem ber heitið Heilsuefling
eldri borgara. Þar munu flytja er-
indi ýmsir sem hafa áhuga á að efla
heilsu eldra fólks með einföldum
ráðum svo sem hreyfingu. Ráð-
stefnan er haldin í sal N101 á Sól-
borg milli kl. 13.00 til kl. 16.30 og
er öllum opin og ókeypis. Ráð-
stefnan er samvinnuverkefni Fé-
lags eldri borgara á Akureyri,
Sjúkrahússins á Akureyri, Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri,
Akureyrarbæjar og Íþrótta- og Ól-
ympíusambands Íslands. Áður en
ráðstefnan hefst syngur kór eldri
borgara Í fínu formi nokkur lög.
Ræða heilsueflingu
eldri borgara
STUTT
Bogi Ágústsson, fréttamaður og
formaður Norræna félagsins í
Reykjavík, flytur fyrirlestur í Þjóð-
minjasafni Íslands miðvikudaginn
23. maí kl. 12:05 og fjallar um stöðu
norrænna tungumála í norrænu
samstarfi. Fyrirlesturinn er byggð-
ur á pistlaröð í fréttaskýringaþætt-
inum Speglinum í Ríkisútvarpinu í
síðasta mánuði. Fyrirlesturinn er
hluti af fyrirlestraröð sem Nor-
ræna félagið heldur í samvinnu við
Þjóðminjasafn Íslands sem spannar
allt árið og nefnist Hinar ýmsu hlið-
ar norræns samstarfs.
Ræðir stöðu nor-
rænna tungumála
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þegar ríkisstjórn Samfylkingar og
Vinstri grænna tók við landsstjórn-
inni eftir þingkosningar 2009 var
sköpun starfa eitt forgangsmála.
Fyrsta skrefið var stigið með svo-
nefndri hundrað daga áætlun stjórn-
valda í maí 2009 þar sem boðuð var
mótun „atvinnustefnu í samvinnu við
aðila vinnumarkaðarins og háskóla-
samfélagsins“. Höfðu sömu flokkar
þá boðað framgang „ellefu tillagna
sem gætu skapað ríflega 4000 árs-
verka á næstu misserum“ er þeir voru
í minnihlutastjórn í mars 2009.
Sami tónn var sleginn í samtarfs-
yfirlýsingu Samfylkingar og VG:
„Meginverkefni ríkisstjórnarinnar í
atvinnumálum verður að draga úr at-
vinnuleysi með markvissum aðgerð-
um, útrýma langtímaatvinnuleysi og
skapa traustari grundvöll fyrir ís-
lenskt atvinnulíf til framtíðar … Nú
þegar hefur ríkisstjórnin ráðist í
brýnar aðgerðir til að sporna við at-
vinnuleysi sem skila eiga 6.000 árs-
verkum á næstu mánuðum og miss-
erum,“ sagði í yfirlýsingunni sem var
kynnt í fyrrihluta maí 2009.
Nokkrum vikum eftir að ríkis-
stjórnarsamstarfið var handsalað
gerðu stjórnvöld og aðilar vinnu-
markaðarins með sér stöðugleikasátt-
mála. Plaggið var undirritað 25. júní
2009 og í takt við stjórnarsáttmálann
er þar boðuð „ný sókn í atvinnumál-
um“. Sá fjöldi starfa sem átti að skapa
er ekki tilgreindur.
Átti að skapa þúsundir starfa
Alþýðusamband Íslands sendi frá
sér minnisblað vegna stöðugleikasátt-
málans 16. júní 2009 og sagði þar að
samanlagt gæti verið „um að ræða
fjárfestingaverkefni upp á 280 til 380
milljarða króna á ári næstu þrjú ár-
in“; 280 milljarðar 2010, 380 milljarð-
ar 2011 og 330 milljarðar 2012, sam-
tals 950 milljarðar króna.
Tekið var fram að hér væri um
áætlun að ræða. Átti innspýtingin að
skapa 3.990 ársverk 2010, 5.427 árs-
verk 2011 og 4.632 ársverk á þessu
ári, samanlagt 14.049 ársverk.
Til að setja þessi markmið í sam-
hengi kemur fram á vef Vinnumála-
stofnunar að skráð atvinnuleysi í maí
2009 var 8,7% og að þá hefðu að
meðaltali 14.595 verið án vinnu. Til
samanburðar var skráð atvinnuleysi
ári síðar, eða í maí 2010, 8,3% en þá
voru að meðaltali 13.875 án vinnu.
6.000 störf og 14.000 ársverk
Með því að skapa 6.000 störf á
árinu eftir að stjórnarsáttmálinn var
kynntur, líkt og stjórnvöld boðuðu í
maí 2009, hefðu tæplega 8.000 verið
án vinnu árið eftir eða um 5% vinnu-
aflans. Með því að skapa ríflega
14.000 ársverk, líkt og gert er ráð fyr-
ir í minnisblaði ASÍ, hefði verulega
dregið úr atvinnuleysinu. Nægir þar
að horfa til þess að 10.837 voru án
vinnu í síðasta mánuði.
Sem fyrr segir var atvinnuleysi í
maí 2010 áætlað 8,3%. Tveim mán-
uðum áður, nánar tiltekið 30. mars
2010, birtist skjal á vef forsætisráðu-
neytisins með fyrirsögninni Staða
mála samkvæmt stöðugleikasátt-
mála, með vísan til stöðugleikasátt-
málans sem gerður var í júní 2009.
Vísað til þrjú þúsund starfa
Sagði þar orðrétt undir millifyrir-
sögninni Ýmis atvinnuskapandi verk-
efni og aðgerðir á sviði vinnumála:
„Aðgerðir í atvinnumálum sam-
kvæmt aðgerðaáætlun ríkisstjórnar-
innar sem lögð var fram 6. mars 2009
hafa leitt til sköpunar um 2.392 starfa
og eru verkefni í byggingariðnaði, ný-
sköpun og sjávarútvegi ásamt öðrum
enn í framkvæmd. Fyrir liggja ítar-
legar áætlanir um vegaframkvæmdir
og aðrar framkvæmdir á sviði sam-
göngumála, viðhaldsframkvæmdir,
uppbyggingu háskólasjúkrahúss,
uppbyggingu á fjölsóttum ferða-
mannastöðum, nýsköpunarverkefni
o.fl. sem áætlað er að skapi samtals
tvö til þrjú þúsund ársverk.“
Rúmu ári eftir að forsætisráðu-
neytið skýrði frá því að tekist hefði að
skapa um 3.000 störf voru undir-
ritaðir kjarasamningar, dagsettir 5.
maí 2011, fyrir árin 2011 til 2014.
Samtök atvinnulífsins birtu saman-
tekt um samningana og sagði þar m.a:
„Stjórnvöld eru reiðubúin til sam-
starfs við samtök launafólks og at-
vinnurekenda um sókn í atvinnumál-
um, m.a. á forsendum stefnu-
markandi skjalsins Ísland 2020.
Markmið sóknar í atvinnumálum
er að atvinnuleysi verði ekki
meira en 4 til 5% af vinnuafli í lok
samningstímans. Til að það
markmið náist þarf að auka
hagvöxt umfram horfur að
óbreyttu.“
Rúmu ári eftir undirritun
kjarasamninga, föstudaginn
18. maí 2012, kynnti ríkis-
stjórnin nýja fjárfestingaáætl-
un fyrir árin 2013 til 2015. Á
hún að skapa 4.000 bein störf
og 10.000-11.000 störf alls, ef
afleidd störf eru tekin
með.
Skapa átti þúsundir starfa
Stjórnvöld hafa reglulega sett fram metnaðarfull markmið í atvinnumálum Rúmum þrem árum
eftir að hún tók við eru 10.837 án vinnu Áform um 950 milljarða fjárfestingu runnu út í sandinn
Morgunblaðið/Golli
Úr vinnusalnum hjá Héðni Rafsuðumaður að störfum. Hátt í 11.000 manns voru án vinnu á Íslandi í síðasta mánuði.
Fyrir nokkrum vikum gagnrýndi
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, ríkisstjórnina fyrir van-
efndir á stöðugleikasáttmálanum:
„Nú stefnir í að landsfram-
leiðsla á næsta ári verði um 100
milljörðum króna lægri en gert var
ráð fyrir þegar efnahagsáætlun
þáverandi ríkisstjórnar og AGS var
samþykkt haustið 2008. Þetta
þýðir að störf á Íslandi verða lík-
lega um 10 þúsundum færri en
ella,“ skrifaði Vilhjálmur í pistli.
Í þessu samhengi má rifja upp
að 2. febrúar í fyrra var kynnt
áætlunin Ísland 2020 – sókn fyrir
atvinnulíf og samfélag þar sem
segir orðrétt á bls. 16:
Ríkisstjórnin hefur hvatt til þess
að markmið verði sett um að
skapa 3-5% hagvöxt hér á
landi árið 2011 og a.m.k. 3-
5.000 ný störf.“
Í fyrrahaust flutti Jóhanna
Sigurðardóttir stefnuræðu,
nánar tiltekið 3. október
2011, þar sem hún boðaði
14.000 ný störf í hagkerfinu:
„Fram undan eru á næstu
árum verkefni … sem skapa
munu um 7 þús. störf. Til
viðbótar koma framkvæmdir
í orkugeiranum og tengdum
fjárfestingum en þar er lík-
lega um sambærilegan fjölda
nýrra starfa að ræða,“ sagði
Jóhanna í ræðu sinni.
Munaði 10.000 störfum
SA TELUR SAMNINGANA HAFA VERIÐ SVIKNA
TREFJARÍKAR PRÓTEINSTANGIR
FYRIR KREFJANDI AÐSTÆÐUR