Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
STUTTAR FRÉTTIR
● Samtök stofnfjáreigenda í Spari-
sjóðnum í Keflavík, hafa ákveðið að vera
með aðalfund miðvikudaginn 30. maí
og hefst fundurinn klukkan 18.
„Það virðist hafa myndast áhugi
meðal fólks á því að skoða málsókn á
hendur yfirmönnum, stjórn og endur-
skoðendum Sparisjóðsins í Keflavík.
Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður
samtakanna ætlar að mæta á fundinn
og kynna hvernig staðið yrði að þessum
málaferlum. Reikningar félagsins verða
kynntir,“ segir í tilkynningu.
Stofnfjáreigendur
SpKef íhuga málsókn
● Vísitala byggingarkostnaðar lækkaði
í maí um 0,1% frá fyrri mánuði. Verð á
innfluttu efni lækkaði um 0,6% en vél-
ar, flutningur og orkunotkun hækkaði
samtals um 0,9%. Á síðustu tólf mán-
uðum hefur vísitala byggingarkostn-
aðar hækkað um 7,0%, samkvæmt
frétt á vef Hagstofu Íslands.
Byggingarvísitalan
lækkar lítillega
FRÉTTASKÝRING
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Nýjar reglur frá Evrópuþinginu gætu
hækkað verð á símtölum hér innan-
lands og mögulega hamlað samkeppni
því minni farsímafyrirtæki eigi erfið-
ara um vik að ná reikisamningum er-
lendis. Aftur á móti mun verð á far-
símanotkun erlendis lækka. Enn
fremur getur verið erfitt fyrir fyrir-
tæki á litla Íslandi að semja um gott
verð við risana í Evrópu, því hjálpi
þessar reglur í því tilliti, að ná betri
samningum.
Evrópuþingið samþykkti fyrir um
viku að setja þak á gjöld fyrir notkun
farsíma erlendis. Þau taka gildi 1. júlí
en eru innleidd í skrefum. Einhver bið
er á því að reglurnar verði innleiddar
hér á landi enda þarf sameiginlega
EES-nefndin að taka afstöðu til þeirra.
Björn Gíslason, staðgengill forstjóra
Póst- og fjarskiptastofnunar, segir að
EFTA-ríkin ætli að vinna þetta mál
hratt.
Það eru tvær hliðar á þessari nýju
ESB-reglugerð fyrir símafyrirtækin:
Annars vegar fá þau betri samninga
erlendis sem er til hagsbóta fyrir við-
skiptavini þeirra. Hins vegar þurfa
þau að bjóða erlendum farsímafyrir-
tækjum betri kjör á reikisamningum
hér.
Hrannar Pétursson, framkvæmda-
stjóri samskiptasviðs Vodafone, segir
að almennt taki hann ríkisafskiptum af
þessu tagi ekki fagnandi en hafi skiln-
ing á neytendasjónarmiðinu sem búi
að baki reglunum. „Þá má vel ímynda
sér að símanotkun ferðamanna muni
aukast vegna lægra verðs og við fögn-
um því,“ segir Hrannar.
Vodafone og Síminn reka hér lands-
dekkandi farsímakerfi og því reika
ferðamenn þar inn. Þegar svo háttar
eru fyrirtækin í raun heildsali til er-
lendra félaga sem hafa gert reikisamn-
inga við íslensku fyrirtækin. Hrannar
telur að reglurnar muni lækka fram-
legðina af reikiþjónustunni. Í því felist
áskorun fyrir símafyrirtækin því nokk-
ur kostnaður hljótist af því að veita
hana, til dæmis vegna utanumhalds og
samningagerðar. „Vonandi leiðir þetta
ekki til þess að verð innanlands hækki,
að viðskiptavinir símafyrirtækjanna
þurfi að greiða niður kostnaðinn af
reikiþjónustu við ferðamenn með
hærri símgjöldum. Slíkt er mögulegt,
en tíminn verður að leiða í ljós hvort sú
verður raunin,“ segir hann.
Flestir ferðamenn heimsækja Ís-
land á sumrin. Farsímakerfin verða að
ráða við þessa auknu tímabundnu eft-
irspurn. Hrannar segir að því fylgi
ákveðið óhagræði að símakerfi fyrir-
tækisins þurfi að geta ráðið við mjög
aukna eftirspurn yfir sumarið.
Enn fremur gætu reglurnar verið
samkeppnishamlandi fyrir minni fyr-
irtæki, þar sem ávinningurinn af við-
skiptunum muni minnka. „Það er
vandséð hver er hvati stórra símafyr-
irtækja til að gera samninga um reiki-
þjónustu við ný eða lítil símafyrirtæki
þegar framlegðin snarminnkar. Það
kostar tíma og fjármuni að koma á og
sinna samningum af þessu tagi.“
Oft erfitt fyrir litla Ísland
að semja við risa
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri
Símans, segir að þessi tíðindi séu já-
kvæð fyrir viðskiptavini fyrirtækisins,
enda þýði þetta lægra verð fyrir þá,
þegar þeir eru staddir erlendis og nota
símann og sömuleiðis lægri kostnað
fyrir Símann, þegar fyrirtækið býður
þeim þjónustuna. Hann segir að það
geti verið erfitt fyrir fyrirtæki á litla
Íslandi að semja um gott verð við ris-
ana í Evrópu og því hjálpi þessi reglu-
gerð fyrirtækinu.
Hann nefnir að vegna þess að Ísland
tilheyri EES-svæðinu en ekki ESB,
líði að líkindum einhverjir mánuðir þar
til reglurnar verði innleiddar. Þess
vegna hafi Síminn haft samband við öll
fjarskiptafyrirtækin í Evrópu sem það
skiptir við og óskað eftir því að kjörin
sem fyrirtækjum í Evrópusamband-
inu bjóðist, gildi á sama tíma um Sím-
ann. „Við höfum fengið já frá 80%
þeirra nú þegar,“ segir Sævar Freyr.
„Það er reyndar eitt fyrirtæki búið að
segja nei við okkur.“
Liv Bergþórsdóttir, framkvæmda-
stjóri Nova, segir að unnið sé að því að
semja um verð við heildsala fyrirtæk-
isins um reikiverð.
ESB-reglur gætu hækkað
verð á innanlandssímtölum
Hamlar mögulega samkeppni Ódýrara að nota símann erlendis
Ferðamennska Ferðamenn reika ekki bara milli landa heldur einnig sím-
kerfa. Símafyrirtækin fá minna í vasann upp úr slíkri ferðamennsku.
Árni Sæberg.
Fjarskiptamarkaðurinn
í Evrópu
» Nýjar Evrópureglur gætu
mögulega hækkað verð á sím-
tölum hér innanlands, ef síma-
fyrirtækin þurfa að ýta kostnaði
af símtölum erlendra ferða-
manna frekar út í verðlagið.
» Hamlar mögulega samkeppni
því minni farsímafyrirtæki eigi
erfiðara um vik að ná reikisamn-
ingum erlendis.
» Farsímanotkun á erlendri
grundu verður ódýrari.
» Getur verið erfitt fyrir fyrir-
tæki á litla Íslandi að semja um
gott verð við risana í Evrópu. Því
hjálpi þessar reglur í því tilliti.
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
,11.00
+,2.+-
,+.//0
,+.,2,
+/./23
+42./-
+.03/5
+34.-4
+-+.50
+,/.10
,1+.12
+,2.0,
,+.543
,+.410
+/.51+
+40.+2
+.-1,0
+32.,+
+-,.4
,,4.,2/2
+,/.40
,1+.04
+,2.55
,+.314
,+.4-5
+/.504
+40.0,
+.-1/,
+32./3
+-,./0
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Hlutabréf Facebook lækkuðu um
tæp 13% skömmu eftir að viðskipti
hófust á Nasdaq í gær. Viðskipti hóf-
ust með hlutabréf Facebook á föstu-
dag en í hlutafjárútboði var gengi
fyrirtækisins 38 Bandaríkjadalir á
hlut. Gengi bréfanna fór niður í
33,32dali á hlut síðdegis í gær.
Alls voru seld hlutabréf í Facebo-
ok fyrir 16 milljarða dala í hlutafjár-
útboðinu sem lauk í síðustu viku og
er þetta annað stærsta hlutabréfaút-
boð í sögu bandarísks hlutabréfa-
markaðar. Útboðsgengið var 38 dalir
á hlut sem þýðir að Facebook er
metið á 104 milljarða Bandaríkja-
dala.
Í bandaríska netmiðlinum Bar-
ron’s í gær er fjallað um kauphall-
arskráninguna og hún sögð hafa ver-
ið klúður og verðið of hátt.
Fullyrt er að hlutabréfaverð Face-
book þurfi að lækka talsvert til að
freista fjárfesta. Það sé enn of hátt
miðað við að stjórnendum fyrirtæk-
isins hafi ekki tekist að sýna fram á
með sannfærandi hætti hvernig Fa-
cebook ætli að afla tekna.
AFP
Klúður Netmiðillinn Baron’s segir skráningu Facebook hafa verið klúður
og verðið þurfi að lækka talsvert, ef takast eigi að freista fjárfesta.
Segja skráningu
Facebook klúður
ARMANI
D&G
STENSTRÖMS
BALDESSARINI
SCHUMACHER
ALEXANDER WANG
CAMBIO
ROCCO P
PEDRO GARCIA
PAOLO DA PONTE