Morgunblaðið - 22.05.2012, Síða 17
FRÉTTIR 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
Írska lágfar-
gjaldaflug-
félagið Ryanair
hagnaðist um
503 milljónir
evra, 82 millj-
arða króna, á
síðasta rekstr-
arári sem lauk
þann 31. mars
sl. Er það aukn-
ing um 25%
milli ára og besta ár í rekstri fé-
lagsins.
Tekjur Ryanair jukust um 19%
á milli ára og voru 4,33 milljarðar
evra. Farþegum fjölgaði um 5%
og voru 76 milljónir talsins.
Meðalfargjöld hækkuðu um 16%
á tímabilinu á sama tíma og elds-
neytisverð hækkaði um 30%.
Hagnað-
ur hjá
Ryanair
Michael O’Leary,
forstjóri Ryanair.
Jókst um 25%
Fransk-hollenska flugfélagið Air
France-KLM hyggst segja upp
5.000 starfsmönnum á næstu
þremr árum. Franska blaðið Le
Figaro greinir frá þessu.
Þar segir að stjórn flugfélagsins
reikni með því að um 800 starfs-
menn muni láta af störfum sökum
aldurs á þessum tíma, en það muni
einnig bjóðast til að semja við þá
sem séu reiðubúinir að láta sjálf-
viljugir af störfum.
La Tribune segir að Air France-
KLM sé reiðbúið að gera slíkan
samning við hátt í 3.000 starfs-
menn.
Talsmaður flugfélagins segir að
samningaviðræður standi nú yfir
við stéttarfélög sem snúist um að
finna leiðir til að draga úr kostn-
aði.
„Menn hafa áhyggjur af fjár-
hagsstöðu Air France, sérstaklega
í ljósi samkeppnisstöðunnar,“ seg-
ir talsmaður flugfélagsins í sam-
tali við AFP.
Uppsagnir hjá
Air France?
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Sértryggð skuldabréf Arion banka
hf., ARION CB 15, voru tekin til við-
skipta í Kauphöll Íslands (NASDAQ
OMX Iceland hf.) í gær. Fram kem-
ur í tilkynningu frá bankanum að
skuldabréfin séu annar flokkurinn
sem gefinn sé út undir sértryggðum
skuldabréfaramma Arion banka hf.
dagsettum 9. febrúar 2012.
Þá segir að heildarútgáfa skulda-
bréfaflokksins sé 1.320.000.000 að
nafnvirði, bréfin beri 6,50% óverð-
tryggða vexti og séu með lokagjald-
daga 16. maí 2015.
„Arion banki hf. hefur samið við
MP banka hf. um viðskiptavakt með
skuldabréfin. MP banki hf. mun dag-
lega setja fram kaup- og sölutilboð í
viðskiptakerfi NASDAQ OMX Ice-
land hf. sem nema að lágmarki
20.000.000 kr. að nafnvirði á gengi
sem MP banki ákveður í hvert skipti.
Munur á kaup- og sölutilboði er að
hámarki 1%. Heildarfjárhæð tilboða
sem MP banki er skuldbundinn til að
setja fram á degi hverjum er
60.000.000 kr.,“ segir í tilkynning-
unni frá Arion banka sem send var út
í gær.
Tryggari fjárfestingarkostur
Aðspurður hver sé munurinn á
sértryggðum skuldabréfum og þeim
sem séu ekki sértryggð segir Har-
aldur Guðni Eiðsson, upplýsinga-
fulltrúi Arion banka, að það þýði að
bakvið sértryggð skuldabréf séu
íbúðalán sem geri þetta áhugaverð-
ari og um margt tryggari fjárfest-
ingarkost. „Þetta er að vissu leyti
sambærilegt því að hafa veð í útlán-
um,“ segir Haraldur Guðni.
„Þetta er liður í aukinni fjöl-
breytni í fjármögnun bankans. Þessi
útgáfa núna er óverðtryggð og er
fyrsta slíka útgáfa fjármálastofnun-
ar hér á landi.“ Fjárfestar hafa vana-
lega viljað hafa verðtrygginguna en
nýlegt útboð Arion banka á óverð-
tryggðum sértryggðum skuldabréf-
um tókst vel. Ekki var samt búist við
mikilli hreyfingu á bréfunum þegar
þau voru tekin til viðskipta þar sem
ætla má að fjárfestar sem þátt tóku í
útboðinu muni vilja sitja á þessari
fjárfestingu um nokkurt skeið að
minnsta kosti.
Morgunblaðið/Kristinn
Arion banki Nú er verið að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans með sér-
tryggðum skuldabréfum, en þau voru tekin til viðskipta í gær.
Fjölbreytni auk-
in í fjármögnun
Viðskipti með sértryggð skuldabréf
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
...þú leitar og finnur
Heimskort svart matt
110x65cm kr.9.900-