Morgunblaðið - 22.05.2012, Síða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Leiðtogar Atlantshafsbandalags-
ins, NATO, sögðust í gær hafa tek-
ið „óafturkallanlega ákvörðun“ um
að fela stjórnvöldum í Afganistan á
næsta ári yfirstjórn baráttunnar
gegn talíbönum. Gert er ráð fyrir
að síðustu erlendu hermennirnir
yfirgefi landið fyrir árslok 2014,
Kanadamenn og Hollendingar hafa
þegar kallað heim hermenn sína og
nýir ráðamenn í Frakklandi hyggj-
ast gera það fyrir árslok.
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti sagði eftir viðræður sínar við
Hamid Karzai, forseta Afganist-
ans, á sunnudag að stríðinu í Afg-
anistan myndi í reynd ljúka 2014.
Obama sagði í gær að Afganar
myndu ekki verða hunsaðir eftir
brottför erlenda liðsins. „Þegar
Afganar ná sér aftur á strik munu
þeir ekki verða einir á báti,“ sagði
forsetinn.
Anders Fogh Rasmussen, fram-
kvæmdastjóri NATO, sagði að afg-
anskir her- og lögreglumenn
stýrðu þegar öryggisaðgerðum í
helmingi landsins og myndu verða
reiðubúnir að taka við hlutverkinu
að fullu á næsta ári. „Valdatilfærsl-
an [á næsta ári] merkir að íbúar í
Afganistan munu í vaxandi mæli
sjá eigin hermenn og lögreglu-
menn tryggja öryggi í bæjum og
þorpum,“ sagði Rasmussen.
Deila bandarískra og pakist-
anskra stjórnvalda um birgðaleiðir
í Afganistan varpaði nokkrum
skugga á NATO-fundinn sem hald-
inn var í Chicaco í Bandaríkjunum.
Einnig hafa verið átök milli lög-
reglumanna og mótmælenda af
ýmsu tagi og var búist við að þau
héldu áfram í gær.
Pakistanar lokuðu flutningaleið-
unum inn í Afganistan í kjölfar
bandarískrar loftárásar sem olli
því að nokkrir pakistanskir her-
menn féllu. Viðræður um opnun
birgðaleiðanna hafa staðið yfir en
þær hafa engan árangur borið.
Fela Afgönum stjórnina
Barack Obama Bandaríkjaforseti heitir því að skilja þá ekki eftir á köldum
klaka eftir brottför alls erlenda herliðsins sem fyrirhuguð er árið 2014
AFP
Hlé David Cameron, Barack Obama, Angela Merkel og fleiri gáfu sér tíma frá fundum G-8 ríkjanna í Camp David til að fylgjast með vítaspyrnukeppninni í
úrslitaleik Evrópukeppni félagsliða á laugardag. Viðbrögð Camerons benda til þess að að Chelsea hafi verið að skora.
Óvinsælt stríð
» Fram kemur í könnunum í
Bandaríkjunum að aðeins 27%
kjósenda styðja nú aðgerðirnar
í Afganistan.
» Margir stjórnmálaskýrendur
eru hins vegar á því að herliði
Karzais og manna hans muni
ekki takast að sigra talíbana.
» Fram kom í gær að NATO
myndi ekki grípa til hernaðar
til að stöðva óöldina í Sýrlandi.
Baráttunni vegna forsetakosning-
anna í Egyptalandi á morgun lauk
formlega í gær og benda kannanir til
þess að fjórir frambjóðendur séu lík-
legastir til að verða meðal tveggja
efstu. Ólíklegt er talið að nokkur
sigri strax í fyrri umferð, þ.e. hljóti
meira en helming atkvæða, og munu
þá tveir efstu berjast í seinni um-
ferðinni sem verður 16.-17. júní.
Um er að ræða fyrstu frjálsu og
lýðræðislegu kosningar til embættis-
ins frá því að síðasta konunginum
var steypt af stóli upp úr 1950. Um
50 milljónir manna eru á kjörskrá en
kjörsókn var lítil í þingkosningum
sem fram fóru í nokkrum áföngum í
fyrra og eftir áramótin.
Mohammed Mursi, forsetaefni öfl-
ugustu samtaka íslamista, Bræðra-
lags múslíma, er með langflest at-
kvæði, um 106 þúsund, meðal þeirra
borgara sem búa erlendis og hafa
þegar greitt atkvæði. Næstur hon-
um er Abul Fotouh, sem sagður er
vera hófsamur íslamisti. Fjöldi
Egypta býr og starfar í Sádi-Arabíu
og víðar í heiminum. kjon@mbl.is
Íslamistum spáð
góðu gengi
AFP
Vongóður Veggspjöld með myndum af Mohammed Mursi, forsetaefni
Bræðralags múslíma, í kosningabækistöð samtakanna í Kaíró.
Egyptar kjósa forseta á morgun
Minnst 96 her-
menn létu lífið og
um 200 særðust
þegar maður
klæddur herbún-
ingi sprengdi sig
í Sanaa, höfuð-
borg Jemens, í
gær.
Sprengingin
varð í miðri her-
fylkingu sem
æfði fyrir skrúðgöngu í tilefni af af-
mæli sameiningar norður- og suð-
urhluta Jemens fyrir 22 árum.
Varnarmálaráðherra landsins var
viðstaddur æfinguna en slapp.
Líklegt er talið að sprengjumað-
urinn hafi verið liðsmaður deildar
al-Qaeda í Jemen en herinn reynir
þessa dagana að ganga á milli bols
og höfuðs á henni. Árásin var sú
blóðugasta síðan Abdrabuh Mansur
Hadi, forseti, tók við völdum í febr-
úar af Ali Abdullah Saleh, fyrrver-
andi forseta. Hann ríkti með harðri
hendi í meira en þrjá áratugi.
kjon@mbl.is
Abdrabuh Mansur
Hadi
JEMEN
Nær 100 hermenn
féllu í sprengju-
tilræði í Sanaa
Þjóðernissinninn
Tomislav Niko-
lic, sem sigraði í
seinni umferð
forsetakosning-
anna í Serbíu á
sunnudag, segir
þjóðina munu
halda áfram að
reyna að fá aðild
að Evrópusam-
bandinu.
Nikolic ávarpaði stuðningsmenn
sína þegar sigurinn var í augsýn og
sagði brýnt að bæta efnahag lands-
manna og draga úr fátækt. „Við
verðum að fjölga fæðingum, losna
við mútuþægni og spillingu og eiga
vini um allan heim,“ sagði hann.
Nikolic fékk um 50,2% atkvæða en
keppinautur hans, Boris Tadic, frá-
farandi forseti, tæp 47%.
kjon@mbl.is
Nikolic vill að landið
fái aðild að ESB
SERBÍA
Tomislav Nikolic
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður