Morgunblaðið - 22.05.2012, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
Ungur drengur í Kathmandu,
höfuðborg Nepals, leitar að dótinu
sínu í rústum heimilisins. Það var
rifið nýlega ásamt um 250 öðrum
ólöglegum húsum í fátækrahverfi
og hafast íbúarnir nú við í opnum
garði. En þeim hefur verið heitið
húsnæði í annarri borg.
Reuters
Hvað varð um dótið mitt?
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Hamfarirnar miklu í Japan í fyrra
hafa valdið því að víða um heim eru
stjórnvöld og al-
þjóðasamtök far-
in að huga meira
að viðbúnaði
vegna hvers kyns
hamfara: jarð-
skjálfta, flóða,
eldgosa, skógar-
elda og fellibylja.
Fram kemur í
breska blaðinu
Guardian að það
sem eigi mestan
þátt í að minnka tjón sé viðbúnaður
óbreyttra borgara og hve mikla
fræðslu þeir fá um rétt viðbrögð.
„Hagnaðurinn af því að fjárfesta í
undirbúningi er í fjármálalegu tilliti
geysimikill,“ segir í blaðinu. Tjónið
vegna hamfara í heiminum frá alda-
mótum sé talið nema um 1,4 billj-
ónum dollara, þar af um 800 millj-
örðum dollara síðustu fimm árin. Að
sögn tryggingafélaga varð það rúm-
lega 350 milljarðar dollara í fyrra
eða meira en nokkru sinni fyrr í sög-
unni. Til samanburðar er landsfram-
leiðsla Íslendinga á einu ári nú um
14 milljarðar dollara.
Jarðskjálftinn í Japan í mars í
fyrra var geysiharður og olli auk
þess mikilli flóðbylgju sem sópaði á
brott heilum bæjum og stöðvaði
kjarnorkuver. Sumir hlutar Japans
færðust nokkra metra til austurs og
átökin í jarðskorpunni höfðu áhrif á
snúning jarðar, dagurinn styttist um
liðlega einn þúsundasta úr sekúndu.
En bent er á að fjölmennasta borg
heims, Tókýó, slapp.
Borgir stækka og hættan eykst
Þéttbýlismyndun færist stöðugt í
aukana, einkum í fátækari hlutum
heims. Nýlega urðu tímamót í sögu
1.300 milljóna Kínverja: meirihluti
landsmanna býr nú í borg. Lík-
indareikningur segir okkur að ein-
hvern tíma komi að því að jarð-
skjálfti af sömu stærð og í fyrra eða
enn stærri muni einhvern tíma ríða
yfir eina af stærstu borgunum. Oft
er bent á að Teheran sé á afar
hættulegu svæði en einnig Los Ang-
eles og Istanbúl.
Auka viðbúnað
sinn vegna
náttúruhamfara
Reynslan sýnir að góður undirbún-
ingur borgaranna skiptir mestu
Hamfarir Flóð-
bylgjan í Japan.
Kom á óvart
» Tryggingafélög í ríku lönd-
unum gera ávallt ráð fyrir mikl-
um útgjöldum vegna hamfara
af ýmsu tagi.
» En samt virtist tjónið vegna
fellibyljarins Katrínu í New Or-
leans koma þeim á óvart. Sama
er að segja um tjónið í Japan í
fyrra, aðeins nokkrum árum
eftir flóðbylgjuna miklu á Ind-
landshafi.
Sænsk stjórnvöld
reyna nú að beita
niðurgreiðslum
til að fá fólk til
að kaupa raf-
knúna bíla og
draga þannig úr
útblæstri gróður-
húsalofttegunda.
En áhuginn virð-
ist lítill hjá almenningi, að sögn Da-
gens Nyheter, aðeins 114 bílar af
þessari gerð eru nú á götum Sví-
þjóðar.
Ákveðið hefur verið, þrátt fyrir
þessa slæmu reynslu, að verja sem
svarar nær fjórum milljörðum ísl.
króna í verkefnið á næsta ári.
Rafknúnir bílar eru dýrari en
venjulegir bílar, þannig kostar smá-
bíllinn Nissan Leaf um 367 þúsund
sænskar krónur. En einstaklingur
sem kaupir sér slíkan bíl fær
greiddar 40 þúsund krónur frá rík-
inu eða nær 800 þúsund íslenskar.
Erfiðlega hefur gengið að setja
reglur um þessar greiðslur og
verða fyrstu styrkirnir borgaðir út í
júní.
kjon@mbl.is
Svíar enn lítt hrifnir af
rafknúnum bílum
Lögreglan á Ítalíu leitar nú að
manni, sem grunaður er um að hafa
sprengt sprengju í borginni Brindisi
á Ítalíu á laugardag. Á mynd í ör-
yggismyndavél sást maðurinn með-
höndla einhvers konar fjarstýringu
að sprengjunni, sem banaði 16 ára
stúlku og særði fimm önnur ung-
menni.
Fyrst í stað var talið að mafían
stæði á bak við tilræðið en nú er talið
að einn hafi verið að verki. Á upptök-
unni sést umræddur maður fylgjast
með nemendum stíga út úr hóp-
ferðabifreið og þrýsta svo á hnapp á
einhvers konar fjarstýringu til þess
að sprengja sprengjuna.
Tveir menn voru yfirheyrðir á
laugardag vegna sprengingarinnar
en síðan sleppt. Saksóknari í
Brindisi, Marco Dinapoli, sagði að
svo virtist sem sprengjuárásin hefði
verið framkvæmd af „einhverjum
sem á í stríði við umheiminn“ en
sagðist þó ekki útiloka aðrar skýr-
ingar. kjon@mbl.is
Sprengju-
mannsins
leitað
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ -ÞAÐ ER TENGI
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
HREINSIEFNI FYRIR HEITA POTTA
TAKE
AWA
Y TIL
BOÐ
56
2
38
38
SUÐURLANDSBRAUT 12 | LAUGAVEGUR 81 BRAGAGATA 38a
16”PIZZ
A
2495
.-
með
tveim
ur ále
ggju
m
&12”MA
RGA
RITA
/
HVÍT
LAUK
SBRA
UÐ
2
16”PIZZ
A
3495
.-af mats
eðli
&16”MA
RGA
RITA
/
HVÍT
LAUK
SBRA
UÐ
3
16”PIZZ
A
1895
.-
með
tveim
ur ále
ggju
m
1