Morgunblaðið - 22.05.2012, Qupperneq 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
Jóhanna Ingadóttir frjálsíþróttakona 30 ára
Systurdæturnar Jóhanna með dætrum Bergrósar, systur sinnar, þeim Arndísi og Helgu Björk.
Stór stökk fram á við
„Birkið ilmaði – allt var hljótt,“ Jóhanna og Marteinn í Þórsmörk.
J
óhanna fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp í Grafar-
voginum. Hún var í Folda-
skóla, lauk stúdents-
prófum frá
Kvennaskólanum í Reykjavík 2002,
stundaði nám í lyfjafræði við HÍ og
lauk þaðan prófi sem lyfjafræðingur
2007, og hóf síðan aftur nám árið
2010, við HR, þar sem hún leggur
stund á íþróttavísindi og þjálfun.
Jóhanna vann á sumrin á lager hjá
Hampiðjunni, starfaði hjá Lyfjum
og heilsu í Glæsibæ í eitt sumar og
annað sumar á Sjúkrahúsapóteki
Landspítalans.
Prófaði ýmsar íþróttagreinar
Jóhanna hóf að æfa og keppa í
frjálsum íþróttum með Fjölni er hún
var níu ára, æfði síðan ýmsar grein-
ar íþrótta, s.s. tennis, fimleika og
handbolta, en byrjaði aftur í frjáls-
um er hún var fjórtán ára og hefur
stundað þær síðan, lengst af á veg-
um ÍR.
Jóhanna hefur keppt með lands-
liðinu í frjálsum íþróttum frá 2004,
hefur tekið þátt í sex Evrópubik-
arkeppnum með landsliðinu, er
margfaldur Íslandsmeistari og bik-
armeistari í langstökki og þrístökki,
vann í langstökki á Gautaborgar-
leikunum 2009, vann í langstökki og
þrístökki á landsmóti UMFÍ á Akur-
eyri 2009 og setti þá jafnframt móta-
met í þrístökki, vann í þrístökki á
Smáþjóðaleikunum 2009, vann gull-
verðlaun í þrístökki og silfur-
verðlaun í langstökki á Danska
meistaramótinu innanhúss árið 2009
og vann gullið í langstökki í Evrópu-
bikarkeppni landsliða í Sarajevo
Ég vona að ég fái ekki eins stóra afmælisgjöf nú og í fyrra,“sagði Helgi Vilberg Jóhannsson, bóndi á Arnardrangi í Land-broti, sem er 60 ára í dag. Grímsvatnagosið hófst þá kvöldið
fyrir afmælisdaginn hans og brast á mikill öskubylur í framhaldi af
því. „Ég er ekki vanur að skila afmælisgjöfum en þessari hefði ég vilj-
að skila. Þetta situr enn í manni eftir heilt ár og ég held að maður bíði
þess aldrei bætur að hafa lent í þessu. Maður hugsar með hryllingi til
þess dags þegar þetta gerðist,“ sagði Helgi. Hann missti nærri 30
lömb og 10-12 ær og hefur ekki fengið það bætt. Gosið minnti á sig í
gær þegar öskumistrið var svo dimmt að varla grillti í næsta bæ.
Sauðburður stendur nú sem hæst og var Helgi búinn að setja mikið
af lambfénu út, en ekki nærri allt. Hann gaf hey af sínum túnum til
áramóta en fékk þá miklu betra hey og öskulaust annars staðar frá.
Helgi sagði að tennur kindanna hefðu slitnað töluvert mikið vegna
öskunnar. Enn er mikil aska í túnum og skurðum.
„Ég frétti að konan ætlaði að hafa eitthvað gott að borða,“ sagði
Helgi, spurður um afmælishald í dag. Hann og Sigurdís Þorláksdóttir,
kona hans, eiga 40 ára brúðkaupsafmæli á Jónsmessu, 24. júní, og átti
Helgi von á að haldið yrði upp á það. Yngsta dóttir þeirra og tengda-
sonur, Helga Dís og Róbert Birgir Gíslason, eru flutt að Arnardrangi
og eru að koma inn í búskapinn. gudni@mbl.is
Helgi Vilberg Jóhannsson, bóndi, 60 ára
Morgunblaðið/RAX
Vond gjöf Helgi Vilberg Jóhannsson, bóndi á Arnardrangi í Land-
broti, missti nærri 30 lömb og 10-12 ær í Grímsvatnagosinu í fyrra.
Óskemmtileg af-
mælisgjöf í fyrra
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Bára Sól Björns-
dóttir, Helga Lúð-
víka Hallgríms-
dóttir, Dagmar Íris
Hafsteinsdóttir,
Valgerður Björk
Björnsdóttir og
Ísak Máni Guð-
mundsson héldu
tombólu á Soga-
vegi. Þau söfnuðu
7.079 kr. sem þau
færðu Rauða
krossi Íslands.
Hlutavelta
Akranes Anna Björk fæddist 15. júlí
kl. 6.40. Hún vó 3.990 g og var 50 cm
löng. Foreldrar hennar eru Andrea
Magnúsdóttir og Stefán Teitsson.
Nýir borgarar
Washington, DC Kæja Kristín fæddist
8. maí kl. 21.34. Hún vó 3.430 g og var
50,8 cm löng. Foreldrar hennar eru
Yvonne Kristín Fulbright og Graham
Austin DeJong.