Morgunblaðið - 22.05.2012, Síða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Allt í tengslum við starfið fer batn-
andi á næstu vikum. Raðaðu hlutunum í for-
gangsröð og einbeittu þér að einum hlut í
einu og þá fara hjólin að snúast.
20. apríl - 20. maí
Naut Það hefur oft sannast að gleðin kemur
að innan og hefur ekkert að gera með pen-
inga eða félagslegar aðstæður. Njóttu þess
að tala við samstarfsmenn þína og félaga.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Tvíburinn vill halda hlutunum opn-
um, því í hans huga er ofskipulag þvingað
og stíft. Vertu örlátur og þú munt uppskera
ríkulega. Hugsaðu um eigin velferð.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur látið reka á reiðanum um
sinn og uppgötvar nú hversu langt þig hefur
borið af leið. Rasaðu því ekki um ráð fram
heldur mundu að allt hefur sinn tíma.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Of miklar upplýsingar gætu flækt mál-
in og komið í veg fyrir að þú finnir réttu
lausnina. Viðskiptavinir og samstarfsfólk
eru samvinnuþýð.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vertu ljúfur og lítillátur, þegar til þín
er leitað. Byrjaðu á því að losa þig við hús-
gögn, fatnað, blöð og bækur sem þú hefur
ekki lengur þörf fyrir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Dagurinn hentar sérstaklega vel til
skemmtana og þú skalt gefa þér nægan
tíma til að undirbúa hlutina. Gullhamrar þín-
ir koma þér alltaf á draumaáfangastaðinn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér hefur alltaf þótt skyn-
samlegt að leggja fyrir til mögru áranna.
Það er allt í lagi að leyfa sterkum tilfinn-
ingum að taka yfir rökhugsunina.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er margur leyndardómurinn
sem manninn langar til að finna. Vertu sjálf-
um þér samkvæmur og þú öðlast aftur
stjórn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þið eigið að gefa ykkur tíma til að
njóta félagsskapar vina og vandamanna,
fátt er dýrmætara en góðar stundir í þeim
ranni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur mikla frelsisþörf í dag
og neitar að láta aðra ráða því hvernig þú
lifir þínu lífi. Félagslífið stendur með miklum
blóma um þessar mundir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Eitthvað skrýtið hendir í vinnunni.
Sýndu sjálfstraust í öllum aðgerðum. Bíddu
í einn dag eða svo og athugaðu hvort þú
sért reiðubúin(n) til að breyta afstöðu þinni
á einhvern máta.
Sigurður Sigurðarson dýralækn-ir gaf kollega sínum Jóni Guð-
brandssyni og Þórunni Einars-
dóttur eiginkonu hans ljósmynd
þar sem hún lagði hönd á vanga
Jóns og fylgdu vísur gjöfinni:
Höndin lögð að hálsi og vanga
hjartans kenndum miðlað fær;
snerting lífgar alla anga
allt frá kolli og niður í tær.
Hún með blíðu honum strýkur
hjartað svo að slái rótt,
unaðurinn engu líkur
endist fram á rauða nótt.
Gæfu njóti á láði og legi
ljúfu hjón sem hér fæ kvatt.
Ykkar lífs að endadegi
ástarbálið logi glatt.
„Það var lítil stúlka hérna sem
varð sex vetra í febrúar, systur-
barnabarn hennar Ólafar minnar,“
segir svo Sigurður:
Ásgerður Birna orðin sex
ára máttu trúa,
efnileg og ört hún vex
orðin vængjuð fljúga.
Léttum fótum líður snót
um lífið glöð í huga,
ýmsum gefur undir fót
hún ætlar vel að duga.
Litla stúlkan Ásgerður Birna
ætlar að kveða á menningarnótt í
Reykjavík ásamt öðrum sex ára
krökkum í leikskólanum Álf-
heimum á Selfossi, en þar hefur
Sigurður verið með kvæðalagaæf-
ingar. Þetta verður við Geysis-
húsið á horni Aðalstrætis og Vest-
urgötu 18. ágúst. Þar verður
einnig fólk úr kvæðamannafélag-
inu Árgala. „Þessi stelpa kvað
fyrst er hún var fjögurra ára á
þjóðhátíðardaginn 2010 á hátíð-
arsvæðinu, hún var svo lítil að það
varð að setja hana upp á ræðustól-
inn,“ segir Sigurður og klykkir út
með:
Elti þig gæfan alveg á röndum
Ásgerður Birna með skarti fínu;
beri þig svo á báðum höndum
og baði þig í ljósi sínu.
Það hefur komið fram í hinum
fjölbreytilegasta kveðskap hversu
mjög hefur breytt lífi Péturs Stef-
ánssonar að eignast grill. Enn bæt-
ist í sarpinn:
Sunnudagur og sólin er hlý,
söngfugl í runna kveður.
Ég ætla að grilla á eftir, því
úti er geggjað veður.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af ástföngnum hjónum,
kveðandi stúlku og grilli
G
æ
sa
m
a
m
m
a
og
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
áf
ó
lk
H
ró
lfu
r
h
ræ
ð
ile
g
i
Fe
rd
in
a
nd
MANSTU ÞEGAR
VIÐ HITTUMST
FYRST?
MANSTU HVAÐ
VAR ÞAÐ FYRSTA SEM
ÞÚ SAGÐIR VIÐ MIG?
MIKIÐ ER
ÞETTA SÆTT
BANGSABINDI?
GOTT OG
VEL, ÞAÐ
NÆSTA SEM ÞÚ
SAGÐIR
SEGÐU
MÉR
SATT
HEFURÐU
VERIÐ AÐ
SKAUTA MEÐ
SÆTRI STELPU?
HEF ÉG VERIÐ AÐ SKAUTA
MEÐ SÆTRI STELPU?
ÞAÐ ER GÓÐ SPURNING...
HEF ÉG VERIÐ AÐ SKAUTA
MEÐ SÆTRI STELPU?
HVORT
ÉG HEF!! ÆI, NEI!
EINHVER SAGÐI EINU
SINNI, „ÞÚ GETUR EKKI VALIÐ
ÞÉR FORELDRA, EN ÞÚ GETUR NÁÐ
HVAÐA MARKI SEM ER MEÐ ÞVÍ
AÐ LEGGJA HART AÐ ÞÉR”
HVER
SAGÐI
ÞETTA?
KONUNGUR-
INN
ÉG ER
ORÐIN ÞREYTT
Á ÞVÍ AÐ ÞÚ
TAKIR ÞENNAN
FEITA,
RAUÐKLÆDDA,
GAMLA KALL
FRAM YFIR
MIG
Seint á síðasta ári hófust fram-kvæmdir við nýjan og stærri
knattspyrnuvöll í Grundahverfi á
Kjalarnesi, 116 Reykjavík. Gamla
vellinum var rutt í burtu og svæðið
stækkað á alla kanta. Ætli þessi
nýja æfingaaðstaða Ungmenna-
félags Kjalnesinga, UMFK, sé ekki
á að giska fjórum sinnum stærri en
sú gamla.
x x x
Víkverji hefur heimildir fyrir þvíað ljúka hafi átt fram-
kvæmdum á síðasta ári en það
tókst ekki. Þær áttu svo að hefjast
aftur í vor en lítið sem ekkert hefur
ennþá gerst og langt liðið á maí-
mánuð. Nú hefur Víkverji enga
reynslu af gerð knattspyrnuvalla en
skjöplist leikmannsauganu ekki er
tiltölulega lítið verk óunnið þangað
til hægt verður að þekja hinn nýja
völl. Þá þurfa að líða nokkrar vikur
uns hægt verður að spyrna á vell-
inum.
x x x
Fari verktakinn, sem fram-kvæmdasvið Reykjavíkurborgar
fékk til verksins, ekki að gyrða sig
í brók óttast Víkverji að lítið sem
ekkert verði hægt að æfa á hinu
nýja svæði í sumar. Það er baga-
legt, ekki síst í ljósi þess að gamli
völlurinn er horfinn.
x x x
Það þýðir að UMFK þarf alfariðað treysta á lítinn battavöll
með gervigrasi við Klébergsskóla
sem komið var upp fyrir fáeinum
árum. Það verk tók líka óratíma,
raunar miklu lengri tíma en fróðir
menn sem Víkverji leitaði á sínum
tíma álits hjá töldu eðlilegt. Full-
yrtu sömu álitsgjafar að fram-
kvæmdatími við slíka velli væri tal-
inn í vikum, jafnvel bara dögum, í
flestum öðrum hverfum Reykjavík-
ur – en ekki mánuðum eða árum.
Hverju sætir þetta?
x x x
Víkverji skorar hér með á fram-kvæmdasvið Reykjavík-
urborgar að spýta í lófana og koma
hinum nýja og væntanlega glæsi-
lega knattspyrnuvelli á Kjalarnesi í
gagnið hið fyrsta! víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)
Pöntunarsími: 535 1300
Brettahillukerfi fyrir stór sem smá
vöruhús eða lagera, miklir stækkunar-
möguleikar.
HILLUKERFI
fyrir vöruhúsið, smávörulagerinn
og starfsmannaaðstöðuna
Minna kerfi en uppbyggt á
svipaðan hátt og stærra
brettahillukerfið.
Miklir stækkunar-
möguleikar.
Smærri hillukerfi sem henta
vel á smávörulagerinn eða í
bílskúrinn.
TA
K
T
IK
/3
7
7
3
/3
x
1
5
m
b
l
m
a
r
1
2
Nokkrar stærðir og val um hurðafjölda