Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
Sacha Baron Cohen er tví-mælalaust einn fremsti grín-isti síðasta áratugar og hef-ur hárbeitt samfélags-
gagnrýni hans slegið í gegn á meðal
áhorfenda. Í nýjustu afurð hans, The
Dictator, kynnir hann til sögunnar
norður-afríska einræðisherrann
Hafez Aladeen sem á í höggi við Sam-
einuðu þjóðirnar.
Handrit myndarinnar er mjög lé-
legt og sú atburðarás sem á sér stað
er afar illa útfærð og klaufaleg þó svo
tekið sé tillit til þess að um grínmynd
er að ræða. Ekki er mikið lagt í per-
sónusköpun og allar persónurnar
mjög einfaldar. Anna Faris er fremur
þreytandi í hlutverki sínu sem hin
stutthærða Zoey og innkoma Johns
C. Reilly er döpur. Gaman er að sjá
stórleikarann Ben Kingsley fara með
hlutverk Tamirs í myndinni og lítið
hægt að setja út á frammistöðu hans.
Grínið í myndinni var eins og við
mátti búast; ódýrir og ósmekklegir
brandarar í bland við ágætlega skrif-
aða ádeilu. Mörg atriði sem áttu
greinilega að uppskera mikinn hlátur
misfórust en brosa mátti að öðrum.
Húmorinn gekk að mestu út á orða-
grín og aðra fimmaurabrandara og
það var ekki fyrr en í lokin sem fór að
bera á dýpri húmor. Tónlistin í mynd-
inni er skemmtilega útfærð en þekkt
popplög eru endurgerð og sungin á
móðurmáli Aladeens.
Þó svo Cohen sé búinn að skapa
fjórar persónur sem allar hafa notið
vinsælda þá er sterkur svipur með
þeim öllum. Aladeen bætir í raun
engu við hinar þrjár og vonbrigðin
því talsverð. Grínið risti auk þess ekki
nægilega djúpt þó svo það hafi eflaust
sært blygðunarkennd margra. Ég vil
sjá Cohen snúa sér aftur að heimild-
armyndaforminu sem finna má í
Borat og Brüno.
Einræðisherrann „Handrit myndarinnar er mjög lélegt og sú atburðarás
sem á sér stað er afar illa útfærð og klaufaleg þó svo tekið sé tillit til þess að
um grínmynd er að ræða,“ segir m.a. um The Dictator.
Ósmekklegur
einræðisherra
Sambíóin, Laugarásbíó, Smára-
bíó og Borgarbíó
The Dictator bbmnn
Leikstjóri: Larry Charles. Aðalhlutverk:
Sacha Baron Cohen, Ben Kingsley, John
C. Reilly og Anna Faris. Bandaríkin,
2012. 83 mín.
DAVÍÐ MÁR
STEFÁNSSON
KVIKMYNDIR
Nile Marr, son-
ur Johnnys
Marrs, gítarleik-
ara The Smiths,
kemur fram á
tónlistarhátíð-
inni Reykjavík
Music Mess sem
hefst 25. maí
nk. Nile Marr
kemur fram
undir nafninu Man Made á hátíð-
inni og hefur komið fram undir
því nafni frá því hann var 16 ára.
Marr hlaut árið 2009 veðlaun
sem besti karlkyns flytjandinn
frá bandaríska hljólabrettafyr-
irtækinu Element og hefur m.a.
leikið með Broken Social Scene
og Bright Eyes. Marr mun halda
tónleika á Faktorý föstudags-
kvöldið 25. maí kl. 22 og á Kex
Hosteli á laugardaginn, 26. maí,
kl. 17.
Sonur Marrs á R.M.M.
Nile Marr
Fræðslukvöld
ÚTÓN, Útflutn-
ingsskrifstofu
íslenskrar tón-
listar, verður
haldið í kvöld í
Norræna húsinu
kl. 19:30.
Fjallað verður
um stafræna
dreifingu á tón-
list og m.a. leitast við að svara
því hvernig tónlistarmenn koma
verkum sínum á netveitur sem
selja tónlist og hvernig þeir fái
greitt frá erlendum veitum og
streymiþjónustum. Hringborðs-
umræður fara fram og í þeim
taka þátt Ólafur Arnalds tónlist-
armaður, Trond Tornes, mark-
aðsstjóri netveitunnar Phonofile,
og Daddi Guðbergsson frá Grape-
wire.net.
Fræðslukvöld um
stafræna dreifingu
Ólafur Arnalds
Í gær birtist í Morgunblaðinu frétt
þess efnis að sýning á verkum Die-
ters Roth yrði opnuð nk. föstudag í
Galleríi Fold. Hið rétta er að sýn-
ingin hófst föstudaginn sl. og er beð-
ist velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
Sýning hófst
föstudaginn 18. maí
Ákveðið hefur verið að breska
rokkhljómsveitin Coldplay komi
fram á lokaathöfn Ólympíuleika
fatlaðra í London 9. september. Alls
taka um 2.000 manns þátt í loka-
athöfninni sem hefur verið nefnd
Eldhátíðin og verður á Ólympíu-
leikvanginum í London. Chris Mart-
in, söngvari hljómsveitarinnar, sem
er hér á myndinni, sagði það mik-
inn heiður að fá að taka þátt í at-
höfninni. „Þetta verður eitt af bestu
kvöldunum á ferli okkar,“ hefur
fréttavefur BBC eftir honum.
Ólympíuleikar fatlaðra hefjast
29. ágúst.
Coldplay á lokaathöfn
Ólympíuleika fatlaðra
AP
568 8000 | borgarleikhus.is
Tengdó – HHHHH–EB Fbl
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Þri 22/5 kl. 20:00 aukas Mið 30/5 kl. 20:00 15.k Þri 5/6 kl. 20:00 aukas
Mið 23/5 kl. 20:00 11.k Fim 31/5 kl. 20:00 16.k Mið 6/6 kl. 20:00 19.k
Fim 24/5 kl. 20:00 12.k Fös 1/6 kl. 20:00 aukas Fös 8/6 kl. 20:00 aukas
Fös 25/5 kl. 20:00 13.k Lau 2/6 kl. 20:00 17.k Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Þri 29/5 kl. 20:00 14.k Sun 3/6 kl. 20:00 18.k Sun 10/6 kl. 20:00 lokas
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Fös 25/5 kl. 20:00 Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Bastards - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fim 31/5 kl. 20:00 fors Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00
Í samstarfi við Vesturport ofl. Aðeins þessar sýningar á Listahátíð
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Mið 23/5 kl. 20:00 6.k Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 9/6 kl. 20:00 lokas
Fim 24/5 kl. 20:00 7.k Lau 2/6 kl. 20:00
Tímamótaverk í flutningi pörupilta
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fim 24/5 kl. 19:30 Fös 8/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Fös 25/5 kl. 19:30 Lau 9/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Lau 26/5 kl. 15:00 Sun 10/6 kl. 19:30 Lau 23/6 kl. 19:30 Síð. sýn.
Fös 1/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Lau 2/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30
Fimm stjörnu stórsýning! Síðasta sýning 23. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Sun 3/6 kl. 19:30 Mið 6/6 kl. 19:30 Fim 7/6 kl. 19:30
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Síðustu sýningar.
Afmælisveislan (Kassinn)
Mið 23/5 kl. 19:30 11.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 14.sýn Fös 1/6 kl. 19:30
Fim 24/5 kl. 19:30 12.sýn Mið 30/5 kl. 19:30 15.sýn Lau 2/6 kl. 19:30
Fös 25/5 kl. 19:30 13.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 16.sýn
Eitt vinsælasta verk Pinters. Ósóttar pantanir seldar daglega.
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Lau 26/5 kl. 17:00 Frums. Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 14/6 kl. 19:30
Fös 8/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Pétur Gautur (Stóra sviðið)
Mið 30/5 kl. 19:30
Gestasýning frá Sviss í leikstjórn Þorleifs Arnarssonar. Listahátíð 2012
Glymskrattinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Mið 23/5 kl. 20:00
Frumsýn.
Fös 1/6 kl. 22:30 Sun 3/6 kl. 16:00
Fös 25/5 kl. 22:30 Lau 2/6 kl. 22:30
Danssýning eftir Melkorku Sigríði og Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Listahátíð
TRYGGÐU
ÞÉR SÆTI
Draghálsi 14 - 16
110 Reykjavík
Sími 4 12 12 00
www.isleifur.is