Morgunblaðið - 22.05.2012, Qupperneq 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2012
„Það eru allir rosaglaðir og kátir,
búnir að æfa helling. Hópurinn ætl-
ar að taka þetta af alvöru og það er
enginn kvíðinn fyrir þessu. Sviðið er
þannig að það er frekar vinalegt að
koma inn á það. Það er minna en
sviðið í Hörpu, sviðsgólfið sjálft en
svo er náttúrlega bakgrunnurinn
gríðarlega mikill. Öllum líður vel á
sviðinu,“ segir Jónatan Garðarsson,
fararstjóri íslenska Evróvisjón-
hópsins. Eins og allir Evróvisjón-
aðdáendur vita fer fyrri hluti und-
ankeppni Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva fram í kvöld í Baku
í Aserbaídsjan. Greta Salóme Stef-
ánsdóttir og Jón Jósep Snæbjörns-
son flytja þá framlag Íslands, „Nev-
er Forget“, ásamt bakröddum en
bein útsending frá keppninni hefst
kl. 19 á RÚV. Blaðamaður ræddi
stuttlega við Jónatan og Gretu í
gær.
Gangar hótelsins vel nýttir
– Hvað er búið að æfa atriðið oft?
„Við erum búin að æfa stanslaust
á hverju degi frá því við komum út.
Við fórum fyrst yfir þetta á sviði
sunnudaginn eftir að við komum út
og svo aftur á fimmtudeginum, þá
gátum við rennt fjórum sinnum í
gegnum lagið í hvort skipti og lagað
staðsetningar, myndvinnslu og allt
það. Svo erum við búin að æfa á
hverjum einasta degi á hótelinu,
gangarnir nýtast vel. Það eru sjö
eða átta lönd á okkar hóteli og það
eru allir gangar fullir af fólki að
æfa,“ segir Jónatan en hann hefur
verið fararstjóri íslensku Evr-
óvisjónhópanna frá árinu 2001, að
tveimur árum undanskildum. Spurð-
ur að því hvernig skipulagið í kring-
um keppnina í Aserbaídsjan sé, í
samanburði við Þýskaland í fyrra,
segir Jónatan að það sé lausara í
reipunum. Öryggisgæslan sé þó
miklu meiri í Baku.
„Það er aldrei lognmolla hjá ís-
lenska hópnum, það er alltaf gaman
hjá okkur. Upphitanirnar eru meira
að segja brjálað stuð,“ segir Greta
Salóme og hlær. En ætli hún sé ekki
orðin leið á því að syngja lagið?
„Nei, ég hef ekki orðið leið á þessu
ennþá, það er merkilegt. Ég hef
náttúrlega verið að vinna með þetta
lag síðan 2010. Það hefur verið svo
mikil þróun í þessu frá byrjun.“
helgisnaer@mbl.is
„Það er alltaf gaman hjá okkur“
Enginn sviðsskrekkur er í íslenska Evróvisjónhópnum í Baku Þrotlausar æfingar að baki
Mikil öryggisgæsla í borginni Skipulag mun lausara í reipunum en hjá Þjóðverjum í fyrra
Stuð Íslenski hópurinn syngur „Never Forget“ við komuna í opnunarveislu Evróvisjón í Baku, laugardaginn sl.
18 lög verða flutt í kvöld í
fyrri undankepnni Evróvisjón.
Fyrsta lagið sem flutt verður í
kvöld er frá Svartfjallalandi,
„Euro Neuro“ en það flytur
Rambo Amadeus. Íslenski hóp-
urinn fer á svið að því loknu
og flytur „Never Forget“, eða
„Mundu eftir mér“ og þvínæst
kemur Grikkland, Eleftheria
Eleftheriou flytur lagið
„Aphrodisiac“. Þá koma, í
réttri röð, Lettland, Albanía,
Rúmenía, Sviss, Belgía, Finn-
land, Ísrael, San Marínó, Kýp-
ur, Danmörk, Rússland, Ung-
verjaland, Austurríki og
Moldóva. Írland rekur svo lest-
ina með dúettnum Jedward
sem flytur lagið „Waterline“.
Ísland annað
í röðinni
SYNGJA Á EFTIR RAMBO
Robin Gibb lést í fyrradag, 62 ára
að aldri. Gibb var einn meðlima
hinnar gríðarvinsælu hljómsveitar
Bee Gees. Hann háði baráttu við
krabbamein í ristli og lifur undir
lok ævi sinnar og lést af völdum
sjúkdómsins. Gibb ræddi fyrst um
veikindi sín opinberlega í janúar og
sagði þá að meðferðin við krabba-
meininu gengi vel. Gibb var fluttur
á spítala fyrir tveimur árum og var
skorinn upp við garnaflækju en
garnaflækja dró bróður hans og
annan liðsmann Bee Gees, Maurice,
til bana fyrir níu árum. Þriðji bróð-
irinn, Andy, lést árið 1988 en hann
var ekki í Bee Gees. Fjórði bróð-
irinn, Barry Gibb, er á lífi.
Barry, Maurice og Robin stofn-
uðu Bee Gees árið 1958 og sló
hljómsveitin í gegn áratug síðar.
Vinsældir Bee Gees náðu hámarki á
tímum diskótónlistarinnar á átt-
unda áratugnum.
Allur Robin Gibb lést af völdum krabba-
meins í fyrradag, 62 ára að aldri.
Söngvarinn Robin
Gibb látinn
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
HHHH
- T.V. Séð og
MEN IN BLACK 3 MIÐNÆTURSÝNING Sýnd kl. 24
THE DICTATOR Sýnd kl. 6 - 8 - 10
THE FIVE YEAR ENGAGEMENT Sýnd kl. 8
THE RAID Sýnd kl. 10:25
THE AVENGERS 3D Sýnd kl. 7 - 10
LORAX 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 6
BRÁÐSKEMMTILEG MYND FRÁ
FRAMLEIÐENDA BRIDESMAIDS
OG LEIKSTJÓRA
FORGETTING SARAH MARSHALL
SPREN
GHLÆ
GILEG
MYND
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐI OKKUR BORAT
KEMUR EIN FYNDNASTA MYND
ÁRSINS ÞAR SEM SASHA BARON
COHEN FER Á KOSTUM Í HLUTVERKI
KLIKKAÐASTA EINRÆÐISHERRA
ALLRA TÍMA MEN IN BLACK 3
WILL SSMITH TOMMY LEE JONES JOSH BROLIN
MIÐNÆTUR –
FORSÝNING
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
STÆRSTA OFURHETJU-
MYND ALLRA TÍMA
HHHH
- J.C. Total
HHHH
- J.C. Variety
HHHH
- T.M. Hollywood
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ GILDA EKKI Í BORGARBÍÓI
SMÁRABÍÓ
HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
MIB 3 3D FORSÝNING KL. 23:59 10
THE DICTATOR KL. 4 - 6 - 8 - 10 12
THE DICTATOR LÚXUS KL. 4 - 6 - 8 - 10 12
THE FIVE YEAR ENGAGEMENT KL. 8 - 10.40 12
LOCKOUT KL. 8 12
HOW I SPENT MY SUMMER VACATION KL. 10.10 16
21 JUMP STREET KL. 5.40 - 8 - 10.30 14
MIRROR MIRROR KL. 3.30 L
LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 - 5.45 L
HUNGER GAMES KL. 5 12
- T.V., KVIKMYNDIR.IS
THE DICTATOR KL. 6 - 8 - 10 12
THE 5 YEAR ENGAGEMENT KL. 5.45 - 8 12
LOCKOUT KL. 10.15 12
- V.J.V., SVARTHÖFÐI.IS
LOKAÐ 18. - 23. MAÍ