Morgunblaðið - 22.05.2012, Blaðsíða 40
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 143. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Hrapaði þegar bandið slitnaði
2. Verðirnir létu höggin dynja
3. Robin Gibb látinn
4. Verða kynnt fyrir drottningunni
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Vefurinn TrekMovie greinir frá því
að tökur fyrir næstu Star Trek-
kvikmynd fari fram hér á landi. Eng-
inn aðalleikara hennar muni koma til
landsins en hugsanlega leikstjórinn,
JJ Abrams, sem gerði síðustu mynd.
Atriði fyrir Star Trek
verða tekin á Íslandi
Sverrir Þór
Sverrisson, betur
þekktur sem
Sveppi, hefur
undanfarna daga
kynnt nýjustu
kvikmyndina um
ævintýri sín, Al-
gjör Sveppi og
töfraskápurinn, á
alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Can-
nes, ásamt leikstjóra og framleið-
anda myndarinnar, Braga Þór Hin-
rikssyni.
Sveppi kynnir
kvikmynd í Cannes
Sigur Rós fékk 12 listamenn, m.a.
John Cameron Mitchell og Ragnar
Kjartansson, til þess að gera stuttar
myndir út frá lögum væntanlegrar
plötu sveitarinnar, Valt-
ara, og höfðu þeir
frjálsar hendur.
Fyrsta myndin, eftir
Ragnar, við lagið „Ég
anda“, var frum-
sýnd í gær á vef
hljómsveit-
arinnar, sig-
ur-ros.co.uk.
Stuttar myndir unnar
út frá lögum Valtara
Á miðvikudag Suðaustan og sunnan 5-13 m/s og rigning eða
súld, en þurrt að kalla á norðaustanlands. Hiti 8 til 12 stig, en 12 til
18 á norðaustanverðu landinu.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, 2-13 m/s, víða rigning eða súld
vestan- og sunnanlands, en þurrt að mestu á Norður- og Austur-
landi. Hiti 5 til 16 stig, hlýjast norðanlands.
VEÐUR
Bjarni Jóhannsson
fagnaði sínum 100.
sigri sem þjálfari í efstu
deild þegar Garðabæj-
arliðið vann stórsigur
suður í Grindavík í gær-
kvöld, 4:1. Stjarnan er
þar með komin í þriðja
sæti Pepsi-deildar karla
í fótbolta. Nýliðarnir
frá Selfossi eru í 6.
sæti eftir sigur á Fram
á Laugardalsvelli, 2:0.
»2-3
Bjarni fagnaði
100. sigrinum
Anton Rúnarsson, handboltamaður
úr Val, er búinn að semja við danska
úrvalsdeildarliðið SönderjyskE til
næstu tveggja ára. „Þjálfarinn ætlar
mér stóra hluti og vill að ég verði í
lykilhlutverki hjá liðinu,“ segir Anton
sem hefur æfingar með SönderjyskE
um miðjan júlí. »1
Anton Rúnarsson samdi
við SönderjyskE
Íslandsmeistari unglinga í golfi, Guð-
rún Brá Björgvinsdóttir úr Keili í
Hafnarfirði, setti glæsilegt vallarmet
á Garðavelli á Akranesi um helgina.
„Þetta er minn besti hringur frá upp-
hafi. Það gekk allt vel á þessum
hring,“ sagði Guðrún við Morg-
unblaðið og kveðst hafa búið sig sér-
staklega vel undir þetta keppn-
istímabil. »4
Þetta er minn besti
hringur frá upphafi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
aslaug@mbl.is
,,Þetta er algjörlega frábær leið til
að kynnast nágrönnum sínum og
þekkja götuna betur,“ segir Mar-
grét Kristmannsdóttir sem býr í
Sævargörðum á Seltjarnarnesi en
þar hafa konurnar myndað óvenju-
lega götustemningu með heimsókn-
um sín á milli.
,,Á hverju sumri hefur verið hald-
ið götugrill, síðasta sumar byrj-
uðum við konurnar að tala um hvað
húsin væru mörg nákvæmlega eins
hönnuð en rosalega ólík að innan.
Þá kom upp sú hugmynd að við
færum allar í heimsókn í öll hús
götunnar,“ segir Margrét, en Sæv-
argarðar eru botlangagata með 18
húsum. Konurnar ákváðu því að
skipta húsunum í þrennt og heim-
sækja sex hús í einu. ,,Það var mjög
gaman að sjá hvað konurnar höfðu
útbúið sér ólík heimili,“ segir Mar-
grét en þær byrjuðu á fystu sex
húsunum í haust, heimsóttu næstu í
janúar og enduðu í vor á seinustu
húsunum. ,,Við tókum bara einn
vetur í að heimsækja öll húsin í göt-
unni.“
Einstök upplifun
Konurnar byrjuðu í einu húsi á
föstudagskvöldi þar sem tekið var á
móti þeim með léttum veitingum.
Þar fengu þær smáleiðsögn um hús-
ið og fóru síðan í halarófu í næsta
hús þar sem sama rútína tók við.
Þannig gekk þetta koll af kolli
þangað til þær höfðu heimsótt öll
sex húsin. ,,Aðallega fór tíminn í
að skemmta sér og kynnast bet-
ur. Síðan var reyndin alltaf sú
að við stoppuðum lengst í
seinasta húsinu,“ segir Mar-
grét. Stemningin í götunni
hefur alla tíð verið mjög góð
að sögn Margrétar, en fólk-
ið hefur þekkst misvel.
Núna þekkjast konurnar
hinsvegar mun betur. ,,Um leið og
þú hefur komið heim til einhvers er
miklu auðveldara að banka upp á og
koma í kaffi,“ segir Margrét sem er
gríðarlega ánægð með fyrir-
komulagið í götunni og hversu vel
það hafi tekist. Konurnar í götunni
eru á öllum aldri, allt frá þrítugu
upp í áttrætt. Sumar hafa búið frá
upphafi í götunni og aðrar eru til-
tölulega nýfluttar inn. ,,Við fundum
ekkert fyrir aldursmuninum,“ segir
hún.
,,Þetta hefur verið einstök upp-
lifun hjá okkur í vetur en við erum
hvergi nærri hættar. Við tökum
ákvörðun í götugrillinu í sumar
hvað við gerum saman næsta vetur.
Þetta var bara upphafið,“ segir
Margrét.
Skemmtilegasta gata í heimi
Konurnar heim-
sóttu öll húsin í
Sævargörðunum
Sævargarðar Konurnar sem búa á Sævargörðum á Seltjarnarnesi hafa kynnst vel í vetur enda hafa þær heimsótt
öll húsin í götunni. Þeim finnst auðveldara nú að kíkja í kaffi til nágranna sinna og vinkvenna í götunni.
,,Karlarnir eru rosalega ánægðir
með þetta, þeir voru oft heima að
hjálpa konunni að taka á móti
hópnum. Það er ekki leið-
inlegt að fá svona
skemmtilegan kvennahóp
heim. Þeir þekkjast
reyndar ekki eins vel inn-
byrðis og við konurnar
gerum núna en kannski fá
þeir einhverja hugmynd
um að gera eitthvað
saman núna. Ég hvet alla til að
gera svona í götunum, þetta er
frábær leið til að kynnast nágrönn-
unum,“ segir Margrét Kristmanns-
dóttir.
,,Það hefur verið rætt til gamans
að nú þyrfti að fara að láta sam-
þykkja nýjan nágranna ef einhver
ætlar að flytja. Það er nauðsynlegt
að nýr nágranni passi inn í þennan
góða hóp og anda sem er í göt-
unni,“ segir Margrét.
Karlarnir ekki síður ánægðir
ÞETTA ER FRÁBÆR LEIÐ TIL AÐ KYNNAST NÁGRÖNNUNUM
Margrét Kristmannsdóttir