Morgunblaðið - 19.06.2012, Page 36

Morgunblaðið - 19.06.2012, Page 36
Hrunamannahreppur og Land- græðsla ríkisins hafa gert samning um tilraunaverkefni til þriggja ára um notkun seyru til landgræðslu. „Við vilj- um kanna í þaula hvernig gengur að nýta seyru til land- græðslu og/eða -bóta,“ segir Jón G. Valgeirsson, sveitar- stjóri Hrunamannahrepps, en tilraunin verður gerð á afgirtu landgræðslulandi á afréttinum. Jón segir verkefnið vera í þann mund að hefjast og hefur hann miklar vonir um að það skili tilætl- uðum árangri. „Von- andi verða þarna grænar grundir.“ Nýtt verkefni að hefjast SEYRA TIL LANDGRÆÐSLU ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 171. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Dúxinn fékk 9,9 í einkunn 2. Ætlaði að ná tíunni 3. Með blautan svefnpoka gegn eldi 4. Skemmtilegt en hættulegt sport »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tríó saxófónleikarans Óskars Guð- jónssonar leikur á KEX Hostel í kvöld kl. 21. Auk Óskars skipa tríóið gítar- leikarinn Eðvarð Lárusson og trommuleikarinn Matthías Hem- stock. Tríóið mun m.a. fytja eigin út- setningar á tónlist úr Dýrunum í Hálsaskógi eftir Torbjörn Egner. Tríó Óskars Guðjóns- sonar á KEX Hostel  Eivør Pálsdóttir og Mikael Blak koma fram sem dúett á tónleikum í Kaldalóni Hörpu annað kvöld kl. 20. Jafnframt leikur hljóm- sveitin Yggdrasil frá Færeyjum sem komið hefur reglulega fram á Íslandi sl. þrjátíu ár. Tónleikarnir eru nokkurs konar upphitun fyrir tónleikaferðalag hópsins til Bandaríkjanna og Kanada. Eivør, Mikael Blak og Yggdrasil í Hörpu S.L.Á.T.U.R. með hljóðverk í Nýló  S.L.Á.T.U.R. flytur hljóðverk í Ný- listasafninu í kvöld kl. 20. Flutt verða verk eftir Þráin Hjálmarsson, Hallvarð Ásgeirsson Herzog, Jesper Pedersen, Pál Ivan frá Eiðum, Ríkharð H. Frið- riksson, Christoph Schiller og Loic Grobéty. Dagskráin er í tengslum við sýninguna Volumes for Sound eftir lista- mennina Melissa Dubbin og Aaron S. Davidson sem nú stendur yfir í safninu. Á miðvikudag og fimmtudag Suðvestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Skúrir í flestum landshlutum, einkum síðdegis. Hiti 7-15 stig. Á föstudag Suðvestlæg átt. Víða skýjað með köflum. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg breytileg átt eða hafgola. Skýjað með köflum og síðdegisskúrir í flestum landshlutum. Hiti 5 til 15 stig, svalast við austurströndina. VEÐUR Anna Úrsúla Guðmunds- dóttir, landsliðskona í hand- knattleik, segir að það hafi komið skemmtilega á óvart að Ísland skyldi fá sæti í lokakeppni Evrópumótsins í Serbíu. „Þetta eru alveg frá- bærar fréttir og við stóðum okkur alveg nógu vel til að ná inn í lokakeppn- ina,“ sagði Anna en Íslendingar taka sæti Hollendinga í keppninni. »1 Við stóðum okkur alveg nógu vel Danski sóknarmaðurinn Christian Ol- sen vinnur við löndun á nóttunni í Vestmannaeyjum og spilar síðan með liði ÍBV. Hann sló heldur betur í gegn með því að skora þrennu gegn ÍA á föstudagskvöldið og er ánægður með lífið í fótbolta og fiski í Eyj- um. Olsen er leik- maður 7. umferðar hjá Morgunblaðinu en lið umferð- arinnar er í blaðinu í dag. »2-3 Ánægður í fótbolta og fiski í Eyjum Webb Simpson kom flestum á óvart með því að vinna sigur á opna bandaríska meistaramótinu í golfi sem lauk í fyrrinótt. Hann hafði aldrei áður verið nærri því að vinna eitthvert stóru mótanna og á lokahringnum bannaði kylfu- sveinninn honum að fylgjast með stöðutöflunni, með góðum ár- angri. »4 Var bannað að fylgjast með stöðutöflunni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Þetta gekk alveg rosalega vel. Við dreifðum 13,2 tonnum af áburði og um 200 kílóum af fræi. En svo dreifðum við líka 110 rúllum og 107 stórböggum í rofabörð og á mela,“ segir Esther Guðjónsdóttir, for- maður Landgræðslufélags Hruna- manna, en árleg uppgræðsluferð félagsins í afréttinn var farin 15. júní síðastliðinn. Landgræðslufélag Hrunamanna var stofnað 25. febrúar árið 2007 og í dag eru meðlimir þess alls 32 tals- ins. Frá árinu 1992 hefur skipuleg uppgræðsla á afrétti Hrunamanna verið unnin af áhugamönnum með mjög góðum árangri. Ómetanleg störf sjálfboðaliða Að þessu sinni tóku 29 vaskir sjálfboðaliðar þátt í leiðangrinum og segir Esther hópinn hafa unnið mikið og þarft verk á skömmum tíma. Notast var við fjöldann allan af stórum dráttarvélum og áburðardreifurum við verkið en stór hluti þess var þó unninn með höndum. „Við erum afskaplega ánægð með hvað fólk var duglegt í ferðinni,“ segir Esther. Afréttur Hrunamanna er víð- áttumikið landsvæði, um 960 fer- kílómetrar, sem nær frá byggð, inn með Hvítá að austan, norður fyrir Kerlingarfjöll að Hofsjökli. Segir Esther það vera ómet- anlegt að fólk gefi tíma sinn og sinni þessu mikilvæga verkefni en að sögn hennar eru bændur og áhugafólk á svæðinu meira en fús til að leggja hönd á plóg. Árang- urinn leynir sér heldur ekki. Frá því að skipulögð vinna hófst við uppgræðslu á afrétti Hrunamanna hefur tekist að rækta upp áður ógróin svæði. „Þetta hefur gengið alveg mjög vel og mikill árangur náðst með þessu,“ segir Esther. Eins og gefur að skilja eru land- græðsluverkefni mjög kostn- aðarsöm enda áburður og önnur nauðsynleg áhöld sem notast er við til ræktunar ekki ódýr. Fjárstyrkir nauðsynlegir Hefur Landgræðslufélagið því reitt sig á styrki frá fyrirtækjum og öðrum fjársterkum aðilum sem leggja vilja verkefninu lið. „Við höfum fengið styrki frá Landbótasjóði síðustu ár og eins frá Hrunamannahreppi en einnig hefur Arion banki styrkt okkur,“ segir Esther. Í ár veitti Landbótasjóður tæplega eina og hálfa milljón króna til verkefnisins og segir Esther alla fjárstyrki nýtast vel enda „nauð- synlegt að stoppa uppblást- urinn“. Yfir 13 tonnum af áburði dreift  Öflugir sjálfboðaliðar létu til sín taka í afrétti Hrunamanna um liðna helgi  Sáðu 200 kílóum af fræi Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Hrunamenn Vinnusamur hópur sjálfboðaliða lagði sitt af mörkum til uppgræðslu lands í Hrunamannaafrétti. Fyrir hópnum fór Esther Guðjónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.