SunnudagsMogginn - 03.06.2012, Page 29

SunnudagsMogginn - 03.06.2012, Page 29
3. júní 2012 29 tröð. Ég las eitt sinn orð gamals nemanda sem sagði að ef hún segði frá því hvernig námið væri þá myndi deildarstjórinn vera handtekinn. Ég er nokkuð sammála þessum orðum en ætla ekki að segja of mikið. Louise er afar ströng en hefur einnig til að bera mjög góða kosti. Þegar ég fór til hennar til að fá álit þá komst ég alltaf að því að hún hafði rétt fyrir sér. Þegar hún benti mér á hvar mér hafði mistekist þá sá ég um leið að það var rétt hjá henni. Louise er gríðarlega vel tengd og frægir hönnuðir, fyrrverandi nemendur hennar, komu stundum og ræddu við okkur nemendurna og miðluðu af reynslu sinni. Ég sat fyrirlestra sem ég hefði ekki fengið tækifæri til að hlusta á annars staðar, til dæmis kom Alber Elbaz, yfirhönnuður Lanvin, og talaði um hönnun, það er örugglega mjög sjaldgæft að fá tækifæri til að hlusta á hann í persónulegu umhverfi.“ Hrifin af hreinum formum Hvernig vildi svo til að þú fékkst tækifæri til að vinna hjá Yves St. Laurent? „Náminu í Central Saint Martins lýkur með sýn- ingu á London Fashion Week en þetta er eini skól- inn í heiminum sem sýnir á alþjóðlegri tískuhátíð. Þarna sýndi ég mína hönnun og allir útskriftar- nemar sýndu svo hönnun sína á einkasýningu en á hana kom fólk sem starfar sem eins konar milliliðir fyrir hönnunarfyrirtæki. Ef þessi fyrirtæki vantar hönnuði þá taka þessir milliliðir að sér að finna góða hönnuði, en afar sjaldgæft er að störf í fata- hönnun séu auglýst. Milliliðir fyrir Yves St. Laurent komu á sýninguna, töluðu við alla útskriftarnem- endur og skoðuðu verk þeirra og völdu síðan fjóra nemendur til að koma í atvinnuviðtal í París. Ég var ein af þeim og það endaði svona vel. Í meistara- náminu sérhæfði ég mig í textíl fyrir fatahönnun og þegar ég fór í þetta viðtal sýndi ég textílinn sem ég hafði verið að vinna við. Nýr yfirhönnuður er tek- inn við hjá Yves St. Laurant og hann vill fá nýtt fólk í sínar raðir. Ég hitti hann og fór síðan í atvinnu- viðtal. Eftir nokkra daga var haft samband við mig og mér sagt að þeir vildu fá mig til starfa. Ástæðan fyrir því að ég fór í strangt og erfitt hönnunarnám var sú að ég vildi komast á svona stað. Það er mjög erfitt að komast í starf hjá fyrirtæki eins og Yves St. Laurent, þannig að ég trúi því varla ennþá að mér hafi tekist það.“ Víkjum að hönnun þinni. Hvað einkennir þín fatasnið? „Það má segja að snið mín einkennist af einfald- leika, því þegar textíllinn er orðinn flókinn þá er ekki endilega fallegt að vinna með flókin form. Ég vinn þannig að ég vel efnið, vinn með það og vel því síðan fremur einfalt snið.“ Eru einhver tímabil í tísku og hönnun sem heilla þig meira en önnur? „Á tímabilinu 1950-60 voru ótrúlega hreinar línur og form sem sköpuðu fallegan einfaldleika. Þetta var ekki brjáluð tíska þar sem allt var ofhlaðið heldur rólegt tímabil sem mér finnst mjög heillandi. Síðan finnst mér tískan sem spratt upp um 1990 mjög flott en þá er einfaldleikinn aftur ríkandi. Ég er hrifin af hreinum formum, er ekki mikið fyrir brjálæði í þeim efnum.“ Hvað verðurðu lengi í vinnu hjá Yves St. Laur- ent? „Ég kem heim í vetur. Ég er ólétt og á von á frumburðinum í byrjun nóvember. Ég ákvað strax að óléttan skyldi ekki stoppa mig í því að flytja til Parísar og taka við starfinu hjá Yves St. Laurent. Ég var orðin svo þreytt á að búa í London að ég hefði örugglega flutt hvert sem er til að komast þaðan. Ég hafði aldrei komið til Parísar áður en ég fór í at- vinnuviðtalið þannig að þegar ég ákvað að taka við starfinu var ég alveg óviss hvernig mér myndi líka að búa í París. Stærsta vandamálið er að ég þarf að fara í skoðanir og vera undir eftirliti á meðgöng- unni. Ég var ekki alveg viss hvernig það myndi allt ganga í nýju landi þar sem ég tala ekki tungumálið, en ég ákvað bara að það myndi bjargast, börn fæð- ast víst í París eins og annars staðar í heiminum. Kærastinn minn, Freyr Tómasson, býr á Íslandi, hann er hagfræðingur og vinnur hjá CCP. Hann þarf að vera á Íslandi og það er ekki draumur hans að vera fjarverandi meirihluta meðgöngunnar. En hann skilur vel að ég vildi fara og studdi mig full- komlega í því, eins og öllu öðru. Hann kemur líka reglulega í heimsókn og er mjög ánægður að eyða sumarfríinu í París. Þetta er ótrúlega falleg borg og það er mjög auðvelt að aðlagast menningunni. Og sumarið hérna verður yndislegt. Við Freyr höfum verið í sundur í langan tíma, allt frá því ég var í miðju BA-námi í Amsterdam fyrir fimm árum. Nú þegar við eigum von á barni getum við ekki lengur sætt okkur við að vera í sundur. Ég er ekki viss um að fjarsamband með ungbarn gangi upp þannig að ég stefni á að koma heim næsta vet- ur. Síðan sé ég til með framhaldið, það er allt opið í þeim efnum.“ Sýnishorn af fallegri og stílhreinni hönnun Ernu. Hún segist vera hrifin af hreinum formum. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.