SunnudagsMogginn - 03.06.2012, Page 37
Laufey Kristjánsdóttir ásamt eiginmanni sínum, Val Norðra Gunnlaugs-
syni og dætrunum Þórunni og Hönnu Kristínu.
3. júní 2012 37
Kynþáttahatur er ennog aftur í brenni-depli, eftir umfjölluní breska fréttaþætt-
inum Panorama á BBC í vikunni.
Þar voru sýnd ný dæmi um
ótrúlega framkomu áhorfenda á
knattspyrnuvöllum í Úkraínu
og því haldið fram að hægri
öfgamenn haldi íþróttinni þar í
landi nánast í heljargreipum.
Sláandi var að horfa á þáttinn;
lýst var ömurlegri framkomu
hvítra heimamanna gegn fólki af
öðrum kynþáttum í máli og
myndum; hrikalegasta dæmið
líklega þegar nokkrar bullur
tóku sig til og réðust að ungum,
asískum áhorfendum með bar-
smíðum og spörkum af engri
annarri ástæðu en húðlitarins.
Þetta fólk sat í stúkunni á meðal
stuðningsmanna heimaliðsins,
sem dólgarnir studdu líka, vel
að merkja. Og viðbrögð örygg-
isvarða voru einkennilega lítil.
Yfirvöld í Úkraínu og Pól-
landi, þar sem ástandið er held-
ur ekki gott, hafa gert lítið úr
fréttamanni breska ríkissjón-
varpsins og sagt hann gefa ranga
mynd af gangi mála. Sá mál-
flutningur kemur auðvitað ekki
á óvart því úrslitakeppni Evr-
ópumótsins hefst eftir fáeina
daga í löndunum tveimur og
ferðamannastraumur á mótið
skiptir þjóðirnar miklu máli.
Sorglegt er að mannskepnan
skuli ekki vera orðin þroskaðri
en þessi dæmi sanna, þegar
komið er inn í 21. öldina. En rétt
er að benda á, enn einu sinni, að
kynþáttafordómar eru ekki
vandamál knattspyrnuhreyf-
ingarinnar per se, þó ein-
kennilega margir skíthælar
virðist fara á völlinn. Vanda-
málið er samfélagsins alls og
ráðast verður að rót þess, hver
sem hún er.
Vert er að velta því fyrir hvort
allir rasistarnir séu raunveru-
legir áhugamenn um fótbolta
eða nýti sér aðstæður til þess að
stunda slagsmál og annað of-
beldi. Gyðingahatur, nasista-
kveðjur og -köll eiga altjent
ekki heima á knattspyrnuvöll-
um frekar en annars staðar.
Málsmetandi menn í Bretlandi
hafa einmitt beinlínis varað al-
þýðuna þar í landi við að fara á
EM, heldur sitja heima og fylgj-
ast með leikjum enska liðsins í
sjónvarpinu. Hinum þeldökka
Sol Campbell, fyrrverandi fyr-
irliða Englands, var ekki
skemmt þegar BBC sýndi hon-
um upptökurnar sem síðar voru
notaðar í Panorama-þáttinn.
Campbell sagði hegðunina auð-
vitað ósæmandi og hvatti fólk til
þess að fara hvergi því annars
ætti það hreinlega á hættu að
koma heim í líkkistu.
Kynþáttaníð var mikið til
umfjöllunar á Englandi í vetur,
ekki síst vegna ásaka Patrice
Evra hjá Manchester United í
garð Luis Suarez hjá Liver-
pool og leikbann þess
síðarnefnda í kjölfarið.
Hafi það verið stórmál er
ekki gott að finna orð
yfir atburðina sem BBC
hefur nú sýnt
heimsbyggðinni.
Hryggð er
reyndar það
fyrsta sem
kemur upp í
hugann.
Meira en
bara leikur
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
’
Kynþátta-
fordómar eiga
ekki heima á
knattspyrnuvöllum
frekar en annars
staðar.
Úr Panorama. Slagsmál á velli og áhorfendur heilsa með nasistakveðju.
BBC
Ömurlegt og óþolandi
FÉLAG ÍSLENSKRA
BIFREIÐAEIGENDA
Félag íslenskra bifreiðaeigenda, Skúlagata 19, 101 Reykjavík, s. 414 9999, fib@fib.is, fib.is
Afslættir
Lögfræðiráðgjöf
FÍB FÉLAGAR NJÓTA ENN BETRI KJARA Á ELDSNEYTI!
Tækniráðgjöf
FÍB Aðstoð
Félagsmenn geta leitað til tækniráð-
gjafa varðandi bifreiðatæknileg atriði,
svo sem um viðgerðarkostnað, gæði
viðgerða og varahluta, galla í nýjum
bifreiðum o.fl.
Þannig veita FÍB dælulyklar þeirra sem hafa greitt
félagsgjald 6 kr. afslátt. FÍB félagar geta jafnframt
valið sína uppáhaldsstöð sem mun þá veita 8 króna
afslátt. Það jafngildir sparnaði upp á kr. 11.500 kr miðað við 120 lítra á mánuði í eitt ár.
Lögfræðiráðgjafi FÍB er sérfróður um
algengustu vandamál varðandi galla
eða svik í bifreiðaviðskiptum, ófull-
nægjandi viðgerðir og sakarskiptingu
við tjónauppgjör.
Opin allan sólarhringinn.
- Start aðstoð
- Dekkjaskipti
- Eldsneyti
- Dráttarbíll
Skoðunarstöðvar, smurstöðvar,
verkstæði, hjólbarðaverkstæði,
veitingastaðir, tjaldsvæði, o.s.frv.
Þétt afsláttarnet innanlands sem
og erlendis. 150.000 staðir í Evrópu,
Bandaríkjunum og víðar.
6+2=8
FÍB aðild.... mikið fyrir lítið!
Allt þetta innfalið og meira til! Ársaðild í FÍB er á aðeins kr. 6.180.-
Gerast FÍB félagi í dag? Síminn er 414-9999 eða fib.is