Helgafell - 01.01.1943, Qupperneq 48
GYLFl Þ. GlSLASON:
Til höfuðs örbirgðinni
Tillögur Beveridge um almannatryggingar.
Með styrjaldarþjó&unum er nú mikið rœtt um skipon mála að ófriðnum lo\num. í Bretlandi
hafa nýlega verið settar fram tillögur, sem œtlað er að útrýma leinni örbirgð þar i landi. Til-
lögur þessar hafa Va\ið fei\na athygli. Þótt þœr marki að visu ekkf *lík straumhvörf í félags-
málum, sem stundum er látið i veðri vakfl, vœri framkvœmd þeirra stórt og þýðingarmikið
spor í áttina til nýrri og betri félagshátta.
í júní 1941 fól Arthur Greenwood, sem þá Var ráðherra án stjórnardeildar, en fór með við-
reisnarmál að stríðinu loknu, Sir William Beveridge, prófessor í hagfrœði við háskólann í Ox-
ford, ásamt nefnd manna að rannsakfl tryggingarmál Breta og gera tillögur til endurbóta. Siðar
var ákveðið, að Beveridge skyldi einn semja
og gerði hann það í nóvember 1942.
Með tillögum Beveridge er stefnt að
því að veita alþjóð manna í Bretlandi
félagslegt öryggi. Honum er þó ljóst,
að það verÖur eigi gert með trygging-
um einum saman. Telur hann, að hið
opinbera verði að greiða fjölskyldum
styrki eftir barnafjölda af skatttekjum
ríkisins, og eigi styrkur þessi þó ekki aS
koma í stað frádráttar við skattgreiÖslu,
sem hvarvetna tíÖkast. Árin fyrir styrj-
öldina voru ýmsar rannsóknir gerðar á
kjörum almennings í stórborgum Bret-
lands. Skortur sá, sem rannsóknirnar
leiddu í ljós, reyndist að % til 5/o eiga
rót sína að rekja til vinnumissis, en
að /4 til /(, til hins, að fjölskyldan
var stærri en svo, að tekjurnar
hrykkju fyrir þörfum hennar. Þótt séð
yrði fyrir því, að vinnumissir leiddi
ekki til skorts, yrði honum samt
ekki útrýmt. Þá telur Beveridge og
nauðsynlegt, að hið opinbera veiti
öllum ókeypis heilsugæzlu, en ekki
aðeins þeim, sem vinnu hafa og inna
af hendi skyldugreiÖslu til sjúkratrygg-
inga, svo sem nú er. Hann leggur og
sérstaka áherslu á það, að án þess að
skýrslu um máliS og leggja fram tillögur sínar,
full starfræksla atvinnutækjanna sé
tryggð og öllum séð fyrir atvinnu, geti
jafnvel hinar fullkomnustu alþýðu-
tryggingar ekki útrýmt skorti.
En ýmsir telja alþýðutryggingar
Beveridge, ef framkvæmdar yrðu, ein-
ar hinar fullkomnustu í heimi. Hinar
ýmsu tegundir trygginga, sem nú tíðk-
ast, á að sameina í eina heild. Sérstakt
ráðuneyti á að fjalla um tryggingarmál-
in og þau ein, og í stað hinna ýmsu
iÖgjalda — til sjúkra-, örorku- og at-
vinnuleysistrygginga o. s. frv. — komi
eitt tryggingargjald,1) 4s 3d fyrir karla,
sem eru í atvinnu, hvort sem þeir
þiggja laun eða eru sjálfstæðir atvinnu-
rekendur, og 3s 6d fyrir konur, sem
þiggja laun, en 3s 9d fyrir konur, sem
sjálfar stunda atvinnurekstur, en karl-
ar, sem enga atvinnu stunda, en eru
á vinnufærum aldri, greiða 3s 9d, en
I) Allar upphæðir og allir útreikningar skýrsl-
unnar eru miðuð við framfærslukostnað 1938,
en gert ráð fyrir 25% hækkun að stríðinu loknu.
Verði verðjagið annað, breytast allar upphæðir,
án þess að meginatriði tillagnanna raskist.