Helgafell - 01.01.1943, Side 66

Helgafell - 01.01.1943, Side 66
52 HELGAFELL miklu víðar eru örnefni við hana kennd um ísland“. Annars segir sagan aðeins frá einu sérstöku atriði úr lífi hennar á þessum hrakningum. Hún þáði veturvist að Hjalla í Olfusi hjá þeim feðgum, Þóroddi goða og Skafta lögsögumanni. Var hún þar sem annars staðar með dul og lá í yztu sæng í skála og hafði fortjald fyrir. Hún sló þar hörpu nær allar nætur, því að henni varð ekki svefnsamt. HeimafólkiS leiddi getum að, hver kona þessi myndi vera. AustmaSur var þar á vist, er Hrafn hét. Hann forvitnaðist eina nótt undir tjaldið og sá, að Helga sat uppi í einum serk, og sýndist honum konan fríS mjög. Vildi hann upp í sængina til hennar, en hún varnaði þess, og tókust þau á, og urðu þær lyktir, að annar fótleggur og annar handlegg- ur austmannsins gengu sundur, en Helga hvarf þaðan litlu síðar. Fleira segir höfundur Bárðarsögu oss ekki frá Helgu. En sá, sem jók þætti Gests BárSarsonar viS söguna, leiðir Helgu aftur snöggvast fram á sjónarsviðið. Hann segir frá því, hversu BárSur hefndi dóttur sinnar á Skeggja. Hann kom að Reykjum haustkveld eitt, í dulargervi, og nefndist Gestur. FalaSi hann veturvist þar og fékk hana fyrir atbeina Eiðs Skeggja- sonar. Um veturinn tældi hann Þórdísi, dóttur Skeggja, fimmtán vetra gamla. Ó1 hún sveinbarn um haustið eftir í seli föSur síns og nefndi dreng- inn Gest, eftir hinum horfna föður hans. Næsta dag kom ókunnug kona í sel- iS og bauð að taka við sveininum og fóstra hann, og lét Þórdís þaS eftir. Tólf árum síðar kom hin sama kona meS drenginn til Þórdísar, sagði henni, að hún væri Helga BárSardóttir Snæfellsáss, og BárSur, faðir sinn, væri einnig faðir drengsins. HafSi Helga alið hann upp, ,,en víða höfum vit Gestr verit, því at heimili mitt er eigi í einum stað“. Hvarf hún síðan á brott, og er þess eigi getið, aS Þórdís sæi hana síSar. AS öðru sinni getur höf- undur þáttarins Helgu, er hann telur hana meðal boðsgestanna í trölla- veizlunni miklu, er Hít tröllkona í Hítardal hélt, en ekki er Helgu að öðru neitt getið við þá atburði, er gerðust í veizlu þessari. Höfundur BárSarsögu segir sögu Helgu aðeins í stórum dráttum. Er það sönnun þess, að sú saga er ekki skáldskapur hans sjálfs. Ef hann hefði sjálfur búiS sögu þessa til, myndi hann hafa sagt hana miklu nákvæmar og greint fleiri einstaka atburði úr ævi hennar. Hann hefði þá eigi látiS sér nægja að segja, að hún hefði ,,náliga ‘ gefið Skeggja líf í viðureign hans við tröllin í EiríksfirSi. Hann hefði sagt, með hvaða hætti hún hefði hjálpað honum. Hann myndi hafa sagt frá fleiri atburðum úr ferSum hennar um landiS en viðureign hennar við austmanninn á Hjalla einni saman. Hann myndi hafa greint fleiri örnefni, sem við hana væru kennd, en Helguhelli einn, úr því að hann á annað borð fór að geta þess, að örnefni væru viS hana kennd víðar um landiS en á Snæfellsnesi. Allt bendir til þess, að það, sem sagan seg- ir oss af Helgu, sé aðeins ágrip af ítarlegri sagnaþætti, sem af henni hefur gengið og höfundurinn hefur þekkt. En einhverra hluta vegna hefur hann ann-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.