Helgafell - 01.01.1943, Blaðsíða 92
78
HELGAFELL
ir fengju frelsi. Er það að yÖar vilja, að óendanlega miklu þyngra ok þjakar
öllum ítölum nú hin síÖustu árin ? Er það, í sannleika sagt, yðar vilji, eftir or-
ustuna hjá Vittorio Veneto (1918) að rjúfa samninginn, sem hinn mikli for-
faðir yðar hélt eftir orustuna viS Novara ?
Fyrir sjö árum sáum við yður skrifa undir tilskipanir Radetzkys með
penna Charles Alberts, en við viljum ekki missa traustið á yður. Þér leidduÖ
oss til sigurs, og x tuttugu og fjögur ár hafiÖ þér veriS forvígismaður frelsis-
ins. Þessu getum við ekki gleymt. ViS erfðum frjálsa Ítalíu eftir feður vora.
Á það nú að verða hlutskipti yðar, hins sigursæla konungs, að skila henni
í hendur sonum okkar, hnepptri í þrældómsviÖjar ? Þessu viljum við ekki
trúa, yðar hátign.
Margir hafa misst trúna á konungdóminn. LátiS þeim mönnum ekki
fjölga. LátiS ekki ítölsku þjóðina fara aS dæmi Spánverja og gera yÖur ábyrg-
an fyrir kúguninni. Hvernig eigum við að geta haldiÖ áfram að hafa traust á
yður, ef beztu menn vor á meðal sæta refsingu fyrir þetta traust, svo sem
það væri einhver hinn versti glæpur ? Og allt er þetta gert í yÖar nafni.
ítalska þjóðin, sem verður nú fyrir þeirri háðung, að heimurinn kallar hana
þýlyndan sauÖahóp, veit ekki, hvort þér eruÖ með henni eða setuliSi kúg-
ara hennar.
KjósiS um, yðar hátign. Hér er aðeins um tvennt að velja.
Upp úr djúpi örvæntingarinnar mæna á yÖur fjörutíu milljónir ítala.
Stjórnin.
II.
ÞjóSernisfélagiÖ. ÁriS 8 eftir að Matteotti var myrtur.
Borgararl
Þið hafið reist óþekktu hetjunni altari, en þið leyfiS þeim að saurga það
daglega, sem hneppa í fangelsi hvern þann, er ennþá trúir á frelsið. Þessi
Habsborgari í svörtu skyrtunni hefur skriðið inn í höll sína á ný, og
hann er svivirÖing öllum hinum föllnu, þaS frelsi, sem þeir fórnuðu
lífi sínu, kallcir hann ,,úldið hræ“, og nú hefur hann leikið lausum hala og
traðkað á því í nxu ár.
Sex hundruð þúsund borgarar létu lífið, svo að tvær borgir fengju frelsi.
Hve lengi ætlið þið að umbera manninn, sem hneppt hefur alla ítali í
þrældóm ?
í níu ár hefur ykkur verið sagt, að fórna verði hugsanafrelsi til þess að
fá öfluga og dugandi stjórn. Eftir níu ár sjáið þið, aS þið hafiÖ lotið stjórn,
sem er öllum stjórnum grimmari, spilltari og félausari. ÞiS hafiö selt af hendi
frelsi ykkar, og sjáið nú, að þiS hafiÖ líka verið sviptir daglegu brauði.
Fasistarnir, sem búa meÖal ykkar eins og erlent setuliÖ, eru að spilla hug-
arfari ykkar og eyða efnum ykkar. Þeir lama fjárhagsþrek þjóðarinnar, þeir