Helgafell - 01.01.1943, Blaðsíða 93
SAGAN UM HELFÖR MÍNA
79
sóa milljónum til styrjaldarundirbúnings til þess að halda ykkur ánauðugum,
þeir láta ríkisútgjöldin vaxa afskaplega, af því að þið hafið ekki lengur
neinn hemil á þeim, og þeir selja þjóðina í hendur skipulögðum, rángjörn-
um og glorhungruðum hópi harðstjórnarsnápa. Þeir hrósa sér af áliti því, sem
þeir njóta erlendis, en allur heimurinn lítur með skelfingu á þessa stjórn,
sem að réttum rökum verður að greiða Toscanini hnefahögg í andlitið og
hrósa grimmdaraeði þjóna sinna til þess að geta hneppt ykkur í þrældóm.
Borgarar, gangið ekki hræddir fyrir þorparasveit þessari, sem þið sjálfir
greiðið kaup, né fyrir úrskurðum Radetzkys frá 1848. Þessi síðari endurreisn
mun eiga sigri að hrósa eins og hin fyrri. Þjóðernisfélagið hefur birt stefnu-
skrá sína um sameiningu allra afla gegn fasistum. Grimmdarstefna Bour-
bona, birtist í dómum þeim, sem kveðnir hafa verið upp yfir sumum
foringjum ykkar, færir ykkur heim sanninn um það, hve mjög stefnuskráin
hefur hiætt þessa stjórnendur. Gangið í félagið I Spánverjar hafa losað þjóð
sína úr viðjunum. Svíkið ekki ykkar þjóð.
Stjórnin.
III.
Þjóðernisfélagið.
Rómaborg. Árið 8 eftir að Matteotte var myrtur.
Hver, sem þér eruð, hljótið þér að finna fasistastefnunni mjög margt til
foráttu, og þér hljótið að fyrirverða yður svo sem þér væruð þræll. En jafn-
vel þér berið ábyrgðina á því vegna aðgjörðaleysis yðar. Reynið ekki að rétt-
læta yður með þeirri blekkingu, að ekkert sé unnt að gera, því að það er
ekki satt. Sérhver hugrakkur maður og heiðarlegur er að vinna að því á frið-
samlegan hátt, að gera Ítalíu frjálsa. Og jafnvel þótt þér viljið ekki ganga
í lið með okkur, þá er ávallt til starf í tíu greinum, sem þér getið sjálfur
ynnt af hendi. Þér getið það, og verðið því að gæta þess:
1. að veita ekki neina hjálp við hátíðahöld fasista,
2. að kaupa aldrei fasistablöð, því að þau eru full af lygum,
3. að reykja ekki (á tóbakseinkasölunni græða fasistar þrjár billjónir líra
á ári, og það nægir til þess að greiða fyrir svívirðilegasta bruðlið í þeim.
Breytið við þennan nýja Radetsky, eins og Mílanóbúar breyttu við þann
gamla. Þannig hófust ógnardagarnir fimm),
4. að vinna ekkert til lofs þessari stjórn og mæla aldrei lofsorð um hana,
5. að eiga ekkert samneyti og engin viðskipti við þjóna þessarar stjórnar,
því að þeir hafa yður að féþúfu,
6. að hunzka og hindra allar framkvæmdir fasista með skipulögðu þófi.
Jafnvel beztu verk þeirra verða einungis til þess að auka enn einum
hlekk við þrældómsviðjar yðar. (Botti sagði: ,,Lögstéttarríkið er hin öfl-
ugasta lögreglustofnun, sem sögur fara af“).