Helgafell - 01.01.1943, Qupperneq 97
SIGURÐUR BREIÐFJÖRÐ
83
III.
Gísli Konráðsson hinn fróði skrifaði fyrstur manna drög að ævisögu Sig-
urðar Breiðfjörð, og hafa þeir, sem síðan hafa skrifað um Sigurð, byggt á
þeim, enda vorkunn, því að alkunnugt er, að þeir Sigurður voru vinir, þó
að alltaf byggju þeir nálega sinn á hvoru landshorni. Þeir kynntust fyrst
árið 1822, að því er talið er, og átti Sigurður þá heima í Reykjavík, en Gísli
var við sjóróðra á Álftanesi. Gísli var 11 árum eldri en Sigurður, og
lifði hann lengi. Hefði mátt ætla, að Gísli hefði haft tök á að skrifa sanna
ævisögu Sigurðar, en honum var margt betur gefið en skilja hismið frá
korninu.
Um Sigurð hafa síðan skrifað samfellt mál þeir Jón Borgfirðingur árið
1878, Einar Benediktsson skáld árið 1894, Sighvatur Grímsson Borgfirð-
ingur árið 1912 og Sveinbjörn Sigurjónsson magister árið 1937.
Frásögn þeirra af fyrra hjónabandi Sigurðar og tildrögum þess, að hann
fluttist til Vestmannaeyja, er að efni til á þessa lund:
Veturinn 1825 var svo komið fyrir Sigurði, að honum var ekki lengur
vært í Reykjavík vegna skulda. Leitaði hann þá til Petreusar kaupmanns í
Vestmannaeyjum og gerðist beykir hjá honum. Vorið 1825 fór hann út í
Vestmannaeyjar. Varð hann að beita ýmsum brögðum til þess að komast
undan skuldheimtumönnum sínum, svo að hann slyppi burtu. í Vestmanna-
eyjum kynntist hann Sigríði nokkurri Nikulásdóttur, þernu Petreusar kaup-
manns, og kvæntist henni 1826 fyrir áeggjan húsbónda síns. Sigurði hafði
víst oft boðizt álitlegri ráðahagur, enda er mælt, að hún væri þá þunguð af
völdum kaupmanns og gæfi hann Sigurði tunnu af brennivíni og gott rúm
til þess að taka hana að sér. Talið er, að Páll Jónsson skáldi, prestur að
Kirkjubæ, gæfi þau saman í hjónaband. Samfarir þeirra urðu skammar, því
að Sigurður þóttist véltur í kaupunum, og konan reyndist honum ótrú. Otti
Jónsson, búðarmaður þar í Eyjum, varð friðill hennar. Samt fór vel á
með þeim Sigurði og Otta, og samdist svo með þeim, að hann heimilaði
Otta konuna, en fekk í staðinn danskan hund, sem Otti átti. Þóttust báðir
vel keypt hafa, og fór Sigurður burt úr Eyjum haustið 1828 með sinn
danska hund, en konulaus.
Skömmu eftir að Sigurður fór úr Eyjum, ól Sigríður barn, sem hún
kenndj Otta.
Uppistaðan í frásögn þessari er frá Gísla Konráðssyni. Er frásögn hans
um viðskipti þeirra Sigurðar og Otta orðrétt á þessa leið:
,,Ekki hafði Breiðfjörð þar (þ. e. í Vestmannaeyjum) lengi verið, áður
hann kvæntist þernu Petreusar, Sigríði Nikulásdóttur.... En gefið var hon-
um til þess gott rúm og brennivínstunna. Vígði Páll prestur (skáldi) þau
saman. Er sagt( að Breiðfjörð drykki þá sVo fast, að b'era yrði hann til sæng-