Helgafell - 01.01.1943, Side 143
Frá íslenzkum bókmenntabúskap
Bókafjöldi og tegundahlut-
föll árið 1 942
Samkvæmt lauslegu yfirliti, er Helga-
fell hefur látið gera um bókaútgáfu hér
á landi árið sem leið, eftir bráðabirgða-
skrám frá Bóksalafélaginu, er bornar
hafa verið saman við freuntöl prent-
smiðjanna til Landsbókasafnsins, telst
svo til, að út hafi komið á árinu um 150
bindi bóka, er verið hafi til sölu á al-
mennum bókamarkaði, og eru þá og
taldar áskriftabækur útgáfustofnana og
bókmenntafélaga, þótt ekki hafi verið
seldar í lausasölu. Hér eru ekki talin
arsrit né ársskýrslur félaga eða stofn-
ana, tækifærisrit, flugrit né smábækl-
ingar yfirleitt, ekki heldur almennar
námsbækur né skýrslur eða önnur
plögg varðandi stjórn landsins, Al-
þingi, sveitafélög eða skóla. Blöð og
timarit eru og öll ótalin, en til fróðleiks
nrá geta þess, að samkvæmt Ritauka-
skrá Landsbókasafnsins 1939, sáu um
120 rit þeirrar tegundar dagsins ljós það
ar, að meðtöldum ársritum og öðru
smáu og stóru, er til varð tínt í þann
flokk. — Líklegt er, að ekki komi
8H kurl til grafar í gögnum þeim, er að
framan getur, um bindafjölda sölubóka
1942, og muni talan nokkru hærri. —
Bókamagn þriggja undanfarinna ára
mun hafa verið svipað að tölu, og jafn-
vel öllu meira að því leyti 1939, en jafn-
framt var fleira að tiltölu um hinar
smærri bækur þá en nú. Geta má þess,
að bókhlöðuverð sölubóka ársins 1942
samanlagt nemur nálægt 3000 krónum,
og er þá gert ráð fyrir óbundnum ein-
tökum annarra bóka en þeirra, er að-
eins hafa verið til sölu í bandi.
Þó að tegundatölur þær, sem fara
hér á eftir, séu ekki öruggar,' og skylt
að hafa það, er sannara reynist í þeim
efnum, má telja víst, að þær gefi all-
góða hugmynd um hlutjöll milli ein-
stakra bókaflokka, en sá er líka eink-
um tilgangurinn með þessu yfirliti.
Af 150 bindum bóka, sem út komu
á íslenzku hérlendis árið 1942, allflest-
ar í frumútgáfum, voru:
Frumsamdar bækur .... 92 bindi
Þýddar bækur.............. 58 —
og skiptust þannig í flokka eftir efni:
Barna- og unglingabækur (þýddar aS
tveim þriSju hlutum) .......... 30 bindi
Skáldsögur eftir erlenda höfunda..22 —
Skáldsögur og smásagnasöfn eftir ís-
lenzka höfunda ................ 14 —
LjóSabækur ....................... 14 —
ÞjóSsögur og sagnaþættir, fsl. fyndni ..10 —
Saga fslands, menning og bókmenntir 10 —
Félagsmál og stjórnmál, innlend og erl. 8 —
Heimspeki, sálfræSi, siSfræSi og dul-
ræn efni ....................... 6 —
Erlend samtíSarsaga („stríSsbækur"
fleStar) ....................... 6 —