Helgafell - 01.12.1943, Qupperneq 26

Helgafell - 01.12.1943, Qupperneq 26
352 HELGAFELL Ef maður kynnir sér danska og reyndar skandinaviska málaralist frá alda- mótatímabilinu rekur maður sig á kynlegt fyrirbrigði. Flestir meiriháttar mál- arar Dana um þessar mundir, einsog t. d. Kröyer, Tuxen, Viggo Johansen, höfðu lært í París. Þessir menn unnu það ótrúlega kraftaverk að dveljast svo árum saman í heimsborg listanna sér til mentunar í málaralist að þeir urðu ekki einu sinni varir við þá lærifeður og höfuðmeistara nútímans í málaralist, sem lifðu og störfuðu þar samtíða þeim, jötnar, skaparar nýrrar heimssýnar, einsog Cezanne, van Gogh og Gauguin. Ekki aðeins Danir, heldur Skandínav- arnir flestir léku það að læra list í París, án þess að taka eftir nokkru sem var að gerast í list á þessum árum, varla einusinni að þeir kæmu auga á impres- sjónismann, undanfara hinna þriggja höfuðmeistara, sem þó var laungu ,,við- urkendur“. T. d. uppgötvaði norski málarinn Krog ekki impressjónismann fyr en nokkrum áratugum eftir að hann kom heim frá París. Þessir dönsku mál- arar, og Skandínavamir yfirleitt, þorðu ekki að líta í áttina til nokkurs annars en hinnar ,,opinberu“ og borgaralegu viðurkendu skólalistar, „salóns- ins“, sem bygði heimspeki sína á laungu innantómum kjörorðum liðinnar aldar um ,,náttúruna“ (Jean-Jacques Rousseau) og grund- vallaði tæknina á blendíngi ófrjórrar náttúrustefnu og úrættaðs smekks frá írumtímum lýðveldisins (David). Þessa ,,viðurkenndu“, flötu, lússpöku ogúr- eltu myndlist fluttu hinir fæddu utanbæarmenn listarinnar heim með sér til Skandínavíu, flöttu hana enn meira út, og bættu ofan í alt saman sérstakri tegund af tilfinníngasemi, sem flestum öðrum mönnum er óþolandi, en mér er sagt að hægt sé að venjast ef maður dvelst mjög leingi í dönsku andrúmslofti, og er hún þó ef til vill ekki beint dönsk, heldur fyrst og fremst smáborgaraleg. Þessi skandinaviska smáborgaralega tilfinníngasemi var um aldamótin flutt inn í íslenskar bókmentir, íslenska myndlist og íslenska tón- list. Óíslenskari framleiðsla en þessi danska undanrenna af franskri undan- rennu hefur aldrei sést í íslenskri list. Flestum hinum gáfaðri listamönnum okkar tókst að vísu að sigrast á náttúrustælíngunni að mestu er heim kom, nokkrum tókst að frelsa bæði litróf sitt og línu frá þessu ólistræna sjónarmiði. sumum annað tveggja. En hinir ýngri listamenn vorir, sem hafa annaðhvort sigrast á smáborgaralega, skandinaviska aldamótasmekknum, eða aldrei kom- ist í tæri við hann, en leitað til lífsbrunna myndlistarinnar, hafa aftur teingst þeim smekk andstæðum náttúrustælíngu, sem Íslendíngar hafa frá öndverðu haft á myndum og altaf stundað í list. Sýning þeirra Þorvaldar Skúlasonar og Gunnlaugs Schevings á dögunum var gott dæmi hins endurvakta sambands við þá listrænu heimssýn sem var frá öndverðu íslenskt aðal; hér gat að líta myndlist sem fyrst og fremst birtir hug og hjarta málarans gagnvart hlutun- um, skapar á léreftinu sérstakan heim, sem er að vísu hvergi annarsstaðar til þó inntak hans sé heimur allra annara manna; en er ekki tilraun til eftirlík- íngar einhvers ytra veruleika sem vegarvill hugsun ímyndar sér að sé algildur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.