Helgafell - 01.12.1943, Page 31

Helgafell - 01.12.1943, Page 31
MYNDLIST OKKAR FORN OG NÝ 353 I herberginu þar sem þessar línur eru skrifaðar hánga tvær myndir, önnur er gamalt söðulklaeði með ísaumaðri mynd af „rósinni í Saron“, , .hugmynda- blómi“ einsog gamla fólkið sagði, í moldrauðu, daufbláu og heimulugulu á svörtum grunni, ættargripur, ég veit ekki hvað gamall; á öðrum vegg er mynd af fjórum hestum eftir Þorvald Skúlason. Gestir koma í stofuna og segja: Mik- ið er þetta fallegt blóm. Um mynd Þorvaldar segja þeir í sama orðinu: Þetta er ekki líkt neinum hestum. Tjóir nokkuð þó ég reyni að koma gestinum í skilníng um að í mynd Þorvaldar sé mjög nákvæm skynjun tjáð af útliti hests, hreyfíngu, lífi og sál — því ef nokkur skepna hefur sál þá er það hestur. Verka ekki slíkar skýr- íngar eins hlægilega á gestinn og færi ég að útskýra fyrir honum að jurt lík þeirri sem er á söðulklæðinu hafi aldrei vaxið, sem best megi sjá af því að hún ber í senn bæði liljur og rósir. Myndlistarskyn nútíma-Islendíngs er klofiS í tvent. Sá hlutinn sem metur stílfærðu jurtina á söðulklæðinu er hinn upprunalegi íslenski listasmekkur — og um leið sá listasmekkur, sem HjörvarSur Árnason sagði í einum fyrirlestra sinna í fyrravetur, að ráðið hefSi í heiminum í tuttugu og fimm þúsund ár; hinn sígildi almenni listasmekkur, andstæSur náttúrustælíngu. Hitt er dansk- ur smekkur, eða réttara sagt íslensk undanrenna af dönskum aldamótasmekk og krefst þess að hestmynd sé afbrigði spegilmyndar, með , .náttúrlegum hlut- föllum“ og fjarvídd ljósmyndar. Nú verð ég sakaður um að rugla saman málaralist og útsaumi eða vefnaði. En það gerir ekkert til. Allir sem hafa kynt sér útsaum vita, einsog ég sagði áðan, hve verkan hans er náskyld málverks; það er oft fleira líkt með mál- verki og útsaumi en tveim málverkum sínámilli. Hvorttveggja eru litmyndir og línu, gerðar í einum fleti. Otsaumsmyndir Halldóru GuSbrandsdóttur af GuSbrandi biskupi föður hennar hafa sama gildi og andlitsmálverk, svo ég nefni alþekt íslenskt dæmi. Á því er einginn vafi að íslenska hannyrðakonan á meiri hlut í þroska ís- lensks myndsmekks en nokkur stétt önnur í landinu, enda eru sumir dúkar útsaumaðir meðal ágætustu verka í myndlist, sem gerð hafa verið á Islandi, — ég skal aðeins minna hér á íslenska veggtjaldið í Victoria and Albert Museum í Lundúnum, saumað meS krossspori, myndirnar úr gamlatesta- mentinu, í mjög fornum stíl, að dómi listfræðínga gert undir austrænum áhrif- um, arabiskum og byzantinskum. 1 hverri sveit á Islandi hafa á öllum tímum landsbygðarinnar verið til hannyrðakonur og sumar snillíngar, sem innrættu þjóðinni stílrænan smekk og rétt skyn á myndlist, þannig að jafnvel rammstíluð mynd getur ekki komið Islendíngi ókunnuglega fyrir sjónir. Gesturinn heilsar með fögnuði jafn ónátt- úrlegu og stílfærðu ,,hugmyndablómi“ og Saronsrósinni á gamla söðulklæð- inu mínu. HELCAFELL ÍMJ 23

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.