Helgafell - 01.12.1943, Síða 41

Helgafell - 01.12.1943, Síða 41
FÁST Þú hyggur teyg úr bókfells brunni viS bruna þorstans öruggt róð? Nei, sjálfstreym lind frá sálarinnar grimni oss svalar ein í lengd og bráð. WAGNER Bið forláts, — en að fræðast er þó gaman um fyrri tíðar anda, og bera saman við það, sem oss af eldri vizku er tjáð, hve undralangt vér sjáJfir höfum náð. FÁST Já, náð og vizka vaxa í gríð! Æ. væni, svonefnd „fyrri tíð" er marg-innsigluð morkinskinna! Og hennar velmetni andi er það endurskin, er sjáum vér í andaspeglum yðar hinna! Og þar er fátt um fína drætti! Menn finna sjálfsagt öskubing og ruslaskot, hvar rekast mætti á rytju af kóngi og lemstrað þing, sem flokkast efíir fræðikerfi: Hin „fyrri tíð" í dcgsins gervi! WAGNER En líf og andi mannsins? Mundi ekki alla þó muna í þekking noklaa á eðli hans? FÁST Já, þekking! hvað skal þekking kalla? Hver þekkir nýju fötin keisarans? Þeir fáu, er eittlivað þorðu og þekktu og þráðu að opna ríka sál þeim lýð, sem fornar lygar blekktu, að launum hrepptu kross og bál! En nú er, góður, liðið langt á nótt; við látum hjalið niður falla. WAGNER Ég vildi feginn vaka nóttina alla, er vizkan sprettur fram af slíkri gnótt! Um fleira á morgun fyrirspurn ég hreyfi, hinn fyrsta páskadag, með yðar leyfi. Með leit og striii lærdóm minn ég galt, veit langt og margt, en kysi að vita um allt! Fer.

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.