Helgafell - 01.12.1943, Qupperneq 57

Helgafell - 01.12.1943, Qupperneq 57
SKÁLDIÐ Á LITLU-STRÖND 373 finna, um leið og hún leitar farvegar út og niður í Laxárdalinn. Skjólgarður lágra fjalla er norð- austan við Mývatnssveit. Minna þau á trúleikshjú hins gamla tíma um það að standa hæfilega fjarri til að skyggja ekki á og láta svo lítið fyrir sér fara og á sér bera, að engum finn- ist sér til fyrirstöðu. Geta þó vakið at- hygli hvert fyrir sig. Námafjall er leirljóst að sjá með brennisteinsflekkjum, en reykir standa hlið við hlið með rótum þess upp af þakraufum sjóðandi undirdjúpa. Liggúr yfir það þjóðleiðin til Austur- lands, og heitir þar Námaskarð. Þeg- ar komið er á brekkuna að vestan, er gesti bezt að horfa yfir Mývatn og umhverfi þess. En hvað er hinum megin ? Að aust- anverðu gefur sýn yfir alla þá víð- áttumiklu hásléttu, sem Mývetningar kalla Austurfjöll. Hér er samfelldur flötur, sem tekur suður til Herðibreið- ar, austur um Jökulsá á Fjöllum að Dimmafjallgarði og norður að Grjót- hálsi við Dettifoss. Sléttan sjálf er skorin og hlutuð í mislita reiti breytilegra jarðmynd- ana, gróðrar og gróðurleysis. Þar eru belti og breiður svartra hrauna, ill- fær og ófær. Miklar eru þar sandauðn- ir. En við hlið þessu eru heiðasvæði með ágætum haga, fjölgróin hraun- skjól og flákar af melgrasi mitt á söndum. Einstök fell og fjallaálmur rísa á þeim víða fleti, vísa leið og festa stefnu þeim, sem kemur eða fer. Mývatnssveit er ævintýraland grann- sveitanna. Austurfjöll eru ævintýra- land Mývatnssveitar, auk þess að eiga gildan þátt í búsæld þar. Langar, torsóttar leitir fjallanna heilluðu ung- menni, — vor, haust eða hávetrar útlegð, sem hraustmennum einum henti. Þangað horfði hugur drengs, og þar skyldi reynt, hvað hann dugði. Og pilturinn fékk að fara í vorgöng- ur, þegar sótt er langleitum fé til rúnings. Hann fékk að sitja á frxsk- um klár í hópi öruggra félaga. Undra- landið opnaðist og hvert þeirra eftir annað. Horft var til jarðar, og hik kom í brjóst, þar sem sprunga var framan við, jarðvegurinn og bergið undir rist sundur og myrkt niður að sjá, en barmurinn hinum megin steypt- ur veggur yfir höfði manns og sá ekki fyrir endann. En kunnugu mennirnir þekktu brú yfir gjána, skafl af fok- sandi, þar sem einstigi var til upp- göngu á vegginn — manni með hest sinn í taumi. — Leitin stóð dag eftir dag og nóttina með, og loks, þegar ekki varð lengur vakað, var hvílan gróin sandflöt, vermd af sólu nótt sem dag. Síðar gafst þess kostur að fara í göngur um miðbik vetrar, þegar sækja þurfti hross og sauðfé þangað, sem þrautbezt er útigangan, þingmanna- leið frá byggð. Nú hefur fönn gert sléttuna einlita, og dýpra varð að kafa með degi hverjum. Nokkrir menn saman fara fótgangandi, og ber hver sinn bagga, vistir og plögg til nokk- urra daga útlegðar. Byrði hvers er upp undir hálfvætt. Leitað er þá daga, sem veður leyfir, og finna verður gisti- stað að kveldi, þótt fátt sé við að styðjast. Hvílzt er á frosnu kofagólfi og sofið og vakað við hitann í sjálfum sér. Nóttin er myrk og löng, og dag- urinn kann að geta orðið það líka. — Hvor tveggja förin átti sinn þátt í að gera drenginn að manni og mann- inn að Mývetningi. Fram að því, er flutningur á bif- *eiðum hófst og akbraut var lögð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.