Helgafell - 01.12.1943, Síða 66

Helgafell - 01.12.1943, Síða 66
382 HELGAFELL komizt var að orSi í tilkynningu þýzku herstjórnarinar daginn eftir. Snemma morguns 29. ágúst var les- in upp í KalundborgarútvarpiS til- kynning Hannekens, um aS herlög væru gengin í gildi í Danmörku, en daginn áSur hafSi hann skipaS svo fyrir, aS handtaka skyldi alla liSsfor- ingja, sem gegndu herþjónustu í danska landhernum og sjóliSinu. Þeg- ar byrjaS var aS framkvæma þessar fyrirskipanir, fór Dani aS gruna hvaS í vændum var, og víSa gripu her- mennirnir til vopna. Framganga líf- varSasveita konungs er fræg orSin, en sögulegust var þó vörn dönsku sjóliSanna. Vedel varaflotaforingi hafSi aS sögn skipaS svo fyrir, aS dönsku herskipunum skyldi siglt til sænskra hafna eSa sökkt, ef ÞjóSverj- ar reyndu aS ná þeim. Þessari skip- un hlýddu döneku sjóliSarnir. Nokkur hundruS þeirra vörSu ÞjóSverjum aS- gang aS höfninni um nóttina, meSan hinir sigldu skipunum á brott eSa sökktu þeim. TaliS er, aS 200 danskir sjóliSar hafi falliS í þessari orustu, en þeim tókst aS ljúka hlutverki sínu. ÞjóSverjar munu ekki hafa náS nema tveim varSbátum. Hin skipin lágu á hafsbotni eSa náSu til sænskra hafna. Snemma þennan morgun vöknuSu Kaupmannahafnarbúar viS sprenging- arnar viS flotahöfnina, klukkan hálf sjö flugu þýzkar sprengjuflugvélar lágt yfir borgina eins og þær höfSu gert 9. apríl, fyrir rúmum þrem árum. Á hverju götuhorni gat aS líta tilkynn- ingu um herlögin, prentaSa á rauSan pappír. Þýzkir hermenn tóku sér stöSu viS allar opinberar byggingar, m. a. ráShúsiS og lögreglustöSvarnar. Þegar umferSabann gekk í gildi klukkan 9 um kvöldiS, byrjuSu þýzku dátarnir aS skjóta á fólkiS á götunum, kastljós- um var brugSiS á strætin og húsþökin, og skothríSin heyrSist á slitringi alla nóttina. Sjónarvottar telja, aS þessa síSsumarnótt hafi 23 menn veriS drepnir í Kaupmannahöfn og aS minnsta kosti 90 særSir. Um allt landiS biSu menn þess, aS fregnir bærust af hinum aldurhnigna og ástsæla konungi, sem öll hernáms- árin hafSi veriS ímynd danska þjóSar- viljans og danskrar andstöSu gegn of- beldismönnunum, en dagurinn leiS svo aS kvöldi, aS ekki var á hann minnzt í útvarpinu, blöSin komu ekki út, og almenningi var bannaS aS nota póst og síma. Kristján konungur X. var í haldi í höll sinni, Sorgenfri. Þar hafSi líf- vörSur hans varizt hraustlega. Á gluggarúSu í vinnustofu konungs voru tvö göt eftir þýzkar kúlur. Konungur benti síSar ráSherrum sínum á þessi vegsummerki og varS aS orSi: ,,Ja, de var temmelig brutale.“ Stjórnin baðst lausnar á sunnudag- inn, en konungur neitaði að fallast á lausnarbeiðni hennar, svo að hver sú stjóm, er Þjóðverjar hefðu sett á stofn, hefði verið ólögleg. Það kom brátt í ljós, að Þjóðverjar voru illa undir það búnir að taka í sínar hend- ur stjórnina í landinu, og mörgum á- kvæðum herlaganna var aldrei fram- fylgt. Þegar daginn eftir bað Best Scavenius að mynda nýja stjórn, en honum þótti nóg komið og neitaði því, Þjóðverjar lögðu síðan fast að kon- ungi að mynda stjórn embættismanna, en hann hvikaði ekki frá þeirri skoð- un sinni, að stjórnmálaflokkarnir og gamla stjórnin yrðu að ráða í þeim málum. Þjóðverjar reyndu þá að lokka flokkana til samvinnu með loforðum

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.