Helgafell - 02.12.1943, Qupperneq 19

Helgafell - 02.12.1943, Qupperneq 19
ÁRNI PÁLSSON: Lögskilnaður eða hraðskilnaður? i. Vorið 1940 gerðust mikil og háskaleg tíðindi bæði á Islandi og í Dan- mörku, enda lék þá öll Evrópa á reiðiskjálfi. Hinn 9. apríl tóku Þjóðverjar Danmörku herskildi, en hinn 10. maí sendu Englendingar nokkur herskip hingað í sömu erindum. Þá var lýðum ljóst, — og höfðu þó mjög margir bæði hér og í Danmörku vitað það löngu áður, — að enginn heldur grund- völlur var undir hinu pólitíska sambandi þessara tveggja þjóða. Ef pólitískt samband þjóða í milli er ekki reist á gagnkvæmum hagsmunum, getur það ekki reynzt haldgott til lengdar. Vera má, að sá aðili sambandsins, sem mátt- armeiri eða máttarmestur er, telji sér mikinn styrk að einhvers konar póli- tískum félagsskap, við annað eða önnur þjóðfélög, — meira að segja þótt þau séu orkusmá og ekki aflögufær til sameiginlegra þarfa. Getur þar margt komið til greina, t. d. hnattstaðan ein. Þá er og hitt kunnara en frá þurfi að segja, að oft hefur vanstyrkum, fámennum eða lítt menntuðum þjóðum ver- ið það mikill styrkur og jafnvel lífsnauðsyn að standa í skjóli voldugs ríkis, þar sem pólitísk siðmenning hefur náð miklum þroska. Alls staðar, þar sem sambönd og pólitísk samskipti milli þjóða eru svo vaxin, eiga sambands- þjóðirnar gagnkvæmra hagsmuna að gæta. Allt öðru máli gegndi um samband Islands og Danmerkur. Ekki gat kom- ið til nokkurra mála, að íslendingar væru þess umkomnir að verða Dönum að nokkru liði, ef þeim yrði sýnd ágengni eða ofbeldi — en slíks átti Dan- mörk von úr einni átt aðeins — frá Þýzkalandi. Hins vegar gátum við aldrei gert okkur nokkra von um nokkra hjálp frá Dönum, ef eitthvert ríki þættist þurfa eða þyrfti að hafa hönd yfir Islandi. En þar komu einkum til greina engil-saxnesku stórveldin tvö, austan hafs og vestan. —'Það er ekki fjarri sanni að athuga í þessu sambandi, að í raun og veru seildust Danir aldrei til yfirráða hér að fyrra bragði og myndu að líkindum aldrei hafa gert það, ef Noregskonungar hefðu ekki rutt þeim brautina. En fyrir undarlega og torskiljanlega rás pólitískra viðburða í Noregi, komust yfirráðin bæði yfir Islandi og Noregi snemma í hendur Dana, og reyndust þeir allfastheldnir á þau, svo sem íslendingar komust að nokkurri raun um, einkum á 19. öld og í upphafi hinnar tuttugustu. En þó er það satt sem fyrr sagði, að aldrei hvíldi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.