Helgafell - 02.12.1943, Qupperneq 22

Helgafell - 02.12.1943, Qupperneq 22
404 HELGAFELL ennþá farnir að beita skaflajárnunum að neinu ráði. Sumir stungu upp á, að ísland gerðist eitt af sambandslöndum Breta. Aðrir heimtuðu, að Islend- ingar segðu skilið við Dani og stofnuðu lýðveldi þá þegar. Létu þeir sem mestan gust fylgja þessari kröfu og lögðu landráðasök við hverjum þeim, er fylgdi henni eigi fram. Höfuðröksemd þeirra var sú, að ef Islendingar létu dragast að ákveða sjáljir sjálfstæði sitt og alþjóðlega réttarstöðu fram yfir ófriðarlok, þá mundi verða svo sem ekkert úr þeim og þeirra málefnum á friðarþinginu. Annað mál væri, ef við létum stórveldi friðarþingsins standa gagnvart fullgerðu stórvirki, hinu íslenzka lýðveldi, sem við hefðum stofnað af hugprýði og karlmennsku án þess að virða nokkra þjóð viðtals og þó sízt Dani. ,,Ætli það fari ekki að koma á þá fyrir sunnan“, sagði norð- lenzki vinnukarlinn, er húsbóndi hans sendi einu Reykjavíkurblaðanna harðorða ádeilugrein um landsmál. — Þó ber að geta þess, að til voru íslenzkir stjórnmálamenn, sem litu allt öðrum augum á þetta mál og létu óp hinna eins og vind um eyrun þjóta. Bæði Hermann Jónasson, sem þá var forsætisráðherra, og Jóhann Þ. Jósefsson, þingmaður Vestmannaeyinga, rituðu vel og viturlega um málið og sýndu þjóðinni fram á með slíkum rök- um sem stjórnmálamönnum sæma, að íslendingar ættu vísan veg til full- komins sjálfstæðis, ef þeir kynnu til að gæta. Hitt gæti e. t. v. orðið þeim full- dýrt, ef þeir færi að leika listir sínar á gönuskeiðum eða láta öðrum illum látum. Þetta var mergurinn málsins í greinum þeirra, sem þeir orðuðu annars af mikilli varfærni og kurteisi. IV. Jóhann Þ. Jósefsson gat þess í ritgerð sinni, að varla gæti hjá því farið, að Englendingar veittu sjálfstæðismáli voru nokkur afskipti, ef lslendingar ætluðu sér að ráða því til lykta upp á eigin eindæmi. lsland var þá hernum- ið í þeirra höndum, og því hætt við, að þeim yrði kennt um allt það, er Is- lendingar hefðust að í utanríkismálum sínum. Þessi spá Jóhanns átti sér ekki langan aldur. Þá er það spurðist til Englands, að mörgum íslenzkum forustumönnum væri ríkt í hug að geisast fram til hraðskilnaðar, þá sáu enskir valdhafar ekki annað ráð vænna en að grípa í taumana. Sneri brezki sendiherrann sér þá til íslenzku ríkisstjórnarinnar og réð eindregið frá að sambandsslit væru framkvæmd og hraðskilnaður gerður að svo vöxnum málum, enda var fyrirtækið, ef satt skal segja, ekki efnilegt: Island hernumið, Danmörk hernumin og Englendingar töldu sig vitanlega ábyrga allra pólit- ískra athafna Islendinga út á við I Mega það undur heita, að nokkur Islend- ingur skyldi þá telja hraðskilnaðarleiðina færa eða æskilega, þar sem hins vegar blasti við augum léttfær lagaleið til fullkomins sjálfstæðis á fárra ára fresti. Islendingar fóru vitanlega að ráðum Englendinga í þessu efni, — jafnvel þeir pólitísku snarfarar, sem aldrei höfðu haft eirð í sér til þess að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.