Helgafell - 02.12.1943, Síða 58

Helgafell - 02.12.1943, Síða 58
440 HELGAFELL fyrlr oss, sem hér búum, og vissulega furðar mig á því, að jafn hraðgáfaðir menn og scjórn- málaritstjórar Morgunblaðsins skuli nokkurn tíma geta gleymt því, að það hefur kostað mannkynið margra alda harða baráttu að tryggja þeim frelsið til að hugsa og álvkta jafn látlaust og heimskulega eins og þeim er eðlilegt. * * * HÁSKÓLINN VERÐUR FYRIR ÁFÖLLUM Margir telja, að Evrópustyrjöldinni kunni að verða lokið á þessu ári, en öllu minni bjartsýni gætir um það, að takast megi að koma á varanlegum friði hér innanlands á næstu mánuðum. Síðasta ár hefur verið róstu- samt í þjóðfélaginu, og jafnvel Háskólinn, sem hefur unnið sér verðskuldað traust og ást- sæld þjóðarinnar, hefur ekki farið varhluta af umtali og deilum. Hann hefur meira að segja orð- ið fyrir þrennum áföllum þann stutta tíma, <-em lið- inn er af þessu háskólaári, en engin þeirra eru þó þess eðlis, að þau þurfi að valda iion- um varanlegum álitshnekki. I byrjun háskóla- ársins sá guðfræðideildin sig til þess neydda að losa sig við einn af k.ennurum sinum, sr. Sigurð Einarsson dócent. Að vísu má scgia, að það sé full hátíðlegt að tala um áfall í þessu sambandi, þar sem það er vitað, að kristin kirkja hefur, þótt ótrúlegt sé, komizt af án hans í nær tuttugu aldir, en áíall er þetta engu að síður. Það er áfall fyrir Há- skólann, ef svo reynist, að dócentinn hafi verið borinn röngum sökum og áfall fyrir guðfræðideildina að hafa ekki haft Lirðu eða hugsun á að losna við hann fyrr, ef sakar giftirnar reynast á rökum byggðar. Margir munu og verða til þess að efast meira en áður um uppcldisáhrif guðfræðideildarinnar hafi þau eigi enzt til þess að gera nothæfan dócent úr Sigurði öll þau ár, sem hann hefur lifað ÁFALL NR. „ °S SR SIGURÐUR ”"”r' fy DÖCENT V“f'r aí sogðu fullyrt eins og sakir standa, því málið er enn til rannsóknar í höndum dómbærra manna, sem allir bera óskorað traust til. Hins vegar mun ekki óvar- lega ályktað, þótt sagt sé, að sr. Sigurður hafi haft ýms önnur hugðarefni um dagana en þau, sem snerta heilagleikann í þrengstu merkingu, og vitanlega getur guðfræðideildin ekki til lengdar unað því, að kennimenn hennar láti sér nægja að daðra við kristin- dóminn í tómstundum sínum. Það vill líka svo vel til, að guðfræðideildin hefur miklum ágætismönnum á að skipa, þótt Sigurður fari, og t. d. er Magnús Jónsson prófessor svo mikill áhrifamaður, að telja má víst, að enginn standi betur en hann að vígi um að koma í veg fyrir, að höfuðkennurum prestastéttar- innar haldist það uppi, að vera stöðugt að braska í þingmennsku, bankastjóm eða út- varpsmálum. Því má vel fara svo, að ein- mitt brottrekstur dócentsins leiði til varan- Iegrar blessunar fyrir kristnihaldið í landinu. * * # En hvort sem dósentsmálið ber að teljasc áfall fyrir Háskólann eða ekki, er hitt víst, að hann hlaut annað og miklu alvarlegra á- fall 14. nóvember sl., en þá birtist í Morgun- blaðinu grein eftir dr. Alexander fóbannesson ÁFALL NR. 2: HÓfessor. Þótt ritsmíð DR. ALEXANDER verðl Serð * ”m; talsefni, sneiöi eg hja því að fara verulega út í það, sem hún að efni til fjallar um, en það er skilnaðarmálið. Fyrir Léttara hjali vakir einungis að gera nokkra grcin fyrir andlegu viðhorfi þessa full- trúa vestrænnar háskólamenningar, og það er því meiri ástæða til þess sem dr. Alexander hefur marga þá eiginleika til að bera, sem gera hann að atkvæðamiklum áhrifamanni. Hann er gæddur óvenjulegum áhuga og bjartsýni, dugnaði og ósérplægni, en auk þess nýtur hann að verðleikum mikilla persónulegra vinsælda hjá öllum, er honum kynnast. Allra þessara ágætu eiginleika hcf- ur Háskólinn notið í ríkum mæli, enda mun almennt viðurkennt, að hann eigi ytra gengi sitt að þakka dr. Alexander meira en nokkr- um einum manni öðrum. Það er ekki fyrr en dr. Alexander fer a8 skrifa, sem hann ger- ist Háskólanum óparfur. Prófessorinn færir tvær meginástæður fyrir því, að hraða bcri fullum sambandsslitum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.