Helgafell - 02.12.1943, Page 59

Helgafell - 02.12.1943, Page 59
LÉTTARA HJAL 441 Önnur er ástandið í landinu, en því lýsir hann m. a. svo: „ . . . Allt er nú á hverfanda hveli í tslenzku þjóðlífi. Mögnuð stéttabarátta hefur sundrað þjóðinni. Alþingi er orðin mátt- laus stofnun, þar sem hver höndin er ttpp á móti annarri . . . Sjálft stjórnskipulagið er meingallað eins og reynslan hefur sýnt. . . Við Islendingar erum nú eins og litil fleyta, sem berst áfram t ólduróti œgilegustu styrj- aldar, sem geisað hefir . . Ef erlendur mað- ur hefði lýst oss eins og hér er gcrt mundum vér hafa brugðizt við hinir verstu og talið þetta grófgert níð, enda er það mála sann- ast, að vér höfum fram á þennan dag unnið stöðugt að ýmsum umbótamálum og ráðizt í merkilegar framkvæmdir, sem vonlaust væri um, ef lýsingin væri rétt í öllum atriðum. Það vill einnig svo til, að einn af mætustu mönnum Háskólans, prófessor Ólafur Lárus- son, hefur nýlega séð ástæðu til þess að vara þjóð sína við því að vega að sjálfri sér með ofstækisfullum áróðri, og þó að hann sé mjög eindreginn sjálfstæðismaður, þykir mér senni- legt, að hann mundi jafnvel telja nokkra tví- sýnu á því, að svo hörmulegt innanlands- ástand væri jafn bráðæskilegur sjálfstæðis- grundvöllur, eins og dr. Alexander virðist á- líta. Það yrði ennfremur að teljast hæpið, að tafarlaus sambandsslit gætu út af fyrir sig orkað venilega á stjórnarfar okkar og inn- byrðis hegðun, þar sem því verður ekki neit- að, að vér höfum að undanförnu farið öllu voru fram sem hvert annað fullvalda riki, og þær vonir, sem vér gerum oss öll um það, að geta algerlega staðið á cigin fótum sem óháð og sjálfstæð þjóð í framtíðinni, hljóta auðvitað fyrst og fremst að byggjast á með- vitundinni um það, að vér eigum menningar- legan og stjórnarfarslegan þroska til að fara sjálfir með öll vor mál. Dr. Alexander virð- ist einnig hafa hugboð um það, að ófarnaður vor í innanríkismálum sé ekki einhlítur, því hann rennir annarri og miklu veigameiri stoð undir hraðskilnaðarkenningu sína, en hún er sú, að hann (sjálfur) hafi lýst yfir því i heyranda hljóði árið 1935, að vér betðum í hyggju að gerast „frjálsir og fullvalda“. Ég furða mig á því, að mér skuli ekki blöskra það að geta ekki verið sammála prófessorn- um um blygðunarleysi þeirra manna, scm þver- skallast við að telja málið til lykta leitt, eftir að hann (sjálfur) hefur gefið slíka yfirlýs- ingu, sérstaklega þó, þegar þess er gætt, að ekki er vitað um einn einasta Islending, sem hefur óskað þess og gert ráð fyrir, að sam- bandinu við Dani yrði haldið áfram. En það er öðni nær en að allir hafi látið sér segj- ast. M. a. hafa þrjátíu menn, sem annaðhvort hafa ekki heyrt um þessa frumlegu yfirlýs- ingu prófcssorsins, eða ekki talið hana nægi- lega, gerzt svo djarfir að skrifa bækling um ýms framkvæmdaratriði varðandi skilnaðar- málið, enda er dr. Alexander ekki lengi að sjá, hvað að þeim gcngur. Hann kemst að þcirri einföldu niðurstöðu, að „nokkrir höf- undanna" séu „danskari en Danir sjálfir i viðhorfi þeirra til frelsismála íslendinga". Ég þekki raunar ekkert til þessa ,,viðhorfs“ Dana, en hins vegar er mér fullkomlcga ljóst, að það sem prófessorinn á við með ummœlum sin- um, er hvorki annað né minna en það, að allmargir þessara fjórtán manna œski þess að gerast svikarar við íslenzkan málstað. Þar sem allir þessir fjórtán menn hafa komizt að svip- aðri niðurstöðu í greinum sínum, hefði verið sanngjarnt að ætlast til þess af prófessornum að tilgreina, hverjir þeirra væru einkum föð- urlandssvikarar, úr því að hann tekur sér fyrir hendur að gera upp á milli þeirra. Hins vegar er óþarft að taka það fram, að ég er persónulega ekki í neinum vafa um það, að hver og einn þessara fjórtán höfunda er full- komlega jafn eindreginn og einlægur sjálf- stæðismaður og dr. Alexander og alveg jafn- mikill föðurlandsvinur og góður íslendingur eins og hann. Og stæði ég í sporum dr. Alexanders og væri jafn samvizkusamur og góður drengur eins og ég veit að hann er, þrátt fyrir þetta, mundi ég telja mér sérstaka ánægju að því að taka þegar í stað til ná- kvæmrar rannsóknar möguleikann fyrir því að skammast mín rækilega fyrir svo ósæmileg- an sleggjudóm um samborgara mína. Vel má vera, að hann sé þcgar búinn að þessu, en hafi hann látið það ógert, kynni sú van- ræksla að standa í sambandi við heimspóli- tískt viðhorf prófessorsins, því að satt að segja gætir þess raunalega lítið í greininni,

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.