Kjarninn - 17.07.2014, Page 68
03/04 pisTill
að virkja, framleiða ál og kaupa hlutabréf. Markmiðið var
kaupmáttur og nóg af honum og hún kaus til áhrifa stjórn-
málamenn í samræmi við þetta.
Það var einhver einfaldleiki við þetta sem er ekki til stað-
ar í dag. Tilveran hjá kynslóðinni sem er núna um þrítugt er
orðin miklu flóknari og óskýrari. Prógrammið sem þessi kyn-
slóð átti að ganga inn í að námi loknu gekk ekki upp – 90%
húsnæðislánið frá bankanum og gengistryggða
bílalánið frá Lýsingu reyndist ekki vera mjög
rausnarlegur heimanmundur, heldur nokkurra
milljóna króna myllusteinn um hálsinn sem fólk
neyddist í mörgum tilfellum til að taka á sig.
Sparnaðurinn og/eða fyrirframgreiddi arfurinn
hvarf og við tóku erfið ár í að berjast í gegnum
hrunið. Þessi kynslóð þurfti að sætta sig við miklu hærra
atvinnuleysi en þekkst hefur hér á landi, en atvinnuleysi
bitnar oftar en ekki verst á þeim yngstu á vinnumarkaði. Enn
er dýrt að lifa og hjá mörgum duga launin ekki fyrir öðru en
því allra nauðsynlegasta.
refresh?
Það er svolítið erfitt að vita hverju á að treysta núna. Eigum
við að ýta á refresh-takkann og taka annan snúning á þessu
hjóli, þ.e. steypa okkur í skuldir sem nánast öll mannsævin
fer í að borga af með tilheyrandi áhættu á skakkaföllum
síðar meir sem lendir öll hjá lántakanum? Svo bara virkjum
við til þess að það sé nóg atvinna þannig að allir eigi fyrir
afborgun unum? Skiljanlega eru ekki margir tilbúnir að
stökkva fram og boða þessa framtíð. Kannski á bara að prófa
að gera eitthvað allt annað en hvað það á að vera hefur ekki
enn komið í ljós.
að bjarga heiminum... eða bara sleppa því
Heimsmyndin er líka orðin flóknari og það er ekki jafn-
skýrt og áður hverjir eru góðu kallarnir. Við erum orðin
miklu meðvitaðri um vandamál heimsins, sem eru aldrei
lengra frá okkur en sem nemur einum netrúnt í ágræddum
„Hvernig stend-
ur á því að heil
kynslóð er nán-
ast ekki með?“