Kjarninn - 17.07.2014, Page 72

Kjarninn - 17.07.2014, Page 72
02/05 umhVErfismál umræðu í um áratug áður, en aldrei höfðu fengist eins drama tískar mælingar og árið 1985. Um svipað leyti var að verða mikil vitundarvakning um umgengni mannfólks á jörðinni. Ári eftir að sannað var að ósonlagið var götótt sprakk heill kjarnaofn í Úkraínu og mengaði gríðarstórt landsvæði svo að þar verður ekki hægt að búa næstu 600 árin. Þremur árum síðar kom í ljós að gríðarstór ruslaeyja flýtur með hafstraumum Kyrrahafsins og nú, rúmum 20 árum síðar, erum við búin að hita andrúms- loftið svo mikið að sífrerinn í norðan- verðu Rússlandi er farinn að bráðna og auka á gróðurhúsaáhrifin. ósonlagið þynnist enn Ljóst var að ekki væri hægt að leyfa ósoninu í heiðhvolfinu, einhverjum 15 til 30 kílómetrum yfir jörðinni, að eyð- ast frekar og mikil umræða spratt upp um „ósongatið“ meðal almennings og í fjölmiðlum á tíunda áratugnum. Börnum var kennt um áhrif nútímamannsins á umhverfið í skólum og ýmis skaðleg efni voru hreinlega bönnuð með tímamótasamningi allra ríkja Sameinuðu þjóð- anna árið 1989. Lesendur Kjarnans ættu einnig að muna eftir umræðunni sem náði hámarki á tíunda áratugnum um aukna hættu á krabbameini vegna útfjólublárrar geislunar og áhrifa ósongatsins á uppistöðufæðu í sjónum. En síðan er eins og gatið á ósonlaginu, þarna yfir Suðurskautslandinu, hafi bara gufað upp. Því er kannski mál að spyrja hvað hafi eiginlega orðið um það. Skemmst er frá því að segja að gatið er þarna enn. Undan- farin 15 ár eða svo hafa orðið gríðarlega framfarir í mæling- um á ósoni í lofthjúpi jarðar. Geimferðastofnun Bandaríkj- anna rannsakar gatið yfir Suðurskautslandinu sérstaklega og Finnar eru orðnir leiðandi meðal Evrópuþjóða í rannsóknum á ósoni á norðurhveli jarðar. Eiga Geislavarnir íslenska ríkisins í samstarfi með Finnunum. „Ári eftir að sannað var að ósonlagið var götótt sprakk heill kjarnaofn í Úkraínu og mengaði gríðarstórt landsvæði svo að þar verður ekki hægt að búa næstu 600 árin.“

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.