Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Kostnaður við byggingu fyrsta
áfanga nýs Landspítala við Hring-
braut verður aldrei 45 milljarðar
króna, eins og áætlað er í nýju fjár-
lagafrumvarpi, heldur allt að 91
milljarði. Þegar annar áfangi bætist
við gæti endanlegur kostnaður orðið
135 milljarðar króna.
Þetta kom m.a. fram í máli Katr-
ínar Ólafsdóttur, lektors við við-
skiptafræðideild Háskólans í
Reykjavík, á morgunverðarfundi
Samtaka verslunar og þjónustu og
Samtaka heilbrigðisfyrirtækja í gær.
Fundurinn bar yfirskriftina „Þjóðin
byggir spítala – feilspor eða fjárfest-
ing til framtíðar?“ Auk Katrínar
flutti María Heimisdóttir, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Land-
spítalans, framsögu á fundinum. Síð-
an fóru fram pallborðsumræður með
fulltrúum allra flokka á Alþingi.
Oftast farið fram úr áætlunum
Katrín sagði að ef tekinn væri með
kostnaður við endurnýjun húsnæðis
upp á 11 milljarða og tækjakostnað-
ur upp á 7 milljarða yrði heildar-
kostnaður við fyrsta áfanga nýs spít-
ala 63 milljarðar króna. Sagði Katrín
þetta varlega áætlað og miðað við
reynslu af opinberum verkefnum þá
færu fjögur af hverjum fimm fram úr
kostnaðaráætlun, að jafnaði um 45%.
Samkvæmt þessu gæti fyrsti áfangi
nýs spítala kostað 91 milljarð króna,
annar áfangi gæti farið í 44 milljarða
og endanlegur heildarkostnaður því
135 milljarðar króna.
Í ljósi þess að nýr Landspítali yrði
á endanum fjármagnaður með skatt-
greiðslum almennings sagði Katrín
að heildarkostnaður þyrfti að liggja
ljós fyrir áður en farið væri af stað,
með mögulegum frávikum og mis-
munandi sviðsmyndum.
Tveir kostir í stöðunni
María Heimisdóttir gagnrýndi
þennan málflutning. Sagði hún að
horfa þyrfti aðallega til fyrsta áfanga
spítalans. Heildarbyggingarmagnið
risi ekki fyrr en mögulega í fjarlægri
framtíð. Sagði hún núverandi kostn-
aðaráætlun vissulega fela í sér óvissu
en benti jafnframt á að tæki spít-
alans þyrfti að endurnýja, óháð ný-
byggingum. Sagði María tvo kosti
vera í stöðunni; annars vegar að
vinna áfram í núverandi húsnæði,
með viðhaldi og endurbyggingum,
og hins vegar að byggja nýjan spít-
ala.
María benti á að á fimm ára tíma-
bili hefði verið hagrætt um 32
milljarða króna á Landspítalan-
um. Ekki væri hægt að spara
meira í gömlu húsunum. Þannig
væri m.a. ekki hægt að kaupa
sum ný tæki þar sem að burð-
arþol, lofthæð og lagnir
gömlu húsanna byðu ekki
upp á það. Nýtt húsnæði
myndi draga úr mannafla-
þörf og áhættu.
Nýr spítali fyrir
135 milljarða?
Mikil óvissa í kostnaði við byggingu nýs Landspítala
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Sveinbjörn Benediktsson kallar eft-
ir hjálp í smáauglýsingadálki
Bændablaðsins sem kom út í gær.
Hann liggur hryggbrotinn heima
hjá sér og auglýsir eftir fjórum ung-
um og vöskum mönnum til að negla
þrjátíu þakplötur. Í staðinn fá þeir
góða aðstöðu til gæsaveiða.
Sveinbjörn býr í Landeyjum í
Rangárþingi eystra og fékk að láni
gömul útihús í sveitinni sem hann er
að lagfæra fyrir veturinn. Þakplöt-
urnar þarf að negla þar. Hann hefur
fengið viðbrögð við hjálparbeiðninni
og á von á galvöskum ungum mönn-
um í dag til að skoða verkið.
Sveinbjörn hryggbrotnaði er
hann féll um fimm metra niður af
gömlu hlöðulofti. „Ég lá á gólfinu í
heillangan tíma en náði af sjálfs-
dáðum að komast út í bíl og heim til
mín og þaðan með bláu ljósunum á
spítalann. Kvalirnar voru ansi mikl-
ar og þetta var hálfgert krafta-
verk.“
Auk þess að auglýsa eftir vösk-
um mönnum selur Sveinbjörn gaml-
ar vélar fyrir Pétur og Pál. Hann er
með til sölu Massey Ferguson 135
og PZ-sláttuvél. „Gamlar vélar selj-
ast vel. Það eru margir sem hafa
gaman af að gera þær upp, sér-
staklega sumarbústaðakarlar.“
Auglýsir eftir fjórum ung-
um og vöskum mönnum
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Brosandi Sveinbjörn Benediktsson.
Auglýsingin
» Hjálp – Hjálp. Vantar fjóra
unga, vaska menn til að negla
30 þakplötur. Í staðinn fáið þið
góða aðstöðu til gæsaveiða í
haust. Á sama stað er til sölu
MF-135 með tækjum, PZ-135
og 185 og biluð diskasláttuvél
2,40. Einnig gamall afturhluti
af vörubíl með beisli.
Skipulagsráð Reykjavíkur sam-
þykkti á fundi sínum í vikunni
að framlengja enn frekar frest-
inn til að gera athugasemdir við
nýtt deiliskipulag fyrir nýjan
Landspítala, eða til 19. október
nk. Þegar fyrsti frestur rann út í
byrjun mánaðarins höfðu um
450 athugasemdir borist en þá
var fresturinn framlengdur til
20. september, eða þar til í gær.
Frestur til að gera athugasemd
við breytingu á aðalskipulagi
Reykjavíkur var einnig fram-
lengdur til 19. október nk.
Í fundargerð skipulagsráðs
segir að fresturinn hafi verið
framlengdur enn frekar
vegna fjölda athuga-
semda á síðustu dögum
auglýsts athuga-
semdafrests. Tillög-
urnar eru til sýnis í
þjónustuveri Reykja-
víkurborgar í Borg-
artúni 12-14, 1.
hæð, alla virka
daga.
bjb@mbl.is
Fresturinn
framlengdur
FJÖLDI ATHUGASEMDA
Morgunblaðið/Golli
Nýr Landspítali Þingmenn allra þingflokka sátu í pallborði á fundi SVÞ og SH í gær ásamt framsögumönnum.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Ekki hefur tekist að fullmanna frí-
stundaheimilið Vesturhlíð í Klettahlíð
fyrir fötluð börn og því hafa nokkur
þeirra ekki komist að í frístundagæslu
eftir skóla. Frá því að skólinn byrjaði í
lok ágúst hafa foreldrar meðal annars
þurft að leita til ættingja til að gæta
barna sinna.
„Við erum búin að auglýsa marg-
sinnis í blöðum og erum með auglýs-
ingar uppi í flestum verslunum bæj-
arins og í háskólunum. Það hefur hins
vegar ekki ennþá tekist að fullmanna
og það eru því einhver börn á biðlista.
Það er mjög slæmt,“ segir Haraldur
Sigurðsson, fostöðumaður
frístundamiðstöðvarinnar í Kringlu-
mýri sem sér um rekstur Vest-
urhlíðar.
Starfið á heimilinu er annaskipt.
Yfir skólaárið sé boðið upp á frí-
stundaúrræði þegar börnin eru búinn í
skólanum en á sumrin er heilsdags-
starfsemi. Þá breytist samsetning
starfshópsins.
„Haustin hafa oft verið þyngsti
hlutinn. Þá lendum við oft í því að ráða
fólk sem er að byrja í háskólanum en
svo breytist stundaskráin þeirra þar.
Þá þarf að breyta ráðningunum aftur
og sumir geta jafnvel ekki unnið,“ seg-
ir hann.
Búið er að manna yngsta stigið í
starfinu en enn vantar átta starfsmenn
fyrir 10-12 ára hópinn og aðra átta fyr-
ir 13-16 ára hópinn að sögn Haralds.
„Við vonumst til að geta leyst
þetta sem allra fyrst og hvetjum fólk
til að sækja um. Þetta er gefandi og
skemmtileg vinna,“ segir hann.
Barnið með í vinnuna
Móðir einhverfs unglings sem er
á biðlistanum segist hafa leyst málin
hingað til með því að fá móður og
tengdamóður til að gæta barnsins þar
til hún kemur úr vinnu. Stundum hafi
hún jafnvel þurft að taka það með sér
í vinnuna.
„Barnið er einhverft og það þarf
að hafa allt í röð og reglu. Það spyr á
hverju kvöldi hvað verði á morgun. Ef
ég er ekki búin að redda þessu þegar
það fer í skólann er það voðalega
óþægilegt. Þetta er púsluspil út í eitt.
Ástandið hefur aldrei verið svona áð-
ur.“
Fötluð börn
komast ekki að
í frístundavist
Vantar 16 starfsmenn á Vesturhlíð
Morgunblaðið/Eggert
Fjör Frá sumarhátíð frístunda-
heimilisins Vesturhlíðar í fyrra.
eftir Hugleik Dagsson
Nýtt endurskinsmerki
VITUNDARVIKA 23.-30. SEPTEMBER 2012
NÝTT
ATHYGLI - JÁ TAKK
NÝTT BLAÐ FYLGIR FRÉTTATÍMANUM Í DAG
EINNIG MÁ NÁLGAST BLAÐIÐ Á WWW.ADHD.IS
Hæstiréttur hefur þyngt dóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur yfir manni
sem bauð konu fé fyrir kynlíf og
nauðgaði henni er hún neitaði að
verða við ósk hans. Brotin áttu sér
stað 20. september 2009. Fékk
hann fjögurra ára fangelsisdóm í
héraði en Hæstiréttur þyngdi
dóminn um eitt ár, í fimm.
Maðurinn, Stefán Þór Guðgeirs-
son, var í Héraðsdómi sakfelldur
fyrir tilraun til brots með því að
hafa á dvalarstað konu boðið
greiðslu fyrir vændi, lagt féð frá
sér í íbúð hennar og óskað eftir
kynlífsþjónustu.
Maðurinn var einnig sakfelldur
fyrir að hafa þröngvað konunni
með ofbeldi til samræðis og ann-
arra kynmaka, er hún neitaði að
verða við ósk hans um kynlíf, og
tekið fartölvu hennar er hann
hafði sig á brott úr íbúðinni. Mað-
urinn var sýknaður í héraði af
þeim sakargiftum að hafa slegið
brotaþola í andlitið, dregið hana á
hárinu og ógnað henni með hnífi.
Ákæruvaldið unir við þá niður-
stöðu.
Með brotinu rauf maðurinn skil-
orð samkvæmt eldri dómi og var
refsing hans ákveðin fangelsi í
fimm ár.
Miskabætur konunni til handa
voru ákveðnar 600.000 krónur með
vöxtum eins og dæmdir voru í hér-
aði. Ákærði greiði allan áfrýjunar-
kostnað málsins.
Fimm ár fyrir kynferðisbrot
Katrín
Ólafsdóttir