Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 39
forseti bæjarstjórnar Seltjarnarness
1990-92, 1994-96 og 1998-2000. Hún
var formaður skipulagsnefndar Sel-
tjarnarness um skeið frá 1990 og fjár-
hagsnefndar 1991-94, sat í stjórn
SSH, Samtaka sveitarfélaga á höf-
uðbogarsvæðinu frá 1990, var for-
maður þess 1999-2002 og sat í sam-
vinnunefnd um svæðisskipulag
höfuðborgarsvæðisins 1999-2002.
Erna sat í stjórn kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi frá 1987, var formaður
þess 1992-96, sat í stjórn kvenfélags-
ins Öldunnar á Seltjarnarnesi 1983-
91, er félagi í slysavarnadeild kvenna
á Seltjarnarnesi frá 1993 (nú slysa-
varnadeildin Varðan á Seltjarn-
arnesi) sem er bakhjarl björg-
unarsveitarinnar þar og hefur unnið
mikið að slysavörnum barna.
Erna var búsett á Seltjarnarnesi
1971-2008 er hún flutti í Kópavog.
Hún er nú gjaldkeri Skógrækt-
arfélags Kópavogs frá 2012„.
Ræktuðu sinn eigin skóg
Erna og eiginmaður hennar hafa
átt land og sumarhús við Langá á
Mýrum sl. 40 ár: „Drjúgur hluti af
tómstundum okkar hefur farið í
þennan sælureit. Þarna hófum við
skógrækt mjög snemma og höfum
komið okkur upp heilmiklum skógi.
Ég get ekki sagt að ég sé meðal
þeirra duglegustu þegar kemur að
hreyfingu. En ég er mikil hann-
yrðakona, prjóna mikið og hekla og
er nú að læra silfursmíði hjá miklum
meistara, Leifi Jónssyni hjá Kvöld-
skóla Kópavogs. Svo er ég mikil fé-
lagsvera og gegnheil sjálfstæð-
iskona.“
Fjölskylda
Eiginmaður Ernu er Björn Jóns-
son, f. 29.6. 1941, skipstjóri og fulltrúi
hjá LÍÚ. Hann er sonur Jóns Björns-
sonar frá Ánanaustum, f. 28.7. 1910,
d. 13.8. 1996, skipstjóra, og k.h.,
Jennýjar Guðlaugsdóttur, f. 10.6.
1912, d. 27.11. 2009, húsfreyju.
Börn Ernu og Björns eru Bryndís
Jenný Björnsdóttir, f. 28.9. 1965, hár-
greiðslukona og starfsmaður á vel-
ferðarsviði Reykjavíkurborgar. Mað-
ur hennar er Jón Smári Einarsson,
viðskiptafræðingur hjá Arion banka,
en synir þeirra eru Daníel, f. 1993, og
Viktor Franz, f. 1995; Jón Björnsson,
f. 18.12. 1968, MBA og fram-
kvæmdastjóri. Kona hans er Lovísa
Stefánsdóttir framkvæmdastjóri og
eru börn þeirra Daníel Ingi, f. 1991,
Andri Björn, f. 1996, og Erna Ósk, f.
2001; Laila Björnsdóttir, f. 4.1. 1975,
fatahönnuður og starfsmaður hjá
Aurum.
Systkini Ernu eru Sophus Nielsen,
f. 18.9. 1931, framkvæmdastjóri Ísól,
kvæntur Guðrúnu Nielsen húsfreyju
og eiga þau þrjú börn; Svala Sigríður
Nielsen, f. 5.12. 1932, óperusöngkona,
eignaðist hún einn son sem er látinn.
Foreldrar Ernu voru Hjörtur Niel-
sen, f. 16.4. 1898, d. 21.7. 1985, bryti,
hótelstjóri Hótels Borgar og kaup-
maður, og k.h., Marzelína Friðriks-
dóttir, f. 12.5. 1898, d. 21.2. 1969, hús-
freyja.
Úr frændgarði Ernu Nielsen
Páll Pálsson
b. í Brekku
Elísabet Jónsdóttir
húsfr. í Brekku
Árni Kristjánsson
b. í Skálpagerði í Eyjafjarðarsveit
María Soffía Jónsdóttir
húsfr. í Skálpagerði
Erna
Nielsen
Hjörtur Nielsen
hótelstj. á Hótel Borg
Marzelína Friðriksdóttir
húsfr. í Rvík
Ólöf Sigríður Árnadóttir
húsfr. í Brekku
Friðrik Pálsson
b. í Brekku í Eyjafirði
Sophus Jörgen Nielsen
kaupm. á Ísafirði
Þórunn Blöndal
húsfr. á Ísafirði
Björn Blöndal
læknir á Hvammst.
Gunnlaugur Blöndal
listmálari
Sophus Blöndal
kaupm. á Sigluf.
Sveinbjörg Kjaran
móðuramma Birgis
Ármannssonar alþm.
Sigríður Sveinbjarnardóttir
húsfr., dóttir Sveinbjörns Egilssonar
Benedikt Gröndal
skáld
Elísabet Sveinbjarnardóttir
húsfr. í Hvammi, langamma Bene-
dikts Gröndal forsætisráðherra
Gunnlaugur Blöndal
sýslum. í Barðastr.s.
Lárus
Blöndal
amtm. á
Kornsá
Ragnheiður
Blöndal
húsfr. á
Eyrarbakka
Kristín
Guðmundsd.
húsfr. á
Selfossi
Sigríður Ragna
Sigurðard.
forseti Delta Kappa
Gamma á Íslandi
Lárus Blöndal
bóksali
Kjartan Lárusson,
framkvæmdastj.
Ferðaskr. Ísl.
Jósefína
Antonía,
húsfr. í Rvík
Anna
Jóhannesd.
húsfr. í Rvík
Matthías Johannessen
skáld, faðir Haraldar
ríkislögreglustj.
Haraldur
Blöndal
ljósmyndari
í Rvík
Lárus Blöndal
bókavörðurBenedikt Blöndal
hæstaréttardómari
Halldór Blöndal
fyrrv. ráðh.
ÍSLENDINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
Emil Björnsson, presturÓháða safnaðarins og dag-skrárstjóri Sjónvarpsins,
fæddist á Felli í Breiðdal 21.9. 1915.
Foreldrar hans voru Árni Björn
Guðmundsson, bóndi á Felli í Breið-
dal, og Guðlaug Helga Þorgríms-
dóttir, ljósmóðir og húsfreyja.
Bróðir Björns var Magnús, faðir
Sigurðar sem var formaður og fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasamtaka
Íslands og framkvæmdastjóri ÍSÍ.
Guðlaug Helga var dóttir Þor-
gríms, b. á Brimnesi í Fáskrúðsfirði
Þorlákssonar, b. í Víðinesi Ásmunds-
sonar, b. á Veturhúsum Ingimund-
arsonar. Móðir Ásmundar var Ingi-
björg Ásmundsdóttir, systir Indriða,
afa skáldanna Jóns og Páls Ólafs-
sona. Annar bróðir Ingibjargar var
Hallgrímur, langafi Gunnars Gunn-
arssonar rithöfundar og Bergljótar,
ömmu Haraldar Sveinssonar, fyrrv.
framkvæmdastjóra Morgunblaðsins.
Emil lauk stúdentsprófi frá MA
1939, stundaði nám við við-
skiptadeild HÍ 1939-41, lauk guð-
fræðiprófi frá HÍ 1946, dvaldi síðan
við nám á Norðurlöndum 1953 og í
Lundúnum og Kantaraborg 1960-61,
var á útvarpsnámskeiði hjá BBC og
síðar sjónvarpsnámskeiðum í
Bandaríkjunum 1965.
Emil stundaði skrifstofustörf í
Reykjavík 1941-44, var fréttamaður
hjá Ríkisútvarpinu 1944-65 og vara-
fréttastjóri, fréttamaður við Vísi,
vann að undirbúningi Sjónvarpsins
og var dagskrárstjóri frétta- og
fræðsludeildar þess frá upphafi,
1965-1985.
Emil var kappsfullur fréttamaður,
léttur í lund og vinsæll yfirmaður.
Hann tók þátt í frægum prestskosn-
ingum til Fríkirkjunnar í Reykjavík
1950 og beið þar lægri hlut fyrir Þor-
steini Björnssyni. Í kjölfarið stofn-
uðu stuðningsmenn Emils Óháða
söfnuðinn í Reykjavík þar sem Emil
var prestur frá stofnun, 1950-1984.
Eftir Emil hafa komið út ritin
Minni og kynni, frásagnir og viðtöl,
1985; Á misjöfnu þrífast börnin best,
I. bindi æviminninga, 1986, og Lit-
ríkt fólk, II. bindi, 1987.
Emil lést 17.6. 1991.
Merkir Íslendingar
Emil
Björnsson
103 ára
Klara Vemundsdóttir
102 ára
Guðríður Jónsdóttir
95 ára
Hólmfríður Sölvadóttir
90 ára
Kristín Ingvarsdóttir
Matthildur Finnbogadóttir
Ólöf Hannesdóttir
85 ára
Sigurður Jósefsson
80 ára
Bjarni Sæmundsson
Erna Petrea
Þórarinsdóttir
Helga Magðalena
Guðmundsdóttir
Magnea S. Magnúsdóttir
Sigrid Lúthersdóttir
Thordarson
75 ára
Berta Jóhannsdóttir
Halldóra Hilmarsdóttir
Hjördís Sigurðardóttir
Margrét Þórarinsdóttir
Sigfús Gunnarsson
Sævar Hannesson
70 ára
Anna Dam Ingólfsson
Guðjón Helgason
Hulda Sigríður Vidal
Karl Egill Steingrímsson
Kristín Kristensen
Margrét Kristjánsdóttir
Ragnar Friðriksson
60 ára
Ágústa Hrönn Axelsdóttir
Ásgerður Hjálmsdóttir
Baldur Kristjánsson
Elín Kristín Helgadóttir
Gunnar D. Magnússon
Jóna Kristín Einarsdóttir
Sesselja Einarsdóttir
Steinvör Einarsdóttir
50 ára
Björn Hermannsson
Hanna Björg Marteinsdóttir
Hilmar Valgarðsson
Hulda Birgisdóttir
Jóhann Þorvarðarson
Lothar Pöpperl
María Sverrisdóttir
Sigríður Björnsdóttir
Sigríður Erlingsdóttir
40 ára
Aðalbjörg Albertsdóttir
Árni Hermann Björgvinsson
Guðný Tómasdóttir
Haukur Már Hergeirsson
Ingibjörg E. Jóhannsdóttir
Ingveldur Tryggvadóttir
Katrín Edda Svansdóttir
Rut Guðbrandsdóttir
Rúnar Björgvinsson
Sigrún Bragadóttir
Sigurlín Birgisdóttir
Sunneva Skúladóttir
30 ára
Andri Þór Ástráðsson
Anna Margrét
Magnúsdóttir
Elí Hólm Snæbjörnsson
Ellen Dögg Sigurjónsdóttir
Eva Dögg Kristínardóttir
Haraldur Björnsson
Jóhann Jónsson
Katrín Halldórsdóttir
Katrín Ólafsdóttir
Marco Jonas
Ólafía Steinarsdóttir
Óskar Hallgrímsson
Samúel Sigurjón
Samúelsson
Sebastian Bubrzyk
Til hamingju með daginn
30 ára Sigurður ólst upp
í Reykjavík, lauk prófi í
viðskiptafræði frá HR og
starfar hjá Íslandsbanka í
Eyjum.
Maki: Sigríður Bríet
Smáradóttir, f. 1983,
vinnusálfræðingur.
Dóttir: Steinunn Erla Sig-
urðardóttir, f. 2010.
Foreldrar: Sigurður Sig-
urðsson, f. 1948, hús-
gagnasmiður, og Ásdís
Erla Kristjónsdóttir, f.
1947, saumakona.
Sigurður
Sigurðsson
30 ára Hugrún ólst upp í
Reykjavík, lauk stúdents-
prófi frá FB, hefur stund-
að myndlistarnám og
stundar nú nám við Iðn-
skólann í Reykjavík.
Maki: Atli Heiðarsson, f.
1974, starfsmaður við Al-
coa í Straumsvík.
Foreldrar: Jón Pálmi
Pálmason, f. 1958, vél-
stjóri í Reykjavík, og Hug-
rún Hugadóttir, f. 1954,
fyrrv. heilbrigðisstarfs-
maður.
Hugrún Pálmey
Pálmadóttir
30 ára Klara ólst upp í
Grindavík, lauk MA-prófi í
lögfræði frá HR 2011 og
er saksóknarfulltrúi hjá
sérstökum saksóknara.
Maki: Tómas Viktor Yo-
ung, f. 1982, starfsmaður
hjá ÚTÓN.
Sonur: Alexander Elvar
Young, f. 2009.
Foreldrar: Olga Rán
Gylfadóttir, f. 1960, hús-
freyja, og Steingrímur
Thorarensen, f. 1960,
húsasmiður.
Klara Dögg
Steingrímsdóttir
Opnunartímar: Mánudaga til föstudaga 9-18 og laugardaga 11-14
Smiðjuvegur 6 (rauð gata) // 200 Kópavogur // Sími 567 7777 // parketbudin.is
ÞAÐ DETTUR
ALLT Í DÚNALOGN
Heimsins besta parketundirlag
fæst nú á Íslandi
• Hentar bæði í fljótandi lögn og til
niðurlímingar
• Framúrskarandi kostur fyrir samlímt,
gegnheilt, eða harðparket
• 21db hljóðdempun milli hæða
• 33% dempun í rými
• Verndar og minnkar álag á allar
læsingar parkets eða harðparkets
• Mesta pressa sem um getur
eða 1/10 úr mm
• Dúkurinn er léttur, sterkur og
meðfærilegur í notkun
• Dúkurinn er einstaklega rakaþolinn
og þarf ekki rakaþolið plast undir
The FloorMufflertm er verkfræðilegt undur,
hannað til að mæta og fara fram úr kröfum
markaðarins um hljóðdempun og pressu.
KYNNINGARTILBOÐ Á FLOORMUFFLER
Tilboðsverð: 790 kr. pr. m2
Fullt verð: 1.313 kr. pr. m2
Meðan birgðir endast